SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 20

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 20
20 24. júní 2012 sem liggi í uppbyggingu innviða í Suður- Ameríku, Rússlandi og ekki síst Asíu. „Aldrei áður hefur jafnmikil vinna verið óunnin í heiminum,“ segir hann. „Ekki gleyma því að heimurinn þarf að búa sig undir áttamilljarðasta jarð- arbúann og þá verður stutt í þann níum- illjarðasta. En blekkingin og hin auðselj- anlega pólitíska vara, sem er kynnt fram á sjónvarpsskjám, nefnist: „Við prentum peninga.“ Og kannski er auðvelt að ná til fólks, sem ef til vill hefur ekki nógu góð- an menntunargrunn og ekki gengur nógu vel, með því að segja að í stað þess að spara aukum við skuldirnar. Í heiminum er nóg af tækifærum fyrir Evrópu. Dollarinn er undir 1,25 evrum og því eru frábær skilyrði fyrir útflutnings- vörur okkar. Með aukinni vinnu verður til meiri hagnaður og auknar tekjur af tekjuskatti, sem gerir ríkinu kleift að gera meira. Síðan þarf að þvinga ríkið til að halda aga.“ Hægt að vinna bug á atvinnuleysinu Atvinnuleysið er einn helsti vandi Evr- ópu um þessar mundir, sérstaklega í jað- arlöndum á borð við Grikkland, Ítalíu, Spán og Írland þar sem jafnvel helmingur ungs fólks er án atvinnu. „Það er hægt að vinna bug á atvinnu- leysinu,“ segir hann. „Þegar evran er í 1,25 dollurum er það skref í rétta átt. Við þurfum að átta okkur á því að þegar verksmiðjur Volkswagen ná því að starfa 320 daga á ári til þess að hraða uppbygg- ingu þar í landi ættum við að geta minnt okkur á að hver og einn verður að leggja harðar að sér þegar hann skuldar og það á líka við um þjóðir. Um allan heim er mikið unnið, en hlutfallslega minnst í Evrópu. Um leið eru menn hlaðnir skuldum. Það fer ekki saman. Þess utan er nauðsynlegt vegna þess að fólksfjöld- inn skreppur saman að vera vakandi vegna þess að hlutfallslega þurfa stöðugt færri að næra fleiri aldraða. Niðurstaðan getur aðeins verið sú að hinir virku vinni alltaf meir og meir og eignist vonandi einhvern tímann fleiri börn.“ Hahn segir að atvinnuleysi ungs fólks, sem hafi gengið menntaveginn og í raun gert allt rétt, en fái síðan ekkert að gera, sé skelfilegt. „Þar verður mér hugsað til Spánar, en þau lönd, sem svona er fyrir komið, verða að gera sig samkeppnishæfari,“ segir hann. „Ég nefndi hér áðan for- dæmalausan útflutning Þýskalands, sem gæti meira að segja flutt meira út til Asíu, og það sama á við um þessi lönd. En þá þyrfti kannski að koma til það, sem hef- ur gerst á Íslandi. Þegar ekki var vinnu að hafa í Póllandi fór fólk til útlanda. Guði sé lof er einnig nóg af hámennt- uðum Spánverjum, sem nú læra þýsku og koma til Þýskalands. Ég held að við verðum einnig að venja okkur við það að það er hluti af Evrópuvæðingunni að búa erlendis og að dvöl í útlöndum auðgar líf ungs fólks, sérstaklega þegar það er vel menntað, og getur haft mjög eflandi áhrif. Þetta á einfaldlega að segja op- inskátt einmitt til þess að draga úr hræðilegum aðstæðum eins og atvinnu- leysi ungs fólks á Spáni í stað þess að kvarta og kveina. Og í Þýskalandi hefur dregið svo úr fæðingum að þar er auðvelt að fá tækifæri. Þetta eru hlutir, sem passa ekki í áætlanir og stefnuskrár stjórn- málaflokka, en eins og einn af for- ustumönnum kínverska komm- únistaflokksins sagði eitt sinn, að í upphafi tuttugustu aldar hafi verið rétt að láta Marx og Engels vísa veginn, en nú láti hann veruleikann í heiminum vísa sér veginn. Stjórnmálamenn verða að láta hina raunverulegu stöðu í heiminum ráða för, en síður hinar gömlu flokks- stefnuskrár gærdagsins, því að við lifum þegar í heimi morgundagsins. Það er stóra breytingin.