Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 4
FRÉTTASKÝRING
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Að sögn Kristjáns Freys Helga-
sonar, sérfræðings hjá sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
er lagabókstafurinn skýr um að
meginreglan sé sú að þegar ekki
er í gildi samningur um veiðar þá
séu hafnir lokaðar.
Í gær greindi Morgunblaðið frá
því að grænlenska makrílveiðiskip-
inu Eriku hefði verið meinað að
landa hér á landi makríl sem það
veiddi í grænlensku efnahagslög-
sögunni. Þá sagði Eyþór Björns-
son, fiskistofustjóri, í blaðinu í
gær, að ástæðan fyrir þessu væri
sú að í lögum um veiðar og vinnslu
erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi
Íslands standi að skipum sem
stundi veiðar úr fiskistofnum sem
ekki eru samningar um nýtingu á,
líkt og t.d. makrílstofninum, sé
óheimilt að koma til hafna hér-
lendis.
Í 1. mgr. 3. gr. laga um veiðar
og vinnslu erlendra skipa í fisk-
veiðilandhelgi Íslands segir að er-
lendum skipum sé heimilt að landa
eigin afla, umskipa afla og selja
hann í íslenskum höfnum og sækja
þangað alla þá þjónustu sem varð-
ar útgerð skips. Í 2. mgr. 3. gr.
sömu laga kemur síðan fram und-
antekning frá þessu ákvæði en þar
segir m.a.: „Erlendum skipum,
sem stunda veiðar eða vinnslu á
afla úr sameiginlegum nytjastofn-
um sem veiðast bæði innan og ut-
an íslenskrar fiskveiðilandhelgi og
sem íslensk stjórnvöld hafa ekki
gert milliríkjasamning um nýtingu
á, er þrátt fyrir ákvæði 1. mgr.
óheimilt að koma til íslenskra
hafna.“
Að sögn Kristján er þetta ein-
mitt staðan í dag. „Þetta er akk-
úrat staðan eins og hún er. Það er
ósamið um makrílinn, þannig að
þú átt ekkert að fá að koma inn í
höfn,“ segir Kristján.
Ráðherra má víkja frá lögum
Að sögn Kristjáns er ráðherra
heimilt að víkja frá ákvæðum 2.
mgr. 3. gr. laganna þegar sérstak-
lega stendur á og vísar hann þar
til ákvæðis 4. mgr. 3. gr. laganna.
Hann nefnir að eitt fordæmi sé
fyrir hendi um að ráðherra hafi
nýtt sér þessa lagaheimild.
Bendir Kristján þannig á að í
ágúst árið 2001 hafi sjávarútvegs-
ráðuneytið sent frá sér fréttatil-
kynningu þess efnis að ráðuneytið
Lokaðar hafnir eru megin-
reglan þegar samninga skortir
Ljósmynd/Markús Karl Valsson
Erika Grænlenska makrílveiðiskipið Erika fékk ekki að landa afla sínum úr grænlensku lögsögunni hér á landi.
Sérfræðingur segir eðlismun á löndunum rússneskra skipa og máli skipsins Eriku
hafi ákveðið að rýmka þessar regl-
ur þannig að erlendum skipum
sem hafa leyfi grænlenskra stjórn-
valda til að stunda veiðar á grá-
lúðu og karfa við Austur-Græn-
land, sé heimilt að landa afla
sínum á Íslandi, jafnvel þótt ekki
hafi tekist að semja við grænlensk
stjórnvöld um nýtingu þessara
stofna. „Erlend skip, með leyfi
grænlenskra stjórnvalda til veiða á
grálúðu og karfa, hafa landað á Ís-
landi og þannig búið til veiði-
reynslu fyrir Grænland,“ segir
Kristján.
Hann tekur undir orð Eyþórs
Björnssonar, fiskistofustjóra, í
blaðinu gær um að lögin hafi verið
í gildi frá árinu 1998 og eigi ekkert
skylt við makríldeiluna. „Þetta eru
sambærileg ákvæði og Norðmenn
hafa í sínum lögum og Evrópusam-
bandið er að reyna að ná sér í til
að geta beitt svona löguðu,“ segir
Kristján.
Spurður út í rússnesk skip sem
hafa upp á síðkastið landað hér á
landi úthafskarfa án þess að vera
aðilar að samningum um skiptingu
karfans segir Kristján að varðandi
það sé meginreglan sú að hafnir
séu opnar en ráðherrann hafi í því
tilviki heimild til þess að loka
höfnunum fyrir rússneskum skip-
um, því sé eðlismunur á málunum.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2012
tvær nýjar bragðtegundir!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
46
40
7
E
N
N
E
M
NÝ
BRAGÐTEGUND- SÍTRÓNA OG
KARRÍ
NÝ
BRAGÐTEGUND- BÉARNAISE
Veðurstofan
bendir vegfar-
endum, einkum
þeim sem ferðast
með aftanívagna,
á að spáð er
versnandi veðri
um helgina.
Búast má við
hvössum vindi og
allmikilli rign-
ingu seinnipart
laugardags og á sunnudag um
mestallt land.
Því er spáð að óvenjudjúp lægð,
miðað við lægðir í júlímánuði, verði
suðvestur af landinu á sunnudag.
Lægðin sem spáð er líkist meira
haustlægðum en sumarlægð hvað
dýptina varðar. En víst er að það er
von á veðrabrigðum.
Ferðalöngum er ráð-
lagt að skilja aftan-
ívagnana eftir
heima um helgina
Vond spá Spáð er
hvössum vindi.
