Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 21
SVIÐSLJÓS
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Neyðin er ennþá til staðar í Sómalíu
og það er enn fólk á faraldsfæti til
Eþíópíu vegna hungurs eða átaka.
Við höfum tekið á hluta vandans en
það er ekki nóg,“ segir Mark Bow-
den, yfirmaður mannúðaraðstoðar
Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu.
Nú þegar ár er liðið frá því að
hungursneyð var lýst yfir í Sómalíu
segir Bowden að tvær og hálf milljón
manna þurfi nauðsynlega á aðstoð að
halda og 1,3 milljónir til viðbótar
þurfi hjálp til að lenda ekki í neyð á
ný. „Dánartíðnin og vannæringin
hefur rénað gríðarlega en er enn
með því mesta sem gerist í heim-
inum,“ segir Bowden.
Ástandið versnar líklega
Það var í júlí í fyrra sem hung-
ursneyð var lýst yfir í landinu í kjöl-
far gríðarlegra þurrka og innri átaka
á milli herskárra íslamista og stjórn-
valda. Talið er að tugir þúsunda
manna hafi látist í hungursneyðinni.
Enda þótt lýst hafi verið yfir að
henni væri lokið í febrúar á þessu
ári, meðal annars vegna aðgerða
Sameinuðu þjóðanna og ýmissa
hjálparstofnana, er mannúðar-
ástandið í landinu þó enn afleitt. Sér-
staklega óttast menn að frekari
þurrkar, sein uppskera og áfram-
haldandi vopnuð átök muni verða
þess valdandi að allt fari aftur í sama
far og í fyrra.
Bowden segir að enn vanti fleiri
hundruð milljónir punda upp á til
þess að hægt sé að hjálpa Sómölum í
neyð. „Mannúðarástandið mun lík-
lega versna enn frekar áður en það
batnar. Þeim sem eru í neyð á líklega
eftir að fjölga á seinni hluta ársins,“
segir hann.
Neyðin af mannavöldum
Hjálparsamtök segja að eitt af
vandamálunum sé að þeirri neyðar-
aðstoð sem hefur borist til Sómalíu
hafi verið ætlað að bregðast við
bráðri þörf. Það hjálpi fólki hins veg-
ar ekki áfram þegar sömu aðstæður
haldi áfram að leika það grátt.
„Það er við hæfi að spyrja hvers
vegna við stöndum aftur frammi fyr-
ir neyðarástandi í Sómalíu aðeins
einu ári eftir eitt umfangsmesta
mannúðarstarf í sögunni þar,“ segir
Richard Middleton í skýrslu hjálp-
arstofnunarinnar Oxfam sem gefin
var út í þessari viku.
Litlar rigningar segir hann vera
augljósu ástæðuna fyrir ástandinu
en bendir á að öðrum þjóðum hafi
gengið betur að glíma við samskonar
vandamál. „Það er fólk sem er hin
raunverulega orsök neyðar-
ástandsins í Sómalíu,“ segir Middle-
ton.
Yfir fjórðungur allra Sómala hefur
annaðhvort flutt sig um set innan
landsins burt frá átökum og hungri
eða flúið land. Flóttamannastofnun
SÞ sagði frá því fyrr í vikunni að
sómalskir flóttamenn væru nú fleiri
en ein milljón. Það byggist á upplýs-
ingum sem safnað hefur verið á und-
anförnum tuttugu árum á meðan
borgarastríð hefur geisað þar. Til
samanburðar hafa aðeins átökin í
Afganistan og Írak neytt yfir milljón
manns til að flýja land.
Hungurvofa sveimar yfir
Sómalíu á nýjan leik
AFP
Í neyð Þessi drengur í flóttamannabúðum í höfuðborginni Mógadisjú er einn þeirra gríðarmörgu Sómala sem eru á
hrakhólum vegna stríðsátaka og hungursneyðar. Í fyrra flúðu einnig hundruð þúsunda til nágrannaríkjanna.
Ár liðið frá því
hungursneyð var
lýst yfir í landinu
Spillt stjórnvöld
» Í skýrslu SÞ sem lekið var í
vikunni kemur fram að ekki sé
vitað hvað varð um 70% af fé
sem verja átti í uppbyggingu
og þróun í Sómalíu.
» Þar segir einnig að fjár-
dráttur, misferli og þjófnaður
einkenni bráðabrigðastjórn
landsins.
