SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 42

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 42
42 24. júní 2012 Á dögunum sat ég sem oftarfund þar sem hafði framsöguungur maður sem lagt hafðileið sína upp framastigann og nálgaðist nú efstu þrep hans. Á fundi þessum gerði hann að umræðuefni mál- efni sem vissulega var brýnt og skipti landsmenn miklu máli. Þrátt fyrir það sótti á mig svefn. Við mér blasti lítt heillandi veggjakrot. Ræðumaður stóð í púlti upp við vegg. Á veggnum á móti honum birtist ræðan nokkurn veginn í heilu lagi með hjálp power point (kraftbendils). Fundargestir sneru baki við ræðumanni og góndu á vegginn og lásu með manninum orð fyrir orð það sem á veggnum stóð. Ræðumað- urinn sá enga ástæðu til að ljá máli sínu þann kraft sem nauðsynlegur er til að gæða flutninginn lífi. Orðin eins og láku niður í hálsmálið á skyrtunni hans. Óli lokbrá varð smám saman heillandi vinur. Samt var textinn fremur góður. Hefði hann birst á prenti í dagblaði eða tímariti hefði sjálfsagt einhver haft á orði að þar væri á ferðinni prýðilegur íslenskumað- ur. Annað birtingarform veggjakrots- aðferðarinnar er að sá sem flytur textann stendur við vegginn sem geymir ræðuna, snýr rassi sínum í áhorfandann/ hlustandann og les það sem á veggnum stendur. Sú aðferð er jafnvel ennþá betur fallin til svæfingar en hin fyrri. Þegar mælt er að einhver sé góður í ís- lensku er langoftast átt við að hann riti gott mál, hann kunni að haga máli sínu þannig að athygli veki, kunni til dæmis ýmis stílbrögð sem hreyfi við lesanda. Sjaldan er hins vegar góð íslenska tengd við framsögnina. Annað einkenni hins talaða máls, þegar illa tekst til, er það þegar sá sem talar slítur í sífellu sundur setningar og máls- greinar. Þennan framburð má stundum heyra (og sjá) í fjölmiðlum, til dæmis í sjónvarpinu. Þá byrjar sá sem talar á setningu en skyndilega er eins og hann fái andarteppu. Hann starir á hlust- endur/áhorfendur um skeið svo að þeim dettur helst í hug að nú sé brýn þörf hjartahnoðs eða blástursaðferðar. Svo losnar skyndilega um stífluna og orðin fossa fram uns ný stífla myndast. Þessi framburður er afar óþægilegur fyrir þann sem hlýðir á og horfir. Félagi minn einn lýsti þessum framburði á myndrænan hátt. „Hugsum okkur, Þórður, að máls- grein sé pylsa. Í meðförum þessara manna verður hún eins og ótal kokteil- pylsur (hanastélspylsur).“ Engin leið er að átta sig á hverju flyjandinn vill koma til leiðar með þessari aðferð í flutningi talaðs máls. Ef til vill er ætlunin með honum sú að gera eitthvert málefni æsi- legra, meira spennandi, en því fer víðs fjarri að það takist. Ég er einn þeirra sem hrífast af góðum ræðum og ræðumönnum sem kunna að haga orðum sínum þannig að athygli vekur. Þeir kunna þá list að tala til áheyrenda. Þeir kunna að beita rödd sinni á áhrifamikinn hátt. Þeir vita einnig að þar skipta augun miklu máli, svo miklu að sumir fullyrða að augun séu eitt megintalfærið. Undir ræðum slíkra flytj- enda fær áheyrandinn það á tilfinninguna að hann hlusti á skilaboð sem skipta hann máli. Hann upplifir ákveðið sælu- ástand og dettur ekki í hug að sofna. Af veggjakrots- aðferð og hanastéls- pylsuframburði ’ Þegar mælt er að ein- hver sé góður í ís- lensku er langoftast átt við að hann riti gott mál, hann kunni að haga máli sínu þannig að athygli veki, kunni til dæmis ýmis stíl- brögð sem hreyfi við les- anda. Sjaldan er hins vegar góð íslenska tengd við framsögnina. Ummm... já. Ég heiti semsagt Pedró mörgæs og ég ætla... hérna, ég ætla... þannig séð, að tala við ykkur um, þarna, þrettán leiðir til að fá síldina aftur. Eða... já. Svona, eiginlega. El ín Es th er Málið Ummm... já. Ég heiti semsagt Pedró mörgæs og ég ætla... hérna, ég ætla... þannig séð, að tala við ykkur um, þarna, þrettán leiðir til að fá síldina aftur. Eða... já. Svona, eiginlega. Tungutak Þórður Helgason thhelga@hi.is Flutnings SinfóníuhljómsveitarÍslands í tónlistarhúsið Hörpuverður ætíð minnst sem einnamerkustu tímamóta í sögu hljómsveitarinnar. Eftir nærri hálfrar ald- ar dvöl í Háskólabíói eignaðist hljóm- sveitin loksins heimili sem gefur bestu tónlistarsölum heims ekkert eftir. Þrátt fyrir betri aðstæður og glæsilega tónlist- arsali Hörpunnar hlýtur að vera einhver