SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Side 39
24. júní 2012 39
Leikkonan Victoria Principal lék stúlkuna sem allarstelpur vildu vera og alla stráka dreymdi um í sjón-varpsþáttunum Dallas þar sem hún fór með hlut-verk Pamelu Barnes Ewing. Þættirnir sem voru til
sýningar frá 1978 til 1991 urðu geysivinsælir um allan heim,
ekki síst á Íslandi, og hafa fáar þáttaraðir náð sömu vinsæld-
um og Dallas hér á landi.
Leiklistarferill Principal náði hátindinum í hlutverki
hennar sem ungfrúin Pamela Ewing á Southfork-búgarð-
inum í Dallas en hún hætti að leika í þáttunum árið 1987
þegar hún vildi snúa sér að öðrum verkefnum. Frá þeim
tíma hefur ekki mikið sést til Principal þrátt fyrir að hún
hafi leikið í þó nokkrum sjónvarpsmyndum og átt fjölda
gestahlutverka í sjónvarpsþáttum.
Victoria Principal segir sjálf að henni hafi verið boðnar
fúlgur fjár fyrir að halda áfram í Dallas-þáttunum en sjálf
hafi hún verið ákveðin í að snúa sér að öðrum hlutum en
hún stofnaði sitt eigið kvikmyndafyrirtæki og hefur fram-
leitt myndir á borð við Naked Lie árið 1989 þar sem hún fór
sjálf með aðalhlutverkið og myndir á borð við Blind Witness
og The Price of Passion.
Auk þess að reka kvikmyndafyrirtæki hóf hún framleiðslu
á snyrtivörum sem hún framleiðir undir eigin nafni, Princi-
pal Secret. Þá hefur hún skrifað bækur um heilsu og fegurð,
m.a. Beauty Principal sem kom út árið 1983, Body Principal
og Diet Principal.
Þegar orðrómur um nýju Dallas-þáttaröðina, sem hófst
nýlega, komst á kreik vöknuðu spurningar um hvort eitt-
hvað af gamla settinu myndi leika í nýju þáttaröðinni og þá
hversu stór hlutverk þeirra yrðu. Victoria Principal sagði
eitt sinn í viðtali að hún myndi aldrei snúa til baka í hlut-
verk Pamelu Barnes Ewing. „Pamela Ewing er í fortíðinni og
þeim kafla er lokið. Ég hef sett punkt fyrir aftan þann kafla
og hafið nýjan,“ sagði Principal í útvarpsviðtali fyrir nokkr-
um árum, aðspurð hvort hún hefði áhuga á að leika hina
fögru Pamelu Ewing einhvern tíma aftur. Henni stendur þó
til boða af hálfu framleiðenda nýju þáttanna að snúa til baka
hvenær sem er.
… Victoriu
Principal
Hvað varð um …
Fáir þættir hafa notið jafn mikilla vinsælda og Dallas en þeir hófu
nýlega göngu sína á nýjan leik.
Auk þess að reka
kvikmyndafyrirtæki
hóf hún framleiðslu á
snyrtivörum sem hún
framleiðir undir eigin
nafni, Principal Sec-
ret.
yrði á stúlkunum. En þar sem að allt hafði gengið vel lét þjálfarinn
undan þrýstingi stelpnanna, setti kíkinn fyrir blinda augað og leyfði
stelpunum að fara í Njálsbúð. Ballferðin átti þó ekki að fara hátt og
þegar þessi mynd birtist í dagblaði báru foreldrar og forráðamenn fé-
lagsins kennsl á stelpurnar. Olli þetta fjaðrafoki og fengu einhverjir
skömm í hatt,“ segir Stefán kíminn.
Sálin hans Jóns míns var stofnuð árið 1988. Nafnið er skírskotun til
soul-tónlistar sem hljómsveitin lagði sig eftir fyrsta kastið. Hún þró-
aðist þó fljótt út í að verða alíslensk poppsveit með frumsamið efni.
Árið 1989 kom út platan Hvar er draumurinn?, sem sló rækilega í gegn.
Og upp frá því komu smellir nánast á færibandi. Á plötunni Garg sem
út kom sama sumar og myndin var tekin, voru nokkur feikivinsæl lög,
þar á meðal Hjá þér, Sódóma og Krókurinn, sem þeir Stefán og Pétur
heitinn Kristjánsson sungu. Eru þessi lög enn í dag fastagestir á efnis-
skrá Sálarinnar.
