SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 47

SunnudagsMogginn - 24.06.2012, Qupperneq 47
24. júní 2012 47 Auðvelt er að komast hjá gagn-rýni með því að segja ekkert,gera ekkert og vera ekkert. Þaðer ekki einkenni Sólveigar Baldursdóttur sem fannst umræðan og andrúmsloftið á Íslandi verða hættulega neikvæð um og eftir efnahagshrun. Í stað þess að blogga um ástandið eða hella sér út í pólitík ákvað hún að gefa út sitt eigið tímarit um allt það einstaka og upplífgandi sem Ísland og Íslendingar hafa upp á að bjóða. „Rauði þráðurinn í gegnum blaðið er allt jákvætt og allt það frábæra sem við eigum í mannauði og menningu. Í blaðinu má finna umfjöllun um matarmenninguna en ég þekki hana vel frá fyrri störfum, náttúruna og fjársjóðinn í fólkinu,“ segir Sólveig og bætir því við að tímaritið hafi fengið góðar viðtökur. Skrifar á ensku en er fyrir alla Í stað þess að takmarka sig við Ísland og íslenskan markað ákvað Sólveig að skrifa allt blaðið á ensku og stíla þannig inn á er- lenda ferðamenn og erlendan markað. „Efni blaðsins á einnig erindi til Íslendinga en mig langaði fyrst og fremst að segja út- lendingum frá dásamlegu landi og þjóð. Við fórum offari í sjálfshylli hér fyrir hrun og misstum fókusinn. Mig langar til þess að segja umheiminum ýkjulaust hvaða fjársjóð við eigum á þessu landi í fólki og menningu, alveg eins og svo margar aðrar þjóðir eiga líka, en ég vil gera það án alls yfirlætis en líka án allrar minnimátt- arkenndar.“ Í nærri þrettán ár ritstýrði Sólveig tímaritinu Gestgjafanum með góðum ár- angri. Hún ákvað þó fyrir ári að tími væri kominn fyrir eitthvað nýtt. „Þegar við eldumst og þroskumst breytist forgangs- röðin hjá okkur mörgum og mig var farið að langa til þess að geta unnið hverja grein betur og vanda enn betur það sem ég léti frá mér. Á dagblöðum og tímaritum er tíminn harður húsbóndi og oft þarf að vinna efni hratt. Þess vegna gef ég bara út tvö tölublöð á ári, eitt sumarblað og eitt vetrarblað. Að því leytinu til er pressan minni hjá mér en áður þar sem tölublöð- um fjölgaði úr 6 í 17 á þeim tíma sem ég ritstýrði Gestgjafanum,“ segir Sólveig. Lætur drauma sína rætast Það hlýtur að vera meira undir þegar hún gefur blaðið út sjálf? „Vissulega er fjár- hagsleg áhætta af útgáfunni töluverð en ég geng ekki með drauma um að verða rík á henni. Markmiðið er að blaðið standi und- ir kostnaði til að byrja með og að ég sé að verja tíma mínum í eitthvað sem skiptir máli og ég hef gaman af.“ Eins og stendur er hægt að nálgast blað- ið í helstu bókabúðum um allt land, minjagripasölum og flugvélum Iceland Express. En fljótlega stefnir Sólveig á dreifingu blaðsins í Bandaríkjunum. „Það hlæja margir að mér þegar ég segist stefna inn á Bandaríkjamarkað en ég hef mikla trú á þessu blaði og vil nota meðbyrinn sem Ísland hefur fengið í fjölmiðlum und- anfarið til að koma blaðinu á framfæri. Þetta er vissulega stór draumur en það gerist ekkert nema láta á hlutina reyna.“ Sólveig Baldursdóttir ritstýrði Gestgjafanum í þrettán ár en hefur nú snúið sér að eigin útgáfu þar sem hún leggur áherslu á að sýna land og þjóð á jákvæðan hátt. Morgunblaðið/Kristinn Í blíðum og jákvæðum tón „Rauði þráðurinn í gegnum blaðið er allt jákvætt og allt það frábæra sem við eigum í mannauði og menningu,“ segir Sólveig um nýja tímaritið sitt sem hún gefur út tvisvar á ári og skrifar á ensku. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Þ að er engin lognmolla þar sem Jack Reacher er. Hann getur nánast allt, þó að hann eigi hvorki farsíma né tölvu, og verður ekki á mistök nema til þess að hleypa spennu í at- burðarásina. Jack Reacher bregst einfaldlega ekki. Þeir eru nokkrir töffararnir í spennusögunum en enginn kemst með tærnar þar sem Jack Reacher er með hælana. Hann er með þetta allt, er fljótur að hugsa, snöggur að greina glæpa- mennina, sér út möguleikana hverju sinni á augabragði og bregst við áður en andstæðing- arnir ná að depla auga. Maður réttlætisins og sem slíkur fyr- irgefst honum þó að hann gangi stundum aðeins of langt. Í nýjustu bókinni, Fórn- ardauða (e. Worth Dying For), er höfundurinn Lee Child enn í Bandaríkjunum. Að þessu sinni kominn með Jack Reacher til Nebraska eftir að hetjan hafði lent í svaðilförum í Suður- Dakóta í bókinni Fimbulköldum (e. 61 Hours). Þá var því haldið opnu hvort Jack Reacher hefði lifað af sprengingu og Susan Turner í Virginíu hafði gefið hann upp á bátinn – hafði sett gömlu starfsmannaskýrsluna hans í brúnt umslag með þeim skilaboðum að það skyldi end- ursent til starfsmannahalds. En Jack Reacher slær á allar efasemdir og er mættur til leiks á ný – í brúnni úlpu á leið til Virginíu. Að vísu svolítið aum- ur, en harðjaxl eins og hann er, er með háan sársaukaþröskuld og ekki beint þekktur fyrir að barma sér. Eins og fyrri daginn er Jack Reacher fljótur að þefa uppi vandræði, en það sem í fyrstu virðast vera heimiliserjur tveggja einstaklinga, þar sem ofbeldi kemur við sögu, reynist vera hinn versti glæpur, þar sem margir eiga hlut að máli. Það er ekki auðvelt að taka til hendi í sveitinni þar sem sjálf- kjörnir kóngar hafa ráðið öllu um langa hríð og langt er í lag- anna verði. En þegar Jack Reac- her blandast í mál er honum ekkert heilagt og hann er ekki þekktur fyrir að láta óþokka komast upp með neitt múður. Á stundum neyðist hann til þess að fara út fyrir ramma laganna, en stundum verður að sveigja lög til að réttlætið nái fram að ganga. Eftir hitamolluna að und- anförnu er hressilegt að lesa um Jack Reacher. Fórnardauði er reyndar ekki besta bókin um þennan harðjaxl og koma hefði mátt fyrir nokkrar fljótfærn- isvillur með betri prófarkalestri, en eftir stendur prýðis spennu- bók, sem er reyndar ekki fyrir viðkvæma, þar sem viðbjóðs- legir glæpamenn fá makleg málagjöld. Það er fyrir öllu. Jack Reacher bregst ekki Bækur Fórnardauði  Eftir Lee Child. 411 bls. Kilja. Þýðing Jón St. Kristjánsson. JPV 2012. Reyfarasmiðurinn Lee Child. Steinþór Guðbjartsson

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.