SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 21
24. júní 2012 21
Aðhald og niðurskurður hefur orðið
kveikjan að mótmælum víða í Evrópu og
Francois Hollande, nýkjörinn forseti
Frakklands, byggði stjórnmálabaráttu
sína á því að aðhaldsaðgerðum yrði að
fylgja hvati og innspýting til að glæða
efnahagslífið á ný.
„Ég myndi segja Hollande að aug-
ljóslega hafi hann unnið kosningasigur
með þessari gagnrýni, en þar með hafi
hann ekki skapað forsendur til að gera
þær umbætur, sem þarf að gera í Frakk-
landi og einnig að hluta til á Ítalíu, til að
þessi stórkostlega og hámenntaða þjóð
verði jafn samkeppnishæf og sveigjanleg
og Þýskaland – eða, svo maður noti það
hræðilega orð, Bandaríkin, þótt þar sé
mikil gagnrýni. Einnig væri hægt að
nefna Kína eða Brasilíu. En við getum
ekki bætt við skuldum þegar við erum
ofhlaðin skuldum. Litli maðurinn fengi
það ekki og það sama ætti að gilda um
þjóðir, hversu stórar, sem þær eru. Það
væri auðvitað hægt að nota hið fræga
meðal og stela sparifé heillar kynslóðar
og láta það fuðra upp í verðbólgu. Það er
þrautreynd leið því þá er hinum skuld-
settu ekki refsað, þeir verða horfnir veg
allarar veraldar, en síðan þarf fyrir al-
vöru að grípa til harðra aðgerða og þá
munu allir standa klæðlausir á berangr-
inum.
Því get ég aðeins sagt við Frakka, sem
eru miklir hugsuðir og kunna að draga
ályktanir – ég lærði og starfaði í Frakk-
landi og elska landið eins og Ítalíu – en ég
verð að segja að það þarf meiri kjark í
pólitíkina til að draga fram hina raun-
verulegu stöðu og reka áróður fyrir
raunverulegum meðulum, en ekki ein-
hverjum sykri.“
Hefði aldrei sótt um aðild
Hahn ræðir nauðsyn aukins samruna í
Evrópu og talar um smæð Þýskalands í
því sambandi, en þegar Ísland er nefnt
tekur hann annan pól í hæðina.
„Ég hefði aldrei sótt um aðild að Evr-
ópusambandinu í ykkar sporum,“ segir
hann. „Ísland er langt í burtu. Ísland er
lítið, en þó stórt í sjálfstæði sínu vegna
mikilvægrar stöðu sinnar. Ísland er með
fádæmum ríkt, en sem lítil þjóð getur
landið náð hvað bestri ávöxtun þessarar
auðlegðar með því að vera sjálfstætt, en
ekki 28. landið í Evrópusambandinu, sem
á í slíkum vandræðum með sjálft sig og
getur örugglega ekki sett vandamál Ís-
lands á oddinn. Ef maður horfir raunsætt
á málið – og hér er ekki um að ræða
ásakanir á hendur neinum á Íslandi – er
rétt að segja eins og Vaclav Klaus í Prag:
„Við göngum ekki í evruna.“ Þegar Evr-
ópa nær að komast fram á við, skipu-
leggja sig og reka öfluga viðskipta- og
fjármálapólitík og þá um leið evrupólitík
verður hægt að taka inngöngu til athug-
unar, en í dag er ljóst að hið ótrúlega
ríkidæmi Íslands, sem ekki er bara fólgið
í 720 þúsund ferkílómetrum af hafi til
fiskveiða og miklu pólitísku sjálfstæði og
styrk og hagkvæmri stöðu eins og kem-
ur fram í því að kínverskir ráðamenn
leita ráða hjá og heimsækja núverandi
forseta, sem alls staðar kemur að opnum
dyrum, yrði ekki til framdráttar með
sama hætti og yrði Ísland enn eitt aðild-
arríki Evrópusambandsins. Þá myndu
kínverskir valdamenn ekki leita hing-
að.“
Ísland í framúrskarandi stöðu
Hahn kvaðst telja að Íslendingar væru
vegna mikilvægrar legu landsins, sjálf-
stæðis, góðrar menntunar, fæðingartíðni
og góðs árangurs í að vinna á fjár-
málakreppunni í framúrskarandi stöðu
til að selja hérlenda framleiðslu og þjón-
ustu.
„Þess utan furða ég mig á því hvernig
land með 320 þúsund íbúum fer að því
að reka öll þessi sendiráð, eiga alla þessa
stjórnmálamenn, vera með ríkisstjórn,
hvort sem hún er talin góð eða slæm,
um það get ég ekki dæmt, en landið
gengur, viðskiptalífið virkar og fólkið er
vel menntað. Það er ótrúlegt að svo lítið
land sé í aðstöðu til þess að reka flug-
félag með góðum árangri og alþjóðlegan
flugvöll, fiskiskipaflota og landhelg-
isgæslu og halda við svo umfangsmiklu
gatnakerfi. Sennilega hefur ekkert land í
heiminum lagt jafnmarga kílómetra af
götum á hvern íbúa og Ísland.“
Hahn segir að út frá tölfræðinni hljóti,
sama hvert litið sé í íslensku samfélagi,
að mæða mikið á, en það sé ekki að sjá.
„Þegar ég skoða mig um í Reykjavík
og sé þessi grænu svæði og mikið af ný-
byggingum, sem bera fjölbreytni í húsa-
gerðarlist vitni, anda að mér hreinu
loftinu og velti fyrir mér þeirri fyr-
irmyndarstöðu, sem Ísland nýtur í um-
hverfismálum og hvernig stjórnmálin
leitast við að bæta hana með því að ýta
undir notkun bíla, sem ekki blása
koltvísýringi út í andrúmsloftið, get ég
ekki annað sagt en frábært.
Enginn áttar sig á því þegar rætt er um
Ísland hvað hér búa fáir, það er einfald-
lega land með vægi í huga fólks. En þið
eruð í góðri stöðu bæði hvað varðar vatn
og orku og það opnar möguleika í Kína,
þar sem vatnsbúskapur er hvað erf-
iðastur í heiminum, en einnig í Afríku
og víðar þar sem Íslendingar geta lagt
sitt af mörkum til að bæta hlutskipti
fólks.“
Reuters
· Brúðkaup
· Fermingar
· Árshátíðir
· Afmæli
· Ættarmót
· Útskriftir
· Erfidrykkjur
Sími 551 4430 · laekjarbrekka.is
Erum staðsett
í hjarta
Reykjavíkur
Bjóðum upp á
veislusali
fyrir allt að
100 manns
Litlabrekka
Kornhlaðan
Er veisla í vændum?