SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Page 6
6 24. júní 2012
Í tímaritinu Forbes birtist nokkuð
nýlega grein eftir fjárfestinn Tim
Worstall þar sem hann fjallar um
íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið
og kosti þess.
Greinin er áhugaverð í ljósi
þeirra breytinga sem ríkisstjórnin
vill gera á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu en þær breytingar telur
Worstall að muni skemma kerfið
enda birtir hann hana undir for-
merkjunum „Hvers vegna er Ísland
að skemma heimsins besta fisk-
veiðistjórnunarkerfi?“
Fram kemur í greininni að illa
hafi tekist til við stjórn sjávar-
útvegsmála víðast hvar í heim-
inum og tekur hann Evrópusam-
bandið sérstaklega fyrir en
samkvæmt athugunum sambands-
ins sjálfs eru margar tegundir of-
veiddar í Evrópulögsögunni.
Fáir gera betur en Ísland
Worstall segir að Ísland sé meðal
fárra staða í heiminum þar sem
tekist hafi að finna lausn á því mik-
ilvæga umhverfismáli sem stjórn
fiskveiða er en nú standi hins veg-
ar til að eyðileggja það fisk-
veiðistjórnunarkerfi sem hafi stuðl-
að að því.
„En nú lítur út fyrir að Ísland vilji
taka út úr fiskveiðistjórnunarkerfi
sínu nákvæmlega það sem gerir
það að verkum að kerfið virkar.
Það er möguleikann á að selja eða
leigja aflaheimildirnar, það sem
fyrst og fremst gerir þær að einka-
eign,“ segir fjárfestirinn Tim Wor-
stall í grein sinn á vefsíðu banda-
ríska viðskiptatímaritsins Forbes.
Samkomulag um frestun kvóta-
frumvarpsins gæti því verið mikið
umhverfis- og efnahagsmál fyrir Ís-
lendinga og þá sem líta á íslenska
kerfið sem fyrirmynd.
Heimsins besta fiskveiði-
stjórnunarkerfi á Íslandi
Segir íslenska fiskveiðistjórn-
unarkerfið eitt það besta í heimi.
Morgunblaðið/RAX
Deilur um kvótafrumvarp ríkisstjórn-arinnar og veiðigjaldafrumvarpið olliþví að ekki tókst að fresta þingi áhefðbundnum tíma. Alþingi lauk þó
loksins störfum síðastliðinn þriðjudag þegar
samkomulag náðist um þinglok milli stjórnar-
og stjórnarandstöðuflokkanna. „Það var samið
um að ljúka þinginu og liður í því samkomulagi
var að kerfisbreytingunni á fiskveiðistjórn-
unarlögum og öðrum ágreiningsmálum er frest-
að til haustsins en við hleyptum í gegn veiði-
gjaldafrumvarpinu með breytingum sem eru
m.a. fólgnar í því að veiðigjaldið lækkar úr
rúmum 25 milljörðum í 12 til 13 milljarða,“ seg-
ir Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins. Að hennar mati
er veiðigjaldið enn allt of hátt þrátt fyrir að
tekist hafi að fá það lækkað. „Þetta er gífurleg
skattpíning á eina atvinnugrein og það verður
að endurskoða þennan skatt eins og allan annan
skatt sem þessi ríkisstjórn hefur sett á frá því
hún tók við völdum.“
Á ábyrgð ríkisstjórnarinnar, ekki minnihlutans
„Í samkomulaginu um þinglok felst ekki samn-
ingur um sjálft kvótamálið eða veiðigjaldið. Við
erum andvíg þessum málum og teljum veiði-
gjaldið allt of hátt. Við sömdum um þinglok en
veiðigjaldið er algjörlega á ábyrgð ríkisstjórn-
arinnar,“ segir Ragnheiður og bendir á að málið
sjálft hafi verið illa búið frá upphafi og áhrif
laganna ekki reiknuð út að fullu. Fjöldi um-
sagna og álita um frumvörpin var mjög nei-
kvæður og varaði við neikvæðum áhrifum
þeirra á atvinnugreinina.
Að sögn Ragnheiðar tókst að koma í veg fyrir
áform ríkisstjórnarinnar að miklu leyti. „Okkur
tókst að hrinda aðför ríkisstjórnarinnar gegn
þessari atvinnugrein og nú er þannig um málið
búið að það verða ekki gerðar neinar grund-
vallarbreytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu á
þessu kjörtímabili.“ Í samkomulagi sem gert
var um þinglok var komist að ákveðnu lág-
marki sem unnið verður út frá vegna kerf-
isbreytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. „Rík-
isstjórnin leggur væntanlega fram nýtt
frumvarp á næsta þingi en það verður þá aldrei
eins slæmt og það sem núna er komið út af
borðinu.“
Samningar skulu standa
Varðandi samkomulagið við ríkisstjórnarflokk-
ana segir Ragnheiður að það eigi eftir að koma í
ljós hvort það haldi en hún ætli að ganga út frá
því að það muni halda. Hins vegar er skemmst
að minnast stöðuleikasáttmálans sem vítis til
varnaðar. „Við höfum svo sem ekkert í hendi
okkar eins og sást best á samkomulaginu um
stöðugleikasáttmálann en við verðum að
treysta því að þetta samkomulag haldi. Ef ekki
þá tökum við bara annan slag um málin en við
höfum sýnt að við getum það.“Alþingi lýkur störfum rétt í tæka tíð fyrir forsetakosningarnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Alþingi loksins
farið í sumarfrí
Kostar sjávarútveginn þrettán
þúsund milljónir króna
Vikuspegill
Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
Taustir lásasmiðir í yfir 24 ár
Verslun, Laugavegi 168 • www.neyd.is • laugavegur@neyd.is
s: 510 8888 • Opið alla virka daga 8:00-18:00
Bíllyklar
Smíðum og forritum flestar
gerðir bíllykla.
Komdu við í verslun okkar á
Laugavegi 168 og kynntu þér
hvað við höfum að bjóða.
Betra verð
Mikið úrval