SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Side 31

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Side 31
24. júní 2012 31 Hljómsveitin Dúkkulísur fagnar þrjátíu áraafmæli sínu í ár. Erla S. Ragnarsdóttir leiðirhljómsveitina sem hún segir vera orðna svolítiðspari þar sem þær stöllur sinni nú ýmsu öðru en því að vera í hljómsveit. Erla er sagnfræðingur að mennt og kennir sögu við Flensborgarskólann í Hafnarfirði ásamt því að vera for- maður félags sögukennara. Hún sinnir einnig dagskrárgerð á RÚV, er nýfarin að stunda útivist og á vinkonu sem gerir hvað hún getur til að draga hana í golf. Það gengur þó lítið því Erla telur sig ekki hafa nokkurn tíma fyrir svo tímafrekt sport; fyrst þurfi að sinna börnum og búi áður en svo frjálslega sé farið með tímann. Erla segir að fátt toppi samkomur Dúkkulísanna. Hún segir að þær snúist jafnt um vináttu sem og tónlist. Stelp- urnar eru enn að semja og þrjú ný lög liggja á teikniborð- inu. Afmælisárið verður viðburðaríkt en Dúkkulísur ætla að opna sýningu og halda konuboð á Egilsstöðum, spila á Gærunni og halda allsherjar afmælistónleika á Kaffi Rósenberg í október. davidmar@mbl.is Teitur, sonur Erlu, á fótboltamóti með FH. Dúkkulísur spiluðu þegar opnað var á milli ganganna við Kárahnjúkavirkjun. Þær þekkja vel til fyrir austan enda flestar frá Egilsstöðum. Sagnfræðingurinn Erla Sigríður bregður hér á leik. Erla ásamt foreldrum sínum, Emilíu Sigmarsdóttur og Ragnari Ó. Stein- arssyni, fyrir framan Vívuna, draumabílinn. Dúkkulísur æfðu lengi í lýsisbræðslunni í Reykjavík og eru hér fyrir framan húsið. Tónleikar framundan Erla S. Ragnarsdóttir, söngkona Dúkkulísa, fagnar 30 ára afmæli hljómsveitarinnar. Hér er Erla prúðbúin í myndatöku árið 1974. Erla ásamt litlu systur sinni, Ragnhildi Helgu, á útskriftardeginum árið 1986. Hér má sjá Erlu ásamt Kjartani litla bróður hennar, árið 1978. Dúkkulísurnar Hildur Ásta Viggósdóttir, Adda María Jóhannsdóttir, Erla Sigríður Ragnarsdóttir, Harpa Þórðardóttir, Gréta Sigurjónsdóttir, Erla Bryndís Ingadóttir og Guðbjörg Pálsdóttir. Dæturnar Milla Ósk og Vala Rún ásamt tengdasyninum Víði Björnssyni. Myndaalbúmið

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.