„Það hafði verið mjög mikil keyrsla á okkur í fjögur ár og eðlilega
lýjast menn á slíku og verða þreyttir hver á öðrum. Því fór svo að í lok
árs 1992 afréðum við að leggja bandið niður um sinn; Guðmundur tók
m.a. þátt í endurreisn Pelican og sjálfur lagði ég drög að sólóplötu og
stofnaði hljómsveitina Pláhnetuna sem gerði tvær plötur,“ segir Stef-
án. Sálverjar tóku síðan upp þráðinn 1995. Hefur sveitin starfað með
hæfilegum hléum síðan, sent frá sér fjölda platna, ótalmörg vinsæl lög
og haldið hundruð tónleika. Má segja að Sálin hafi komist alla leið í
himnaríki, náð prinsessunni og fengið hálft konungsríkið í kaupbæti –
eins og gerist í gömlum ævintýrum.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Má segja að
Sálin hafi kom-
ist alla leið í
himnaríki, náð
prinsessunni og
fengið hálft konungs-
ríkið í kaupbæti
Stefán
Hilmarsson.
Lögreglan í
Seattle, Banda-
ríkjunum, fékk
símtal frá Denn-
is Quigly árla
morguns. Denn-
is hafði verið sof-
andi í húsbíl sínum þegar hann vaknaði upp við ein-
kennileg hljóð sem bárust að utan. Lögreglan mætti á
svæðið og fann skólp og ælu við hlið húsbílsins. Við
nánari athugun fannst ungur maður liggjandi upp við
bíl í nágrenninu. Maðurinn hafði ætlað að stela bens-
íni úr bílnum en óvart sett sogrör sitt ofan í skólptank
húsbílsins. Dennis kvaðst ekki ætla að kæra athæfið
þar sem hann sagði atvikið vera það fyndnasta sem
hann hefði nokkurn tímann orðið vitni að.
Munnfylli af skólpi
Á síðasta ári drápust höfr-
ungarnir Shadow og Chel-
mers í Connyland-
dýragarðinum í Sviss af of
stórum skammti af heróíni.
Svokölluð „rave“-hátíð
hafði þá farið fram í ná-
munda við laug dýranna og
í fyrstu var talið að hávær
tónlistin hefði dregið dýrin
til dauða. Vísindamenn hafa nú hinsvegar fundið
heróín í þvagi dýranna. Líklegt þykir að óprúttnir tón-
leikagestir hafi gefið höfrungunum eiturlyfið. Sjávar-
líffræðingurinn og höfrungasérfræðingurinn Cornelis
van Elk tjáði sig um málið og sagði hann að ópíum-
efni á borð við heróín færu einstaklega illa í neðan-
sjávar spendýr.
Höfrungar á heróíni
Höfrungar á kafi í dópi
enda hataði Thomspon hana, en vinátta þeirra
tveggja átti eftir að hafa mikil áhrif á þann fyrr-
nefnda og saman gerðu þeir hluti sem fæstir
myndu láta sér detta í hug.
Í einhverju svallinu ákváðu þeir félagar að fara
í Houdini-leik. Thompson batt þá Murray við
stól með reipi og henti honum út í sundlaug og
átti Murray að losa sig eins og Houdini var
þekktur fyrir. Tilraunin heppnaðist ekki betur en
svo að Thompson varð að stinga sér í laugina og
draga Murray á land sem var við það að drukkna.
Saman fundu þeir einnig upp á íþróttinni
haglabyssugolf. Í þeirri íþrótt er markmið annars
leikmannsins að koma golfkúlu inn á flöt vall-
arins á meðan sá síðari reynir að skjóta kúluna
með haglabyssunni áður en hún kemst inn á
flötina. Tvö stig eru gefin fyrir vel heppnað skot.
Thompson spilaði leikinn síðar við lögreglustjór-
ann í Aspen og leikarann John Cusack.
Bill Murray var viðstaddur útför Thompsons
árið 2005 en sá síðarnefndi hafði þá framið sjálfs-
morð hálfu ári áður. Bill varð þá vitni að því þeg-
ar ösku Thompsons var skotið með fallbyssu úr
47 metra háum turni yfir nærstadda syrgjendur.
Bill Murray sagði að það hefði verið besta jarð-
arför sem hann hefði nokkurn tímann mætt í.
Síðustu ár hafa verið leikaranum einstaklega
góð og má hann meðal annars þakka Wes And-
erson, leikstjóra Moonrise Kingdom, fyrir þá far-
sæld.
Bill Murray er hér lengst til vinstri ásamt leikurunum Frances McDormand, Edward Norton og Bruce Willis í
kvikmynd Wes Andersons, Moonrise Kingdom.
’
Thompson batt þá Murray
við stól með reipi og henti
honum út í sundlaug og átti
Murray að losa sig eins og Houd-
ini var þekktur fyrir.