eftirsjá af heimilinu þar sem hljómsveitin sleit barnaskónum. Sigurður Nordal, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, segir að því fylgi ávallt einhver söknuður að kveðja góðan förunaut en ekki þýði að dvelja við það. Hlúa verður að framtíðinni og fagna frekar þeim áfanga í sögu hljóm- sveitarinnar að vera komin í tónlistarhús á heimsklassa. „Aðstöðuleysið í Há- skólabíói varð til þess að þjappa hljóm- sveitinni vel saman en gæðin í Hörpu kalla fram það besta í hverjum hljóðfæraleikara enda mjög krefjandi að leika í sal eins og Eldborg þar sem hver nóta skín í gegn. Við erum þakklát að eiga þetta stórbrotna tónlistarhús sem heimili og ætlum að gera okkar besta til að gera það aðgengilegt sem flestum Íslendingum.“ Vinar gjöf skal virða og vel hirða Bygging tónlistarhússins var langt í frá sjálfsögð framkvæmd og skapaðist tölu- verð óvissa um framtíð þess í kjölfar efnahagshrunsins. Sigurði er það vel ljóst og telur því enn mikilvægara að Sinfóníu- hljómsveitin sé hljómsveit allra lands- manna og að sem flestir finni tónlist sem höfði til sín í dagskrá hljómsveitarinnar. „Sinfóníuhljómsveitin leggur til stóran hluta þeirrar dagskrár sem boðið er upp á í Hörpu. Hljómsveitin á því mikinn þátt í að skapa sátt og velvilja gagnvart húsinu. Við höfum haldið yfir 90 tónleika á því rúma ári síðan við fluttum í Hörpu og á þeim tíma hafa hátt í 100 þúsund tón- leikagestir komið og hlýtt á Sinfón- íuhljómsveitina. Það verður að teljast töluvert afrek og við erum geysilega þakklát fyrir hvað fólk hefur tekið dag- skrá okkar vel.“ Sigurður segir það augljóst að lands- menn séu stoltir af Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og geri sér grein fyrir mikilvægi hennar fyrir land og þjóð. „Sinfón- íuhljómsveitin er þjóðarhljómsveit og hér hefur þjóðin tekið sig saman og byggt þetta tónlistarhús sem er heimili þjóð- arhljómsveitarinnar og það var markmið okkar frá fyrstu tíð að sem flestir tengdu sig við húsið og hljómsveitina sína. Við viljum að fólki finnist það eiga erindi í húsið og hlusti á tónlist sem höfðar til sín í þeim búningi sem sinfóníuhljómsveit ein getur skapað. Það að heyra Sinfón- íuhljómsveit í fullum gæðum í flutningi er hrífandi fyrir alla.“ Hann bætir því við að upplifunin sé enn sterkari í hljómburði eins og í Eldborg. Einstakt upphafsár í Hörpu Fyrsta starfsár Sinfóníuhljómsveitarinnar í Hörpu hefur gengið vonum framar og er Sigurður hæst ánægður með frammistöðu allra þeirra sem hafa komið að starfi hljómsveitarinnar. „Enginn vissi hvernig myndi takast til með sjálft húsið, hljóm- gæðin, salina og allra síst viðtökur al- mennings. Allt þetta heppnaðist síðan framar okkar björtustu vonum en árangur sem þessi kemur ekki af sjálfum sér held- ur er afrakstur mikillar vinnu og und- irbúnings allra sem starfa hjá hljómsveit- inni. Þannig tókst okkur að gera fyrsta starfsárið hér í Hörpu það besta í sögu hljómsveitarinnar. Við sáum mikla aukn- ingu í fjölda áskrifenda síðustu árin í Há- skólabíói, en við flutninginn í Hörpu fjölgaði áskrifendum um hér um bil 70%. Á undanförnum þremur starfsárum hefur fjöldi áskrifenda Sinfóníuhljómsveit- arinnar hátt í þrefaldast.“ Töfrandi tónar hljómsveitarinnar í fjöl- breyttum verkum er eflaust ein helsta ástæða velgengninnar og telur Sigurður fjölbreytta dagskrá forsendu hvort tveggja velgengni hljómsveitarinnar og tilgangs hennar sem þjóðarhljómsveitar sem hann vill að nái til flestra óháð tónlistarsmekk. „Meginhluti dagskrár okkar er auðvitað sá hafsjór meistaraverka sem saminn hef- ur verið fyrir sinfóníuhljómsveit í gegnum aldirnar. Sá brunnur verður seint tæmd- ur. Í vetur lékum við til dæmis allar sin- fóníur Beethovens frá eitt til níu, til að nefna einungis eitt dæmi úr fjölbreyttri klassískri dagskrá. Við tókum þátt í Airwaves með nýja og spennandi tónlist, lékum tónlist úr James Bond myndum og Hringadróttinssögu. Tónleikar sem við stóðum fyrir við opnun Hörpu með Páli Þau stilltu saman strengi sína Fyrir rúmu ári flutti Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu. Sigurður Nordal, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, segir gæðin í Hörpu kalla fram það besta í hverjum hljóðfæraleikara. Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.