“ Stjórnmál forðast veruleikann Hahn kveðst telja að stjórnmál í Evrópu séu enn of stað- og flokksbundin. „Auðvitað kýs hver kjósandi í sínu héraði, en án raunsæs mats á stöðunni og með því að bíða alltaf eftir prentvélinni og nýjum skuldum munum við aldrei leysa vanda hins mikla atvinnuleysis á Spáni. Öll þurfum við í Evrópu að gera okkur far um að efla menntun og auka samkeppnishæfnina og þá verður ekkert atvinnuleysi. Í Þýskalandi sýndum við fyrir tilstilli skynsemi stéttarfélaganna að hægt er að reka skynsamlega launastefnu og draga þannig úr atvinnuleysinu. Það er hægt.“ Hann vísar einnig til þess árangurs, sem náðst hefur í Kína, þar sem hag- vöxtur hefur verið í kringum 10% og verður væntanlega 8% á þessu ári. „Þeg- ar ég var ungur nam aukning í bílafram- leiðslu í Kína 10 til hundrað þúsund bíl- um á ári. 600 þúsund bílar voru smíðaðir í Kína árið 2003. Í fyrra voru þeir 18,5 milljarðar, sem er sexföldun frá árinu 2003. Ef getan til að framleiða bíla í Kína þarf að tvöfaldast á næstu tuttugu árum – að ekki sé talað um Suður-Ameríku og Rússland og svo framvegis – getum við rétt ímyndað okkur hvað það þýðir í vinnu, í störfum, sem krefjast hárrar menntunar. Það eru engin takmörk og hverjir eiga að manna öll þessi for- ustustörf? Kínverjar geta það ekki. Þarna eru gríðarleg tækifæri og grípi maður ekki tækifærin þegar maður er ungur er virkilega illa fyrir okkur komið. Ég tel að ávinningurinn, grípi maður tækifærin, sé mikill og góður. Sá sem nú finnur vinnu erlendis, segjum í Þýskalandi, mun einn góðan veðurdag snúa reynslunni ríkari heim. Margir snúa heim þótt aðrir verði um kyrrt og stofni fjölskyldu.“ Hahn segir að Evrópa bjóði upp á þennan hreyfanleika og hann nái ekki aðeins til íbúa í Austur-Evrópu, heldur Evrópu allrar. „Þennan möguleika ættu allir að nýta sér, en stjórnmálamenn, sem eru að reyna að ná kjöri, fást of lítið um þessi mál. Þeir eru á atkvæðaveiðum, en hafa ekki sett sér það verkefni að gera fólki grein fyrir því að það hafi lifað um efni fram og gert þau mistök að skuldsetja sig og fyrir það verði að borga.“ Hahn átti þátt í að bjallan sló í gegn í Bandaríkjunum. Bjöllueigendur koma enn saman. Volkswagen rúg- brauð náði mikl- um vinsældum á sínum tíma. Reuters ’ Ísland er með fádæm- um ríkt, en sem lítil þjóð getur landið náð hvað bestri ávöxtun þess- arar auðlegðar með því að vera sjálfstætt, en ekki 28. landið í Evrópusambandinu … Kínverski auðmaðurinn Huang Nubo hefur hug á að leigja Grímsstaði á Fjöllum. Það hefur vakið umræðu á Íslandi og víðar og hefur verið sett í samhengi við viðleitni Kínverja til að seilast til áhrifa víða um heim. Telur Hahn ástæðu til tortryggni í garð Kínverja? „Ég er ekki á nokkurn hátt tortrygginn í garð Kínverja,“ segir hann. „Ég hef allt mitt líf átt saman við Kínverja að sælda og á lykiltíma í forustu Volkswagen starfaði ég með æðstu ráðamönnum Kína. Ég ber mikið traust til þeirra og því miður getur engin stjórn í nokkru öðru landi sýnt fram á annan eins hagvöxt og stjórn Kína auk þess hvað hún hefur komið ár sinni fyrir borð af miklum klókindum á alþjóðlegum vettvangi. Ef kínverskur borgari hefur hins vegar hug á að kaupa eitthvað hér þarf að skoða mjög rækilega hvað hann hyggst fyrir. Ég hef auðvitað enga skoðun á málinu, en ég skil að ís- lensk stjórnvöld vilji fara yfir málið og að Íslendingar spyrji sig hvað manninum gangi til. En Kína er nú þungamiðja heimsins. Flestir gleyma því að þannig hefur það verið mestalla mannkynssöguna. Kína hefur alltaf verið skapandi, haft öfluga menningu og verið leiðandi í vísindum. Þannig verður það um ófyrirsjáanlega framtíð og því gleður mig að forseti ykkar hafi svona gott samband við Kína. Það er gott þegar 320 þúsund manna þjóð nýtur vel- þóknunar í landi 1,3 milljarða manna – en maður þorir varla að velta fyrir sér hvað myndi gerast ef kínverskir ferðamenn uppgötvuðu Ísland, væntanlega myndi skapast neyðar- ástand.“ Hahn stóð fyrir innreið Volkswagen í Kína þar sem fyrirtækið hefur haslað sér völl. AFP Kína er þungamiðja heimsins

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.