» Stjórnin hefur brugðist
ókvæða við þessum ásökunum
og hafnar þeim alfarið. Umboð
hennar rennur út í næsta mán-
uði.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2012
Talið er að sjálfsmorðssprengju-
maður með fölsuð bandarísk skilríki
hafi verið að verki þegar rúta með
ísraelskum ferðamönnum var
sprengd í loft upp í Búlgaríu á mið-
vikudag.
Að minnsta kosti fimm ferða-
mannanna létust í árásinni, auk bíl-
stjórans og árásarmannsins, og 34
særðust. Tveir hinna slösuðu eru
taldir í mjög alvarlegu ástandi.
Ísraelsk yfirvöld hafa bendlað
Hezbollah-skæruliðasamtökin og
írönsk stjórnvöld við árásina. Þau
segja ennfremur að þetta sé mesta
mannfall í árás á Ísraela á erlendri
grundu frá árinu 2004.
„Öll ummerki benda til Írans. Ísr-
ael mun bregðast við írönskum
hryðjuverkum af hörku,“ sagði
Benjamín Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, á miðvikudagskvöld.
Búlgarska ríkisstjórnin birti í gær
myndband úr öryggismyndavélum
þar sem maður sem talinn er vera
sjálfsmorðssprengjumaðurinn sést.
Hann er á fertugsaldri og segjast yf-
irvöld hafa fingraför hans. Þau bíði
nú eftir niðurstöðu DNA-rann-
sóknar. kjartan@mbl.is
AFP
Særð Sjúkraliðar huga að ísraelskri ferðakonu eftir árásina. Ísraelar sendu
lækna og sjúkraliða til að aðstoða særða og flytja heim hina látnu.
Ísraelar saka Írani um
aðild að sprengjuárás
Andrés López
Obrador, fram-
bjóðandi PRD-
flokksins í mexí-
kósku forsetakosn-
ingunum sem fóru
fram þann 1. júlí,
sakar Enrique
Peña Nieto, fram-
bjóðanda PRI-
flokksins, um að hafa notað illa feng-
ið fé og peningaþvætti til þess að
fjármagna kosningabaráttu sína.
López Obrador, sem fékk næst-
flest atkvæði í kosningunum á eftir
Peña Nieto, skilaði inn kæru sinni til
sérstaks kosningadómstóls í vik-
unni. Þar sakar hann andstæðing
sinn um að hafa beitt umfangs-
miklum atkvæðakaupum, fölsuðum
skoðanakönnunum og eytt langt um-
fram það sem kosningalög heimila í
baráttuna. Þá sakar hann fjölmiðla
um hlutdrægni í þágu Peña Nieto.
Dómstóllinn hefur frest fram í
september til að úrskurða í kæru-
málum.
Hafna öllum ásökunum
„Peña Nieto nýtti sér illa fengið
fé, nokkuð sem kallast yfirleitt pen-
ingaþvætti. Það væri mjög alvarlegt
ef yfirvöld rannsökuðu ekki málið.
Þá væru þau að hylma yfir glæp,“
sagði López Obrador þegar hann
kynnti ásakanir sínar.
Hann lagði jafnframt fram ný
gögn um að fé, sem annaðhvort hefði
komið í gegnum misnotkun á op-
inberum sjóðum eða frá skipulagðri
glæpastarfsemi, hefði verið dælt
með leynd inn í kosningabaráttu
PRI-flokksins í gegnum bankann
Monex. Hafa rafræn kort sem bank-
inn gefur út verið tengd starfs-
mönnum kosningabaráttu PRI í
kæru PAN-flokks Felipe Calderón,
fráfarandi forseta, í Guanajuato-ríki.
PRI-flokkurinn hefur ítrekað
hafnað öllum ásökunum um að hafa
haft rangt við í aðdraganda kosning-
anna. Hann sakar López Obrador
um örvæntingu í tilkynningu.
„Það eina sem þessi nýja lygi nær
fram er að gera röksemdafærslur
hans fjarstæðukenndari,“ segir í til-
kynningunni. kjartan@mbl.is
Andrés López
Obrador
Sakar PRI
um pen-
ingaþvætti
www.avon.is
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Gaman í baði með
Naturals Kids
línunni
Flækjusprey
Sjampó og næring
Sturtusápa og freyðibað