SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Blaðsíða 40
40 24. júní 2012 Lífsstíll Það er skemmtilegt að fá erlendagesti í heimsókn því þá kynnistmaður landinu sínu í raun uppá nýtt. Þannig sér maður enn betur hvað við erum nú heppin að fá að búa hér á þessari góðu eyju. Þrátt fyrir snjó, kulda og allt það vesen yfir vetrar- tímann. Á sumrin skartar landið sínu fegursta. Þá sérstaklega þegar sólin skín og fjallasýnin getur ekki verið betri. Í slíku veðri keyrði góður vinahópur um landið í byrjun júní. Þingvellir tóku á móti okkur með sól og blíðu. Nestið rann vel ofan í okkur úti í góða veðrinu og göngutúrinn var eins og á sólarströnd. Yfir Uxahryggina virtumst við fljúga í fallegu útsýni og í Borgarnesi spillti örlítil gola ekki gleði okkar. Síðar um kvöldið nutum við fegurðar Snæfellsness í allri sinni dýrð svo og daginn eftir. Á Djúpa- lónssand hafði ég ekki komið lengi og hugsaði með mér hversu stutt væri nú í raun þangað úr borginni. Hið sama er að segja um Arnarstapa þangað sem ætíð er gaman að koma. (Þrátt fyrir gargandi kríur). Við komum við á fleiri fallegum stöð- um og allan tímann voru veðurguðirnir svo rausnarlegir að bíða með að vökva og skrúfuðu bara hraustlega frá sólinni í staðinn. Það var ekki fyrr en síðasta dag- inn sem örfáir dropar duttu úr loftinu við Gullfoss og vindurinn lét aðeins á sér kræla. Þá var nestið bara borðað inni í bíl í staðinn og skemmdi ekki fyrir. Ferðalangarnir héldu sælir heim á leið og við Íslendingarnir vorum alveg jafn glaðir að hafa séð svo margt af landinu okkar á nokkrum góðum dögum. Það er skemmtilegt að ferðast til útlanda og sjá nýja og oft framandi staði. En að sama skapi er líka mikilvægt að opna augun fyrir því sem er í nærumhverfi okkar. Litlir bæir með kaffihúsum og bakaríum, strendur og fjöll, fuglar og falleg náttúra. Allt þetta og miklu meira til erum við svo heppin að eiga svo að segja í bakgarðinum okkar. ’ Það var ekki fyrr en síðasta daginn sem örfáir dropar duttu úr loftinu við Gullfoss og vindurinn lét aðeins á sér kræla Á ferð um ævintýraeyju Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Það er skemmtilegt að ferðast um landið sitt og á ferð með erlendum gestum kynnist maður því á nýjan hátt. Ekki skemmir gott veður fyrir upplifuninni. Á Boqueria-markaðnum í Barcelona iðar allt af lífi þennan miðvikudagsmorgun. Tveir spænskir skóla- drengir kaupa sér ferskan ávaxtasafa við hlið þriggja ferðamanna frá Íslandi. Verðið er hagstætt og úrvalið bæði gott og gómsætt. Framandi ávöxtum sem og öllu hversdagslegri er listilega raðað upp í skipulegt form sem minnir helst á olíumálverk. Innar hanga þurrkaðir hvítlaukar og chili. Í grenndinni mokar glaðleg sölukona litríkum kryddtegundum ofan í box og mælir. Bresk hjón tryggja sér góða marineringu fyrir kvöldið. Svo er það allur fiskurinn sem bíður kaupanda síns ferskur á klakabeði og pylsurnar sem hanga bústnar í stórum bás og lokka til sín matargöt með góðan smekk. Margt ber fyrir augu og nef. Skynfærin spennast og fagurkerar eiga erfitt með sig. Ef maður gæti nú bara verslað svona á degi hverjum. Og þó. Sumt er einhvern veginn gott að hafa bara dálítið sérstakt og spari. Annars myndi varla margt koma manni framandi fyrir sjónir eða gleðja mann eins mikið á ferðalögum. Eins og t.d. bara það að kaupa sér ferskan ananassafa á 200 krónur glasið. Sumt er bara í útlöndum. Bústnar pylsur, ávextir og krydd í bland Það er alltaf dálítið gaman að endurnýja í fataskápnum. Sér- staklega þegar ein árs- tíð tekur við af annarri. Þá langar mann frekar að klæða sig í liti í birtu og yl og sokkarnir fá að fjúka. Sterkir litir eru fallegir einir og sér og einfaldur kjóll sem þessi hér til hliðar er sniðugur til að eiga í fataskápnum. Í svona fallegum lit er eins og maður klæði sig í sólina og svo má ann- aðhvort poppa hann upp með flottu hálsmeni eða tóna niður með látlaus- um skóm. Appels- ínugulur er líka vinsæll litur í sumar og hann passar vel við látlausari liti fyrir þá sem vilja blanda litunum saman. Fyrirsætan hér til hlið- ar er í kjól eftir brasil- íska fatahönnuðinn Reinaldo Lourenco. Sýndi hann það nýjasta úr sinni smiðju í Sao Paulo á dögunum og voru skærir litir sem þessir einkennandi. Sólarkjóll

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.