SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Síða 36

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Síða 36
36 24. júní 2012 Ferðalög Pakistan er yfirleitt ekki efst íhuga fólks þegar kemur að þvíað skipuleggja sumarfríið.Víðsigldir eru Íslendingar, það skúmaskot heimsins finnst vart þar sem við höfum ekki drepið niður fæti. Og fyrir fjallgöngumenn er Pakistan eins og aldingarður þó sérílagi norðurhlutinn sem kallast Gilgit Baltistan. Þar eru til lögheimilis fimm af þeim fjórtán 8.000m fjallrisum sem rísa hæst á plán- etunni okkar. Sagan Það er kapítuli í þroskasögu flestra ís- lenskra fjallgöngumanna að fjöllin okk- ar þyki ekki verðugur vettvangur til lengdar. Það má finna endalaus verk- efni hér enda nóg af fjöllum. Næstu skref íslenskra fjallgöngumanna liggja oftast í Alpana og er Mont Blanc gjarn- an endapunkturinn á því ferli enda 4.848 m hátt og hæsta fjall Vestur- Evrópu. Þegar Ölpunum sleppir kennir margra grasa. Kilimanjaro 5.895 m er vinsæll áfangastaður, Anconcacu 6.960 m er hæsta fjall Suður-Ameríku og De- nali 6.194 m hæsta fjall N-Ameríku. Þó þau krefjist ekki mikillar klifurtækni hafa þau þó reynst mörgum vel þjálf- uðum manninum ofviða. Það að klífa fjöll sem eru 4.000 m eða hærri er nefnilega ekki á allra færi. Þegar komið er í mikla hæð uppgötva menn fljótt hvort þetta er rétti vett- vangurinn fyrir þá eða ekki. Ég held að mikilvægasti þátturinn, fyrir utan þunna loftið, er þrýstingslækkunin sem fylgir mikilli hæð yfir sjávarmáli. Flest okkar ala manninn á láglendi við sjáv- arsíðuna og hafa lagað sig að þeim loft- þrýstingi sem þar er. Sem dæmi má nefna að ég hef reynt að leggja fyrir mig köfun með döprum árangri. Þegar komið var á fimm metra dýpi var þrýstingurinn á höfuðið orðinn óbæri- legur og neðar varð ekki komist. Það er lán í óláni, að þessi vanhæfni á einu sviði getur hugsanlega verið kostur á öðru. Þegar komið er yfir 4.000 m er þrýstingsminnkunin farin að valda það miklum höfuðverkjum og vanlíðan að sumir verða frá að hverfa. Vitað er að augun þenjast út og fólk sem hefur far- ið í augnaðgerð á á hættu að missa sjónina í mikilli hæð. Þetta hefur einnig áhrif á aðra hluti líkamans svo sem lungun. Há fjöll heimsins eru því sýnd veiði en ekki gefin. Íslendingum hefur vegnað ágætlega á þeim en háfjallasaga okkar hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig. Í bernsku íslenskrar háfjallamennsku misstum við þrjá dáða drengi á Pumori-fjalli í Nepal. Við verðum að vona að sú bitra reynsla verði okkur lærdómur. Eftir því sem mér telst til hafa fimm Íslendingar klif- ið fjöll yfir 8.000 m, þar af ein kona. Það er ætlun mín að verða sá sjötti og ef að líkum lætur varla sá síðasti. Ef taldir eru upp þeir 8.000 m tindar sem klifnir hafa verið af Íslendingum eru þeir aðeins tveir, annars vegar Eve- rest 8.848 m og hinsvegar Cou Oyu 8.201 m og höfum við átt menn á tindi í fjórgang á hvoru fjalli fyrir sig. Fjallið Þriðja fjallið sem bætist í flóruna nefnist Broad Peak og er 8050 m, eins og fyrr segir. Það er í Karakorum fjallgarðinum og staðsett í Gilgit Baltistan sjálfsstjórn- arsvæði í norðurhluta Pakistans. Fjallið er afskekkt, umkringt skriðjöklum og í hrikalegasta fjallasal sem getur að líta hér á jörð. Á litlu svæði innan fjall- garðsins sem telst um 20 km í þvermál eru fjórir 8.000 m tindar ásamt ótal 7.000 m tindum. Þau eru svo afskekkt að enginn hafði barið þau augum og þau fengu ekki nafn fyrr en liðið var á nítjándu öldina. Þar var á ferð breski landmælingamaðurinn Thomas Montgomery sem mældi þau í um 200 km fjarlægð og gaf þeim númer frá K1 Á slóð- um K2 Árni Eðvaldsson hyggst gera atlögu að fjallstind- inum Broad Peak nyrst í fjallahéruðum Pakistan sem er 8.050 metra hár. Hann hefur áður klifið hæst tind Ama Dablam í Nepal, sem er 6.856 metrar. Árni hefur stundað fjallamennsku víða um heim frá 1990, hann er leiðsögumaður og var lengi á útkallslista undanfarasveitar Björg- unarsveitar Hafnarfjarðar. Hér lýsir hann und- irbúningnum fyrir fjallgönguna miklu. Árni í lóðréttu ísklifri. Broad Peak eða K3 er tignarlegur fjallstindur, 8.050 metra hár. Ljósmynd/Guðrún Hauksdóttir

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.