SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 19

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 19
24. júní 2012 19 við, þökk sé fæðingartíðni, sem er í al- geru mótvægi við frjósemi Íslendinga, 0,7% jarðarbúa,“ segir hann og hlær. „Þar sem sama þróun virðist vera að eiga sér stað víðast hvar í Evrópu er fyr- irsjáanlegt að íbúar álfunnar allrar verði brátt 6-7% jarðarbúa. Þess vegna er nú svo mikilvægt að við látum ekki evruna verða til þess að við förum út af sporinu í samruna Evrópu ef við viljum gegna hlutverki í heimsskipan morgundagsins – hlutverki, sem við getum ekki gegnt sem stakar þjóðir.“ Hahn kveðst í þessum efnum vera að tala um samruna á öllum sviðum. „Samvöxturinn þarf að eiga sér stað í viðskiptum og hefur gert það að mörgu leyti,“ segir hann. „Samvöxtur fólksins er orðinn mun meiri en stjórnmála- mannanna. Það er engin úlfúð lengur, það hafa orðið kynni með friðsamlegum hætti, sem er stórkostlegt því að Evrópa er rík að menningu, náttúru og öllu því, sem hægt er að hugsa sér. Það mikilvæga fyrir Evrópu er að við eigum þúsund ára gamla sameiginlega, kristilega menn- ingu. Hún batt okkur meira saman áður en hún gerir nú, en er engu að síður mikilvægur þáttur fyrir framtíð okkar. En nú er evran orðin að hættu vegna þess að af léttúð var of mörgum löndum hleypt inn of hratt og það þarf að vinna á henni.“ En hversu mikilvægt telur hann að evran haldi velli. „Ef evran hryndi myndi vissulega koma bakslag í samruna Evrópu,“ segir hann. „Reglan er sú í sögunni að slíkur samruni hefur verið afleiðing stríðs. ná saman með friðsamlegum hætti eins og við hófumst handa við eftir stríð hefur skilað okkur vel á veg og við getum verið mjög stolt af árangrinum. Þess vegna verðum við tel ég að bjarga evrunni. Það snýst ekki um evruna sem slíka heldur um það bakslag í samruna Evrópu sem myndi hljótast af falli hennar.“ Hahn segir að spurningin um það hvort Grikkland eigi að vera áfram innan evrunnar eða fara út úr henni sé mjög flókin. „Ég vil heldur ekki svara henni vegna þess að ég vil ekki auka á glundroðann og taugaveiklunina með ummælum á Ís- landi, þótt ósennilegt sé að íslenska pressan sé lesin í Þýskalandi, en ef ég tala tæpitungulaust skapast sú hætta að verkefnið verði erfiðara fyrir stjórn- málin. Þegar nýjum kenningum er dag- lega varpað inn á markaðstorg hug- myndanna gerir það stjórnmálamönnum einnig erfiðara fyrir. Eins og lög- reglustjórinn í Berlín sagði þegar Frakkar komu undir forustu Napóleons: „Frum- skylda borgarans er að halda ró sinni.“ Við verðum sem Evrópubúar einfaldlega að gera okkur grein fyrir því hver raun- veruleikinn er. Við megum ekki reyna að gera okkur þetta létt því ég hef áhyggjur af að þá munum við gera illt verra. Ef við ætlum að efna til skulda til að hjálpa Grikkjum munum við gera þeim þjóðum erfiðara fyrir, sem steypa sér í þessar skuldir og skulda nú þegar nóg. Þær eru ekki beinlínis táknmyndir sparseminnar. Meira að segja Þýskaland hefur nægar skuldir. Því gengur ekki að við skuld- setjum okkur til að losna við skuld- irnar.“ Peningaprentun kemur ekki í stað sparnaðar Hann telur hins vegar að menn verði að læra af evrukreppunni. „Við verðum að gera borgurunum grein fyrir því að lífskjör þeirra séu betri en nokkru sinni hafa náðst áður á þessari jörð,“ segir hann. „En ef þeir ætla að auka lífsgæðin enn með skuldsetningu er það sorglegt fordæmi, sérstaklega gagn- vart þeim kynslóðum, sem endurreistu Evrópu úr rústunum og voru mun hóg- værari og sparsamari í peningamálum sínum. Þess vegna verðum við að sjá til þess að evran falli ekki og ég er þess full- viss að allt verði gert til þess þótt ágrein- ingur sé um leiðir. Þetta er helsti vand- inn í dag því að peningaprentun getur ekki komið í staðinn fyrir að spara og vinna hörðum höndum. Einstaklingar verða líka að spara og leggja hart að sér.“ Aldrei áður jafnmikið óunnið í heiminum Hahn er þeirrar hyggju að atvinna sé ekki vandamál. Um allan heim sé eft- irspurn eftir evrópskri framleiðslu og vinnu, segir hann, og nefnir tækifærin, Morgunblaðið/Eggert Carl Hahn er varaformaður orkufyrirtækisins Reykjavík Geothermal, sem er með starfsemi víða um heim, allt frá Mexikó til Indlands. „Ég hef upplifað það hjá fyrirtækinu Reykjavík Geothermal hvað hér er frábært fólk á plani sem er alþjóðlega viðurkennt. Maður getur verið stoltur af því einu að sitja í stjórn slíks fyrirtækis. Það hefur verið mér mjög dýrmætt að fá að tengjast Íslandi. Það hefur ver- ið áskorun að fást við orkumálin, en ég nýt þess að koma hingað og er í mjög góðum tengslum við stjórnendur líkt og við hefðum alltaf þekkst.“ Í stjórn Reykjavík Geothermal

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.