SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 38
38 24. júní 2012
Sveitaböllin eru nánast liðin undir lok,“ segir Stefán Hilmarsson,söngvari Sálarinnar hans Jóns míns. Hljómsveitin var á flugisumarið 1992 og lék undantekningalítið tvisvar til þrisvar í viku.Á þessum árum voru samkomustaðir í þéttbýlinu færri en nú og
því voru félagsheimilin aðalvettvangur hljómsveita. Fjölmörg slík mætti
nefna, svo sem Logaland í Borgarfirði, Miðgarð í Skagafirði, Ýdali í Að-
aldal, Valaskjálf á Egilsstöðum, Aratungu í Biskupstungum, Hvol á Hvols-
velli og Njálsbúð í Landeyjum. Á meðfylgjandi mynd eru Sálarmennirnir
Stefán, Guðmundur Jónsson og Jens Hansson á sveittum dansleik í Njáls-
búð 11. júlí 1992 og við sviðið má sjá ungmenni í góðu stuði.
„Fyrir nokkrum árum dustaði ég rykið af þessari mynd í tengslum við
tónleika sem stóðu fyrir dyrum. Skömmu síðar rakst ég á vinkonu mína,
Laufeyju Jörgensdóttur, sem lengi hefur verið dyggur stuðningsmaður
okkar. Hún hafði séð myndina og benti mér á að stúlkurnar við sviðið
væru hún og vinkonur hennar úr Eyjum, en Laufey er sú með myndavél-
ina. Hún tjáði mér að þær hefðu þessa helgi verið á fótboltamóti uppi á
landi. Vitaskuld gerðu forráðamenn kröfu um að ekkert óþarfa útstáelsiAllir voru í syngjandi góðir sveiflu á sveitaballinu í Njálsbúð svo undir tók í Landeyjarnar allar.
Ljósm/Úr einkasafni
Myndasafnið 11. júlí 1992
Á sveittu
sveitaballi
Sumir leikarar hafa á því lag að veraskemmtilega leiðinlegir. Larry David ereinn af þeim, Bill Murray er annar.Sá síðarnefndi hefur það þó fram yfir
hinn að geta einnig verið einstaklega viðkunn-
anlegur. Kærulaus og fremur jarðbundinn leikur
hans virðist alltaf slá í gegn, hvort sem hann er að
túlka persónur í grínmyndum eða öllu alvarlegri
kvikmyndum á borð við Get Low eða Lost in
Translation.
Sjálfstæður, sjálfumglaður og skapstór
Bill Murray hefur sagt það að honum finnist hann í
raun alltaf vera að leika sjálfan sig í öllum þeim
kvikmyndum sem hann tekur að sér. Ástæða þess er
líklega sú að hann á það til að breyta handritum
þeirra kvikmynda sem hann leikur í eftir sínu eigin
höfði.
Maðurinn er sjálfumglaður og skapstór. Hann er
tvífráskilinn, hefur verið sakaður um ótryggð, var
ungur tekinn með nokkur kíló af kannabisefni sem
hann hugðist selja og hefur verið sakaður um margt
annað. Jafnframt því hefur fólk farið mjög fallegum
orðum um hann. Það er að miklu leyti þessi blanda
skíthæls og góðmennis sem gerir hann að þeim
skemmtilega leikara sem raun ber vitni.
Bill Murray segist ekki sækjast eftir viðurkenn-
ingum og verðlaunum og segir það sorglegt þegar
leikarar verða örvæntingarfullir í leit sinni að til
dæmis Óskarsverðlaunum. Hann er sinn eigin
herra og hefur lítið sem ekkert starfsfólk í kringum
sig. Ef leikstjórar eða aðrir vilja ná í hann verða þeir
að senda honum tölvupóst sem hann mun mögu-
lega svara.
Bill Murray og Hunter S. Thompson
Árið 1980 lék Bill Murray blaðamanninn og skáldið
Hunter S. Thomspon í kvikmyndinni Where the
Buffalo Roam og urðu þeir góðir vinir upp úr því.
Ekki skal farið nánar út í gæði kvikmyndarinnar,
Leikarinn gamansami Bill Murray hefur
marga fjöruna sopið í gegnum tíðina.
Nýjasta kvikmynd hans, Moonrise
Kingdom, var frumsýnd fyrir skömmu
og er í bíóhúsum hér á landi.
Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is
Listin að vera
leiðinlegur
Bill Murray, sem er einn fremsti
gamanleikari sinnar kynslóðar,
heldur hér ræðu á Golden Globe-
kvikmyndahátíðinni.
Frægð og furður