SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 12
12 24. júní 2012
Mánudagur
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir Jæja,
umræðan alltaf jafn
hófstillt og mál-
efnaleg heima.
Þriðjudagur
Bragi Guðmundsson
Englendingar vinna
riðilinn sanngjarnt
og til alls líklegir.
Spurning hvort „sér-
fræðingar“ reyni nú að loka á sér
andlitinu?
Miðvikudagur
Hallgrímur Helga-
son Búinn að hlaða
þessu öllu niður á
iPodinn til að
hlusta á í sum-
arfríinu, jess: P. Blöndal 225 ræð-
ur, 516 athugasemdir. Samtals
32 klst og 58 mín. Gunnar Bragi
Sveinsson, 211 ræður, 429 at-
hugasemdir. Samtals 29 klst og
22 mín. Guðlaugur Þór 25 klst og
2 mín. Vigdís Hauksdóttir, 23 klst
og 30 mín. Og Birgir Beibí Ár-
mannsson, 22 klst og 59 mín.
Djöfull verður þetta æðislegt sum-
ar, maður.
Fésbók
vikunnar flett
Eins og getið er hér til hliðar þá skipt-
ir stærð fartölvu talsverðu máli, nema
þegar maður þarf að hafa hana stóra,
þ.e. með stórum skjá. Annað sem
skiptir líka verulegu máli er raf-
hlöðuending, kannski mestu máli fyrir
marga.
Við prófanir á vélinni sem tekin var
til kosta jókst rafhlöðuending umtals-
vert þegar notuð var svonefnd Stam-
ina-stilling, en takki er fyrir það á
lyklaborðinu og því einfalt að skella
því á eða taka af eftir þörfum.
Það er og hægt að kreista enn
meira út úr fartölvum sem keyra
Windows, til að mynda með því að
slökkva á Aero-skjáskrautinu og
gæta að því að það sé enginn óþarfi í
gangi eins og Bluetooth. Það er líka
hægt að ganga lengra, til að mynda
má minnka litadýpt á skjánum og
skrúfa niður vinnsluhraðann í grafík-
örgjörvanum. Hugbúnaður til að gera
það fylgir oft með eða þá að hægt er
að sækja hann á vefsetur viðkomandi
skjákortsframleiðandan. Líka er fáan-
legur allskyns hugbúnaður sem stýrir
straumnotkun á fartölvum, en hann
skilar almennt litlu, eða það er mín
reynsla í það minnsta
Svo má náttúrlega kaupa aukaraf-
hlöðu, til að mynda þá sem sést á
myndinni hér fyrir ofan. Víst verður
vélin þykkari og þyngri, en þegar þarf
straum þá sættir maður sig við flest.
Ending og vinnsla
Stærðin skiptir
máli og straum-
urinn líka
Stílhreinn vinnuhestur
Þumalputtareglan er sú að fartölvur eiga að vera fartölvur, tiltölulega litlar,
léttar og meðfærilegar. Sumar tölvur mega þó ganga á svig við það, eins og
Sony Vaio VPC SE1V9E sem hefur óneitanlega útlitið með sér.
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Tölvan er hálfgerður fleki, 38 x 25,5
cm, en þunn, 2,4 cm að þykkt. Stærð-
in ræðst vitanlega af skjánum,
en hann er 15,5". Hvað þyngd-
ina varðar þá er hún 1,8 kíló,
ekki fislétt, en léttari en ég
bjóst við í ljósi þess hvað hún
er traustbyggð – úr magnesíum
og áli og mjög sterkleg við-
komu.
Örgjörvinn er vel sprækur Intel
Core i7 og minnið 4 GB. Ekki
sá öflugasti en skrúfar sig upp
í hraða eftir þörfum. Harði
diskurinn er 640 GB. Skjákort-
ið er býsna gott, AMD Radeon
HD 6630M með GB minni sem
er kappnóg til að horfa á vídeó
og sýsla með myndir.
Skjárinn Full HD 15,5"
og eftirtektarvert að
hann er aðeins mattur
sem dregur verulega úr
skjáglampa. Upplausnin
1920x1080 dílar.
Það er líka innbyggður minniskortalesari og fingrafaralesari og rauf
fyrir Express Card. Ekki má gleyma innbyggðri myndavél í lokinu og
fingrafaraskanna, enda vélin helst seld sem fyrirtækjafartölva. Mér
fannst snertiflöturinn á vélinni fullnæmur, en einfalt að stilla hann.
Rafhlaðan er gefin upp fyrir allt að hálfum sjöunda tíma og þó ég hafi
ekki þaulprófað það, þá er endingin þrælfín.
Í vélinni er DVD-drif fyrir einhverjar sakir, sem les og skrifar ótelj-
andi gagnasnið. Ekki skortir tengi á tölvuna, tvö USB 2.0 tengi
og eitt USB 3.0, HDMI-tengi, Minijack fyrir hátalara / heyrnartól
og hljóðnema / Line In og svo má telja. Það er líka VGA-tengi og
hægt að keyra aukaskjá í allt að 1920x1080 upplausn.