SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Síða 14

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Síða 14
14 24. júní 2012 Ástandið er eins ólíkt og hugs-ast getur. Ímyndið ykkur,foreldrar mínir með sex börnog þá voru engar barnabætur eða önnur þjónusta. Mamma saumaði hverja einustu tusku á okkur. Við vorum með búskap, í þá daga tíðkuðust vinnu- býtti og því var skipt á vinnu og/eða vörum til að fólk hefði í sig og á,“ segir Jón Hannesson þegar hann er beðinn um að bera saman gamla og nýja tíma. Jón er fæddur 20. júní 1912, uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur hjónanna Hannesar Sigurðssonar á Brimhóli og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður. Eigin- kona Jóns var Halldóra Brynjólfsdóttir frá Þykkvabæjarklaustri í Álftafirði en hún er látin. Jón segist ekki hafa haldið sérstaklega upp á afmælið, „Nei, ekki neitt. Það tek- ur því ekki, það hefur aldrei verið neitt afmælisvesen á mínu fólki.“ Sér um sig sjálfur Blaðamanni bregður við þegar hann sækir Jón heim á heimili hans í Kópa- vogi, það gæti enginn gert sér í hugar- lund að Jón verði hundrað ára í næstu viku svo vel lítur hann út. „Ég lifi kóngalífi, elda fyrir mig sjálfur, sé um innkaup, þvæ af mér, ég hugsa um mig að öllu leyti sjálfur. Ég keyri bíl og heim- sæki vini og ættingja. Ég nenni ekki að kvabba í kerfinu, ég ætla ekki á fjóra fætur fyrir þá. En það eru margir sem eiga bágt og eru ekki í sömu stöðu og ég. Mér er hinsvegar engin vorkunn,“ segir Jón, greinilega hugsi yfir stöðu aldraðra hér á landi. Þegar Jón er spurður hvenær hann hafi hætt að vinna segist hann enn að. Jón er með verkstæði í bílskúrnum sem er fullur af verkfærum. Þar dyttar hann að hinu og þessu m.a. fyrir sjálfan sig og fjölskyldu sína. Hann býður blaðamanni inn í bílskúrinn og sýnir hillu sem hann er að smíða fyrir börnin sín til að hafa í sumarbústaðnum. „Ég skila fullu dags- verki enn þann dag í dag. Ég sé um mig sjálfur og gott betur en það,“ segir Jón og gott fólk, hafið í huga að maðurinn er fæddur árið 1912, 100 ára gamall. Jón er með gróðurhús í garðinum og aðspurður segist hann ekki vinna neitt sérstaklega mikið í garðinum. „Í gróð- urhúsinu er ég að rækta plöntur fyrir börnin mín til að koma fyrir í sumar- bústaðnum.“ Þegar hér er komið við sögu gantast blaðamaður með að hann trúi ekki að Jón sé nýorðinn 100 ára. Jón skellir upp úr, fer fram í stofu og sækir veski sitt og réttir undirrituðum ökuskírteini sitt sigri hrósandi. Stendur eins og stafur á bók, Jón Hannesson fæddur 20. júní 1912. Allir lögðust á eitt Talið berst að uppvextinum í Vestmannaeyjum. Jón segir að gott hafi verið að alast upp þar, auðvitað hafi ein- angrunin verið töluverð og allur hugs- unarháttur hafi miðast við sjóinn. „Hinsvegar var pabbi með búskap, bæði kýr og hesta. Svo vann maður þessi verkamannastörf. En í uppvextinum urðu allir að hjálpa til við búskapinn. Ég fór á vélstjóranámskeið 1929 og ætlaði að vera við sjó en varð svo sjóveikur að ég gafst upp eftir eina vertíð. Sá sem ekki gat verið sjómaður í Eyjum á þessum tíma var ekki hátt skrifaður.“ Til marks um það hve tímarnir hafa breyst minnist Jón þess að hann hafi nánast alist upp á saltfiski. „Fæðið var mjög einhæft, saltfiskur og kartöflur með lýsi út á til að drýgja tólgina.“ Jón segir að húsakostur hafi verið þröngur, svefnpláss á háaloftinu og við þrjú til fjögur í herbergi, tveir um hvert rúm og það ekki þótt sérstaklega mikið tiltöku- mál. „Amma bjó einnig hjá okkur í 20 ár rúmliggjandi. Svo lifði ég spænsku veik- ina. Allir lögðust heima hjá okkur og læknirinn í Eyjum sagði að mamma hefði verið eina ófríska konan í Eyjum sem lifði veikina af.“ Jón segir að lítill tími hafi verið fyrir afþreyingu og áhugamál í Vest- mannaeyjum í uppvextinum. „Foreldrar mínir höfðu nú ekki mikið milli hand- anna og maður var ekki vel séður ef maður ætlaði að hella sér út í íþróttir eða slíkt. Ég þurfti að vinna og leggja til frá unga aldri, hjálpa til við búið. Ég man að ég var mikið í fugladrápi, helst lunda.“ Þegar Jón er spurður út í eftir- minnilegar minningar úr æsku fer hann á mikið flug. „Ég var 14 ára þegar ég datt í sjóinn. Á þeim árum hentu sjómenn alltaf aflanum úr árabátunum og upp á bryggjuna en alltaf fór einhver fiskur í sjóinn. Því stunduðum við það strák- arnir að veiða upp það sem fór í sjóinn. Einn morguninn datt ég út í, auðvitað ósyndur. Pabbi fór með mig meðvitund- arlausan til læknisins og hann sagði þetta vonlaust, „ætti bara að snáfa með mig í líkhúsið“. Eftir fjögurra tíma lífgunar- tilraunir rankaði ég við mér. Læknirinn sagði að ég fengi allavega svæsna lungnabólgu en ég fékk ekki einu sinni kvef. Ég man að ég labbaði niður á höfn og ætlaði að ná í fiskana tvo sem ég hafði náð áður en ég datt út í en var frekar svekktur þegar ég uppgötvaði að það var búið að hirða þá,“ segir Jón og hlær. Gosið skelfileg reynsla Jón bjó í Vestmannaeyjum ásamt fjöl- skyldu sinni fram að eldgosinu. Hann segir gosið hafa verið hræðilega lífs- reynslu, hann óski engum að þurfa að ganga gegnum slíka reynslu. „Það var illa farið með okkur, maður lenti ekki í neinum dúfnahópi við að koma upp á land. Við fjölskyldan vorum á flækingi, bjuggum m.a. hjá systur minni á Há- vallagötu 15 um tíma. Maður var inni á öðrum, það var engin hrifning yfir því að fá mann. Margir upp á landi héldu að maður væri bara að koma í skemmti- túr.“ Jón og fjölskylda hans ílengdust á höf- uðborgarsvæðinu og hann hefur búið í Kópavogi allar götur síðan. „Heimili okkar í Eyjum fór undir ösku og var dæmt ónýtt. Ég verð að segja að það vantaði ýmislegt upp á þessa viðlaga- stjórn, einhverja hugsun,“ segir Jón og er heitt í hamsi. „Okkur voru dæmdar bætur fyrir húsið, svo finna þeir út að þeir sem flytja ekki til Eyja aftur fái ekki bæturnar borgaðar út fyrr en eftir tvö ár 100 ára í fullu fjöri Hann býr einn, keyrir bíl, verslar inn, eldar og þiggur litla sem enga utanaðkomandi hjálp. Hinn aðdáunarverði Jón Hannesson fagnaði hundr- aðasta afmælisdegi sínum þann 20. júní. Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.