SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Síða 37

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Síða 37
24. júní 2012 37 til K5 og stóð K fyrir Karakorum. Broad Peak er þriðja hæst en næsti nágranni er sannkallaður nágranni frá helvíti, K2 sem rís 8.611 m. K2 er talið eitt af torkleifustu fjöllum jarðarinnar og hefur oft verið vettvangur mikilla mannrauna. Þar er einna hæsta dán- artíðnin, en á móti hverjum fjórum sem ná tindinum lætur einn lífið. Í sam- anburði telst Broad Peak barnaleikur og með öruggasta móti meðal 8.000 m fjalla. Leiðin að fjallinu liggur frá Skardu, þaðan sem er ekið á jeppum að síðasta byggða bólinu, Askhole. Þaðan hefst svo gangan að fjallsrótum og tek- ur um átta daga og er að mestu á hinum torfarna 62 km langa Baltoro skriðjökli. Það er mikilvægt að flýta sér hægt svo líkaminn nái að aðlagast minnkandi súrefni sem hæðinni fylgir. Líkaminn bregst við með því að fjölga rauðu blóðkornunum sem sjá um að flytja súrefni í vöðvana. Við þetta þykknar blóðið og nær síður til útlimanna sem eykur hættu á kali. Þetta reynir talsvert á líkamann sem á æ erfiðara með að brenna fæðunni sem innbyrt er, því talsvert súrefni þarf til að brenna nær- ingarefnunum sem halda líkamanum gangandi, og hann bregst við með því að ganga á vöðvamassann. Af þessu leiðir að maður verður sífellt mátt- farnari eftir því sem á líður. Ég hef reynslu af þessu sjálfur og tekur það líkamann talsverðan tíma að jafna sig. Þetta er þó vafalaust einstaklings- bundið. Það eru margir þættir sem ráða því hvort einstaklingur er hæfur til fjall- göngu af þessu tagi og er andlegi þátt- urinn sennilega sá mikilvægasti. Það er auðvelt að gefast upp í návígi við svo stórbrotna náttúru sem fjallgarðar af Leiðin upp á broad peak þessu tagi eru. Maður spyr sig ýmissa spurninga en skrekkurinn fer fljótt úr manni. Það hlýtur að hafa verið mögn- uð reynsla fyrir þá sem mættu fyrstir til leiks að kanna svæðið án þess að hafa hugmynd um hvað biði þeirra. Það er alltaf auðveldara fyrir okkur hin að feta í fótsporin. Hvað varðar aðstæður á svæðinu er erfitt að fjölyrða um það. Þetta er um þúsund kílómetrum norðar en Mont Everest og því talsvert kaldara. Sem dæmi má nefna að veðurathugun 1. júní sýndi 24 gráðu frost á tindi Everestfjalls eða sama kulda og í grunnbúðum Broad Peak í 4.800 metrum. Þá var hinsvegar 45 gráðu frost á tindi Broad Peak. Í Isl- amabad þar sem leiðangurinn hefst var 39 stiga hiti. Veðrinu var spáð hlýnandi og vonandi gengur það eftir. Leiðin Leiðin upp fjallið er á suðurhlið þess og til þess að gera ekki erfið en nær þó 50 gráðu halla. Það verður ekkert auka- súrefni með í för nema í neyð. Alls verða í hópnum sjö fjallgöngumenn frá ýmsum löndum. Leiðangurstjórinn Ben er að leggja í þriðja sinn til atlögu við fjallið eftir tvær árangurslausar til- raunir. Neðst er skriðjökull sem ekki fer miklum sögum af en talsverð hætta er á ís og grjóthruni og er mælst til þess að menn noti hjálm. Þar verða settar upp fyrstu búðir. Leiðin liggur upp á hrygg sem skagar út frá fjallinu. Hryggir eru oft öruggustu leiðirnar á fjöllin þar sem hrun og snjóflóðahætta er takmörkuð en á móti kemur að maður er ber- skjaldaður ef vind herðir. Ofarlega á hryggnum verða svo aðrar búðir og frá þeim er síðan erfiður kafli að þriðju og síðustu búðum þar sem stoppað er stutt og lagt í hann upp úr miðnætti til at- lögu við tindinn sjálfan. Undirbúningur fyrir ferð af þessu tagi hefst strax og fyrsta skrefið er stigið á fyrsta fjallið á lífsleiðinni. Fjöllin eru svo óendanlega margbreytileg og lík- aminn takmarkaður en með þjálfun verður hann fljótur að aðlagast að- stæðum. Lykillinn er að öll hreyfing hjálpar en best er að forðast meiðsl og því hef ég kosið að hjóla sem mest og stunda sund með. Fyrir stóra og þunga menn eins og mig hef ég kosið að hlífa liðamótum og stunda því ekki hlaup sem neinu nemur. Maður gerir sér