Karlmaður slas-
aðist þegar
breyttur tveggja
sæta torfæru-
jeppi valt við
sumarhúsa-
byggð á Flúðum
um fjögurleytið í
fyrrinótt. Mað-
urinn brotnaði
illa í andliti en
var ekki talinn
vera í lífshættu, að sögn lögregl-
unnar á Selfossi. Sá slasaði var með
meðvitund og var fluttur með
sjúkrabíl til Reykjavíkur. Svo virð-
ist sem ökumaður jeppans hafi
misst stjórn á honum í brekku með
þeim afleiðingum að hann valt.
Lögreglan handtók tvo aðra
menn vegna málsins en þeir voru
grunaðir um ölvunarakstur. Mönn-
unum var sleppt eftir yfirheyrslur
og telst málið upplýst að sögn lög-
reglunnar á Selfossi. Tveir mann-
anna eru á fimmtugsaldri og einn á
fertugsaldri. gudni@mbl.is
Einn slasaður og
tveir handteknir
Slys Grunur lék á
ölvunarakstri.
Konan sem varð fyrir árás í heima-
húsi í miðborg Reykjavíkur á mið-
vikudagskvöld er ekki alvarlega
særð. Árásarmaðurinn, sem er
fyrrverandi eiginmaður konunnar
og var vistaður í fangageymslu lög-
reglu í fyrrinótt, var yfirheyrður í
gær.
Maðurinn réðst á konuna með
hnífi í kjölfar ágreinings, með þeim
afleiðingum að hún særðist á hendi.
Lögregla handtók manninn um
klukkan 22 á miðvikudagskvöld en
konan var flutt á slysadeild, þar
sem gert var að sárum hennar.
Ekki alvarlega særð
eftir hnífaárás
„Færeyingar hafa landað hér makríl
og kolmunna þótt ósamið hafi verið
um þá stofna,“ sagði Gunnþór
Ingvason, framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar.
„Erlend skip lönduðu hér miklu
af kolmunna áður en var samið um
hann. Færeyingar lönduðu hér
makríl í fyrra og hittifyrra. Íslensk
skip hafa landað makríl í Færeyjum
og talið þann afla sér til tekna þeg-
ar þau reikna sér hlutdeild í makríl-
stofninum. Þegar ekki var búið að
semja um norsk-íslensku síldina þá
lönduðu Færeyingar og Norðmenn
hér síld.“
Gunnþór nefndi og grálúðu sem
ekki hefur verið samið um og er-
lend skip hafa landað hér. Einnig að
Rússar landi hér úthafskarfa án
þess að eiga aðild að samningi um
skiptingu karfans á Reykjanes-
hrygg.
Grænlenska skipið Erika fór með
makríl sem því var bannað að landa
hér á landi fyrr í vikunni til Fugla-
fjarðar í Færeyjum. Síldarvinnslan á
þriðjung í útgerð
Eriku og hefur átt
hlut í útgerðinni í
áratug. Sam-
kvæmt skýrslum
Fiskistofu hefur
Erika oft landað
hér loðnu og
einnig síld, kol-
munna og nú síð-
ustu árin einnig makríl.
„Mér finnst þetta frekar á lágu
plani,“ sagði Gunnþór um lönd-
unarbannið sem sett var á Eriku.
Hann benti á að Grænlendingar
hefðu gert loðnusamning við okkur
og að við fáum megnið af þeirri
loðnu sem Erika aflar til vinnslu.
Það skapi útflutningstekjur fyrir
okkur.
„Ég held að menn eigi frekar að
velta því fyrir sér hvort ekki sé
skynsamlegt að gera fiskveiði-
stjórnunarsamning milli Íslands og
Grænlands en að búa til svona
ágreining,“ sagði Gunnþór.
gudni@mbl.is
Löndunarbann á lágu plani
MÖRG DÆMI UM LANDANIR ERLENDRA SKIPA HÉR
Gunnþór
Ingvason
„Þetta er ákveðinn stimpill og viður-
kenning sem við erum búin að fá og
gefur okkur möguleika á því að flytja
út vörur, sem er kannski aðalávinn-
ingurinn,“ segir Helgi Rafn Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Biobú
ehf., sem á dögunum fékk afurða-
stöðvaleyfi hjá Matvælastofnun.
Biobú framleiðir m.a. jógúrt, skyr
og ís úr lífrænni mjólk en leyfið gerir
fyrirtækinu m.a. kleift að taka á móti
hrámjólk beint frá bændum.
„Þetta mun flýta ferlinu, nú þarf
MS ekki að gerilsneyða mjólkina áð-
ur en við fáum hana,“ segir Helgi.
„Við fáum mjólkina strax, í stað þess
að bíða í einn dag áður en hún kemur
til okkar,“ segir hann.
Helgi segir aðstandendur fyrir-
tækisins hafa gælt við þá hugmynd
að flytja vörur sínar út en það sé
ákveðnum vandkvæðum bundið þar
sem geymslutími jógúrtar og skyrs
sé takmarkaður. Hins vegar kæmi
mögulega til greina að flytja út ísinn
sem framleiddur er hjá fyrirtækinu.
Biobú notar lífræna mjólk frá
þremur búum í vörur sínar, þar sem
lífræn framleiðsla hefur verið stund-
uð um árabil. Helgi segir ýmislegt
spennandi á döfinni en t.d. sé von á
nýjum vörum á næstu tveimur mán-
uðum, þ.á m. nýjum skyrdrykk.
holmfridur@mbl.is
Fá hrámjólkina beint heim
og leyfi til að flytja út vörur
Biobú fær afurðastöðvaleyfi Von á nýjum vörutegundum
Mjólk Biobú notar lífræna mjólk frá
þremur búum í vörur sínar.