SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 18

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 18
18 24. júní 2012 Segja má að Carl Hahn hafi lagtgrunninn að velgengni Volks-wagen á okkar tímum. Hahn reifVolkswagen upp í Bandaríkj- unum á sjötta og sjöunda áratug tutt- ugustu aldar og var stjórnarformaður bílaframleiðandans í 11 ár, frá 1982 til 1993. Hann hefur ekki slegið slöku við síðan þótt sestur sé í helgan stein og orð- inn sé 86 ára gamall. Hann sinnir góð- gerðarmálum og situr í stjórnum fjölda fyrirtækja, þar á meðal á Íslandi. „Það var á mínum yngri árum, 1959,“ segir Hahn og fær glampa í augun við að rifja upp þegar hann opnaði Ameríku fyrir Volkswagen og kom Bjöllunni á markað þar í landi með einhverjum óhefðbundnustu auglýsingum, sem sög- ur fara af. „Ég kom til Bandaríkjanna og gekk í hinn stórkostlega skóla þess lands í hlutverki sölumanns í starfi og kynntist hinum risavaxna bandaríska markaði. Bandarískur bílaiðnaður var þá í far- arbroddi í heiminum, Bandaríkin voru kraftmikil, Bandaríkin voru velmegandi og skuldlaus þrátt fyrir heimsstyrjöldina. Þetta var einnig frábær tími fyrir mig vegna þess að ég fann bandaríska konu og stofnaði bandaríska fjölskyldu. Þar við bættist að við náðum góðum árangri hjá Volkswagen og ég var því mjög ham- ingjusamur þar.“ Hahn kvæntist Marisu Traina, sem er mágkona metsöluhöfundarins Danielle Steel, og eignuðust þau fjögur börn í Bandaríkjunum. Þegar Hahn sneri aftur til Evrópu var frami hans skjótur. „Ég var enn ungur þegar ég kom til baka,“ segir hann. „Eftir stríðið fengum við, sem lifðum af, sérstakt tækifæri. Eftir tíma minn í Bandaríkjunum komst ég strax á toppinn. Fyrir mig var það einnig mjög skapandi tími. Tími bjöll- unnar var að renna út og við vorum að byrja að vinna að algerlega nýrri fram- leiðslu og nýrri markaðsnálgun.“ Þar á Hahn við tegundirnar Golf og Passat, sem enn eru í fararbroddi hjá Volkswagen. „Síðan lenti ég hins vegar upp á kant varðandi aðferðir og var hent út,“ segir hann. Lagði grunninn að stöðu VW í dag Hahn fór þá til Continental, sem meðal annars framleiðir hjólbarða. Fyrirtækið óx og dafnaði undir hans stjórn og ekki leið á löngu áður en Volkswagen náði í hann aftur. „Ástæðan var líkast til sú að komið hafði í ljós að hugmyndir mínar um að vinna fleiri markaði höfðu reynst réttar. Ég fylgdi þeim síðan eftir. Eitt skipti þar mestu máli. Bílaiðnaðurinn var á mjög þjóðlegum nótum á þessum tíma. Ég Evrópuvæddi Volkswagen og hnatt- væddi síðan. Nú hef ég hins vegar verið á eftirlaunum um langan aldur og sinni Guði og heiminum.“ Volkswagen er nú einn helsti bíla- framleiðandi heims og ekki fjarri lagi að segja að Hahn hafi lagt línurnar að þeirri velgengni. „Við bjuggum til innviðina og ferlin fyrir veröldina í dag og á morgun,“ segir hann og vísar til hnattvæðingar, áhersl- unnar á að opna Kína og fleiri þátta. „Á þessum tíma var hins vegar tekin mikil áhætta og einnig kom fram hörð gagn- rýni, en eins og nú hefur komið á daginn náðum við miklum árangri þótt þá hafi allar tölur verið lægri. Eftirmenn mínir hafa náð fordæmalausum tölum í Evrópu og brátt í heiminum öllum. Volkswagen var á núllpunkti eftir tapið í stríðinu og er nú í fyrsta sæti á mörgum sviðum. Auðvitað er ekki lykilatriði hvort við er- um í fyrsta, öðru eða þriðja sæti, en að minnsta kosti er hagnaður í rekstrinum og við stöndum tel ég mjög vel hvað varðar vöxt auk þess sem við njótum virðingar. Án hennar er ekki hægt að ná árangri. Þá vorum við alltaf, alveg frá tímum bjöllunnar, í hlutverki sendiherra Þýskalands. Það var gleðiefni að bjallan skyldi verða að slíku tákni um end- urreisn Þýskalands sem friðsamrar þjóð- ar með sterka stöðu í viðskiptalífi heimsins. Það er auðvitað nokkuð sér- stakt að við vegna hlutverks okkar í efnahagslífinu erum neydd til að taka að okkur forustuhlutverk í Evrópu gegn vilja okkar vegna sektarkenndar okkar, sem ég tel að við höfum enn og það með réttu, þótt nú sé komin ný og yngri kyn- slóð.“ Samruni Evrópu forsenda Hahn segir að hvað sem því líði gegni Þýskaland sérstöku hlutverki innan Evr- ópusambandsins vegna viðskipta- og efnahagsstyrks auk þess að vera stórt í samanburði við hin aðildarríkin. „Hins vegar má ekki líta fram hjá því að fyrir 120 árum bjuggu í Þýskalandi 7% af jarðarbúum. Eftir nokkur ár verðum Skuldavandi ekki leystur með skuld- setningu Sterk staða Volkswagen á að mörgu leyti rætur að rekja til ákvarðana, sem teknar voru þegar Carl Hahn stjórnaði fyrirtækinu á níunda ára- tugnum. Hahn sér ógrynni möguleika fyrir Evr- ópu til að vinna sig út úr kreppu og atvinnuleysi í krafti vaxtar í heiminum, en telur lykilatriði að samruni Evrópu haldi áfram. Íslendingum segir hann hins vegar að sé best borgið utan Evrópu- sambandsins ætli þeir að nýta sérstöðu sína og auðlindir til fulls. Karl Blöndal kbl@mbl.is Carl H. Hahn stjórnaði Volkswagen í 11 ár. „Við bjugg- um til innviðina og ferlin fyrir veröldina í dag og á morgun,“ segir hann þegar hann ræðir ár sín við stjórnvöl fyrirtækisins. ’ Þess vegna er nú svo mikilvægt að við lát- um ekki evruna verða til þess að við förum út af sporinu í samruna Evrópu ef við viljum gegna hlutverki í heimsskipan morgundagsins – hlutverki, sem við getum ekki gegnt sem stakar þjóðir.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.