SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Blaðsíða 43
24. júní 2012 43
Óskari slógu í gegn og sama á við um tón-
leika okkar með Sigríði Thorlacius og Sig-
urði Guðmundssyni. Upptökur frá þess-
um tvennum tónleikum náðu báðar
metsölu nú fyrir jólin. Þannig að dagskrá
Sinfóníuhljómsveitarinnar höfðar til afar
fjölbreytts hóps.“
Sigurður nefnir einnig þátttöku Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í ýmsum hátíðum,
svo sem Menningarnótt, Myrkum mús-
íkdögum og Listahátíð. Í mars stóð svo
hljómsveitin fyrir nýrri alþjóðlegri tón-
listarhátíð, Tectonics, þar sem saman
komu listamenn úr ýmsum geirum tón-
listar og unnu með Sinfóníuhljómsveit-
inni í tilraunakenndri tónsköpun. „Það
myndaðist mögnuð stemning á Tectonics
hátíðinni. Þar fórum við leið sem fáar ef
nokkur sinfóníuhljómsveit hefur fetað
áður, í samtarfi við fjölda innlendra og er-
lendra listamanna. Við nýttum Hörpu og
hin ýmsu rými hússins á alveg nýjan hátt.
Meðal annars léku fimm fullskipaðar
skólalúðrasveitir saman hér í anddyri
hússins við lok hátíðarinnar í mögnuðum
hljóðskúlptúr.“
Sigurður segir að Sinfóníuhljómsveitin
leiki stórt hlutverk í að efla og styrkja það
frjósama tónlistarlíf sem Ísland er orðið
þekkt fyrir.
„Eitt af því sem við erum að gera er að
brjóta múra og aðgreiningu milli tónlist-
arstefna því þær geta grætt hver af annarri
og búið til eitthvað skemmtilegt.“ Að-
spurður hvort klassísk tónlist sé þó ekki
helsta viðfangsefni hljómsveitarinnar
kveður Sigurður svo vissulega vera en að
Sinfóníuhljómsveit Íslands leggi fyrst og
fremst metnað í að spila góða og vandaða
tónlist, hvaðan sem hún er upprunnin.
Tónleikagestir eigi að ganga að gæðum
vísum þegar þeir fari á tónleika með Sin-
fóníuhljómsveitinni.
Hvað ungur nemur, gamall temur
„Stór þáttur í starfi Sinfóníunnar er
fræðslustarf og við leggjum mikið upp úr
því að fræða bæði unga sem aldna og höf-
um í vetur fengið í heimsókn til okkar um
20 þúsund ungmenni allt frá leikskóla-
upp í menntaskólaaldur,“ segir Sigurður
sem telur fræðslustarfið hvort tveggja
gefandi fyrir hljómsveitina og skila sér inn
í tónlistarlíf landsmanna. „Það er ein-
staklega gefandi fyrir okkur í hljómsveit-
inni að sjá svipinn á börnunum þegar þau
koma inn í Eldborgarsalinn í fyrsta sinn
og fá að upplifa tónlistina í þessum stór-
kostlega sal eða þegar þau uppgötva
kannski í fyrsta sinn tónlist í þeim flutn-
ingi sem einungis sinfóníuhljómsveit er
fær um að leggja fram.“ Auk þess að fræða
ungu kynslóðina er okkur sem eldri erum
einnig boðið upp á fræðslu og að sögn Sig-
urðar er hún ekki síður mikilvæg til að
leyfa sem flestum að njóta tónlistarinnar
og uppgötva nýjar hliðar á henni.
Hljómsveitin er feikilega góð
Það telst kannski ekki til tíðinda að fá-
mennri þjóð beri að reka sinfón-
íuhljómsveit enda eru dæmi um minni
svæði sem halda úti slíkri starfsemi. Sin-
fóníuhljómsveit Íslands ber sig þó saman
við bestu hljómsveitir, en í þeim sam-
anburði er hún ung og fátt starfsfólk sem
heldur utan um starf hennar. „Saga
hljómsveitarinnar er ekki löng í saman-
burði við sambærilegar hljómsveitir víða
um heim. Hljómsveitin er hins vegar
feikilega góð og hefur skapað sér frábært
orðspor hvar sem hún hefur komið og er-
lendir tónleikagestir og gagnrýnendur
borið henni lof.“ Sigurður telur hlutverk
hljómsveitarinnar mikilvæga í samfélag-
inu en eins telur hann að viðtökur al-
mennings séu mikilvægur þáttur í grund-
velli hljómsveitarinnar. „Á erfiðum
tímum í samfélaginu er gaman að sjá hvað
Íslendingar eru duglegir að rækta andlegu
hliðina hjá sér og það sést vel í viðtökum
þjóðarinnar gagnvart Sinfóníuhljómsveit-
inni. Ég fyllist stolti yfir því hvað Íslend-
ingar eru duglegir að sækja menningar-
viðburði og setja þá ekki fyrir sig tíma eða
fjármuni. Þetta er eitt okkar glæsilegasta
þjóðareinkenni og ber vott um einlægan
áhuga á því sem lyftir huganum úr dag-
legu amstri. Á meðan svo er hefur maður
ekki áhyggjur af andlegum styrk þjóð-
arinnar þegar á móti blæs.“
Sigurður Nordal, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, segir að fagna eigi þeim áfanga í sögu hljómsveitarinnar að vera komin í tónlistarhús á heimsklassa.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
’
Sinfóníuhljómsveitin
er þjóðarhljómsveit
og hér hefur þjóðin
tekið sig saman og byggt
þetta tónlistarhús sem er
heimili þjóðarhljómsveit-
arinnar og það var mark-
mið okkar frá fyrstu tíð að
sem flestir tengdu sig við
húsið og hljómsveitina
sína.
Sinfóníuhljómsveit Íslands lauk nýlega
glæsilegu opnunarári í nýju og fullkomnu
tónlistarhúsi Íslendinga, Hörpunni, þar
sem hátt í 100 þúsund gestir komu til að
hlýða á hljómsveitina spila. Komandi
starfsár Sinfóníunnar verður ekki síður
fjölbreyttu og eitthvað ætti að vera fyrir
alla á dagskrá hennar.
Á Menningarnótt verður Sinfónían með
fyrstu tónleikana á nýju starfsári og hefst
dagskráin á viðeigandi hátt með fjöl-
skyldutónleikum Maxímús Músíkús.
Síðar í haust og næsta vetur mun al-
menningi gefast tækifæri á að hlýða á sin-
fóníur eftir Schumann, Tjajkovskij og
Mahler svo eitthvað sé nefnt.
Kvikmyndaáhugamenn geta líka farið að
hlakka til því Sinfónían mun halda sér-
staka Star Wars tónleika og tónleika úr
töfraveröld Disney þar sem ódauðleg tón-
list úr smiðju Walt Disney verður spiluð.
Sinfóníuhljómsveitin fer síðan norður á
land og spilar í Hofi, menningar- og tónlist-
arhúsi Akureyringa. Þar verður fluttur
sellókonsert eftir Joseph Haydn undir
stjórn Ilans Volkovs og Bryndís Halla
Gylfadóttir spilar sem einleikari.
Einnig verður boðið upp á grípandi tón-
list þar sem klarinettleikarinn Martin Fröst
spilar Peacock Tales eftir Hillborg. Vín-
artónleikar verða svo á nýju ári og róm-
aður einleikskonsert Hafliða Hallgríms-
sonar.
Fjölbreytt dagskrá
Sinfóníuhljómsveit-
arinnar næsta vetur