enga grein fyrir endingu brjósksins í liða- mótum, en gefi það sig er ferillinn oftar en ekki úti, enda stunda ég alla jafna erfiða vinnu með. Hjólaferðirnar hafa verið frá 30 og upp í 70 kílómetrar á dag sex daga vik- unnar sama hvernig viðrar, stundum í yfir 30 stiga frosti og snjóbyljum. Sund er kjörinn vettvangur fyrir fjallamenn. Það styrkir efri hluta líkamans um leið og maður hristir þreytuna úr löpp- unum. Ódýrari líkamsrækt finnst vart í heiminum en íslenskar sundlaugar og voru lagðir að velli frá 1,5 - 2,3 km að jafnaði um þrisvar í viku. Vart er hægt að hugsa sér fagurlimaðra fólk en vel þjálfað sundfólk en mér hefur ekki tek- ist enn að fylla þann hóp. Fjöll verða þó alltaf aðalvettvang- urinn og hófust ófáir dagarnir í Ás- landslaug í Hafnarfirði, þar sem syntir voru 2 km, síðan var hjólað 30 km að Esjurótum og gengið á Þverfellshornið og stundum lengra og hjólað til baka í fjörðinn. Esjan hefur oft verið æf- ingavettvangur fjallamanna sem og annarra og er einstaklega vel til þess fallin enda hægt að leggja bíl alveg við fjallsræturnar. Esjan hefur þó ekki skipað jafn mik- inn sess hjá mér og áður við undirbún- ing heldur hef ég nýtt mér meira jökl- ana. Til dæmis hef ég síðan í apríl og maí gengið þrívegis á Snæfells- og Eyjafjallajökull hvorn fyrir sig og einnig á Hvannadalshnjúk svona til að sjá hvar maður stæði. Allt gekk þetta vel og náði ég ágætis tímum, var 2,5 klst. á Snæ- fellsjökul, 3.5 klst. á Eyjafjallajökul og síðan 5 klst. og 15 mín á hnjúkinn og átti talsvert inni. En þetta eru bara töl- ur sem engu skipta. Það er nánast van- helgun að keppa við tímann á fallegum fjöllum og gott að hafa í huga að enginn sigrar tímann, en maður áttar sig þó betur á því hvar maður stendur. Nær ómögulegt er að spá fyrir um veðrið til fjalla og verður ávallt að sæta lagi. Það hefur oft reynst vel að stunda styrktarþjálfun til að byggja upp vöðva sem varaforða en ég læt það vera þar til heim kemur, enda stórir vöðvar frekir á orku og súrefni og þurfa lengri hvíld og henta að mörgu leyti verr. Það getur engan veginn talist öruggt að ganga einn og línulaus á jökla lands- ins, því þrátt fyrir að varlega sé farið er lúmskar sprungur hvarvetna að finna. Þessar eilífu hraðferðir eru því hættu- legar þar sem auðvelt er að sofna undir stýri á heimleiðinni og þá getur hurð skollið nærri hælum. Vissara er því að hafa varann á. Erfiðast af öllu var þó að byrja að reykja. Það hafa gengið þær hviksögur að reykingafólki gangi betur í mikilli hæð, hverjar sem skýringarnar eru, og ákvað ég að prófa þessa kenn- ingu og hófst handa við að fikta við reykingar fyrir ári síðan en hætti núna viku fyrir leiðangurinn. Að lokum Þegar þessi grein birtist er ég að öllum líkindum kominn vel á veg og vona að áhugasamir eigi þess kost að fylgjast með mér. Síðan ég hóf að ganga á fjöll hefur orðið mikil vakning. Og er svo komið að við rætur Þverfellshornsins er vandfundið bílastæði á góðum degi. Þetta er frábrugðið því sem áður var þegar einungis örfáar hræður voru á ferðinni og heilsuðust ávallt og þekkt- ust jafnvel með nafni. Fjöldinn á Hnjúkinn var teljandi á fingrum annarrar handar um páska og engir leiðsögumenn, heldur urðu menn að finna allt út sjálfir og þroskast sem fjallgöngumenn. Nú er fjölmennt í hundraða vís í stórum hópum og eru menn misjafnlega sjálfbjarga. Það fer líka talsverður fjöldi á Kilimanjaro og Mont Blanc. Erfitt er að spá fyrir um hve margir Íslendingar leggi á hæstu fjöll heimsins á næstunni, en eitt veit ég þó – að það kostar mikla peninga. Broad Peak Kína Pakistan Indland Afganistan Kirgistan Úsbekist. Tadsjik. Kasakstan K2 Broad Peak (K3) ’ Broad Peak er þriðja hæst en næsti nágranni er sannkallaður nágranni frá helvíti, K2 sem rís 8.611 m. K2 er talið eitt af torkleifustu fjöllum jarðarinnar og hefur oft verið vettvangur mikilla mannrauna.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.