Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 16
FRÉTTASKÝRING
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Samkvæmt Veðurstofu Íslands
mun djúp lægð ganga yfir landið
um helgina með mikilli úrkomu. Er
gert ráð fyrir suðaustan strekkingi
og jafnvel hvössum vindi. Þá verð-
ur mikil úrkoma um mestallt land
seinnipart laugardags og sunnu-
dags, minnst þó á Norðaust-
urlandi, og ættu vegfarendur að
hafa varann á, einkum þeir með
eftirvagna. Mannamót verða víðs
vegar um landið um helgina, en
aðstandendur þeirra eru einhuga
um að láta veðrið ekki á sig fá.
Hluti af þjálfun skáta
Landsmót skáta verður sett á
Úlfljótsvatni í dag, en skátahreyf-
ingin á Íslandi fagnar 100 ára af-
mæli sínu í ár. Bragi Björnsson
skátahöfðingi segir að skátarnir
muni ekki láta veðrið skyggja á
landsmótið:
„Baden-Powell, upphafsmaður
skátahreyfingarinnar, sagði einu
sinni á miklu rigningarmóti
snemma á síðustu öld að það gætu
allir farið í útilegu í góðu veðri, en
það þyrfti skáta til þess að vera í
vondu veðri, þannig að við kippum
okkur ekki upp við það.“
Bragi segir að aðstandendur
landsmótsins séu búnir undir
hvaða veður sem er: „Við erum
ávallt viðbúin, það er bara þannig.
Við höfum svo sem alveg séð mót
þar sem hefur verið vont veður
lengi, en við lítum á þetta sem
hluta af þjálfuninni, því að skáta-
hreyfingin er uppeldishreyfing, og
við lítum svo á að það að kljást við
íslenska náttúru með félögum þín-
um sé ákveðið þroskaferli.“ Bragi
segir að þegar vont sé í veðri taki
það að sjálfsögðu mikið á fyrir 11-
12 ára börn, en þau líti þó oftast á
þetta sem skemmtilegt verkefni til
að takast á við: „Ég hef verið á
nokkrum mótum í gegnum tíðina
og ég man ekki eftir því að krakk-
arnir hafi verið að bölsótast þó að
veðrið væri vont.“ Fari veðrið al-
gjörlega úr böndunum segir Bragi
skátana viðbúna því: „Ef allt fer í
handaskol eru aðstæður á Úlfljóts-
vatni þannig að við getum komið
fólkinu í skjól.“
Með belti og axlabönd
Karl Jónsson, einn af umsjónar-
mönnum Húnavöku á Blönduósi,
segir að verið sé að undirbúa við-
búnað við veðrinu og leggur
áherslu á að dagskrá Húnavöku
muni halda sínu striki. Eina spurn-
ingin sé hvort hún verði utan- eða
innandyra, sérstaklega á laug-
ardaginn: „Við erum við öllu búin,
með belti og axlabönd og allt. Það
er því engin ástæða til að láta sig
vanta á Húnavöku þetta árið.“
Jenný Jensdóttir, oddviti
Kaldrananeshrepps, segir að lík-
lega muni komandi lægð ekki hafa
nein teljandi áhrif á Bryggjuhátíð-
ina á Drangsnesi á laugardaginn,
því veðurspáin geri ráð fyrir sól
um daginn þegar mest er að ger-
ast: „Ef veðrið versnar svo um
kvöldið erum við við öllu búin, og
munum færa kvöldvökuna inn í
frystihúsið.“ Á laugardaginn verð-
ur einnig Kátt í Kjós, en þá verða
ýmsir viðburðir og opin hús í Kjós-
inni. Ólafur J. Engilbertsson hjá
Kjósarstofu segir að veðrið ætti
ekki hafa mikil áhrif en að hugs-
anlega verði að hætta við heims-
meistaramót í heyrúlluskreyt-
ingum sem ráðgert er um
eftirmiðdaginn.
Skúli Gautason, framkvæmda-
stjóri Miðaldadaga á Gásum í
Eyjafirði, segir að veðrið muni lík-
lega ekki raska neinu, en þó þurfi
hugsanlega að gera einhverjar
minni háttar ráðstafanir: „Við tök-
um þessu bara af karlmennsku og
æðruleysi.“
Ávallt viðbúnir veðrinu um helgina
Ljósmynd/Gunnlaugur Bragi Björnsson
Ávallt viðbúin Hugsanlegt slagviðri um helgina slær ekki á gleði þeirra sem sækja landsmót skáta á Úlfljótsvatni.
Vond veðurspá hefur lítil sem engin áhrif á mannamót um helgina Aðstandendur að mestu til-
búnir með viðbúnað við rigningunni „Tökum þessu bara með karlmennsku og æðruleysi“
Mannamót um helgina
» Landsmót skáta verður sett
í dag á Úlfljótsvatni og stendur
til 29. júlí. Þar verður fagnað
100 ára afmæli skátahreyfing-
arinnar á Íslandi. Gert er ráð
fyrir um 5.000-6.000 manns
þangað.
» Miðaldadagar á Gásum í
Eyjafirði hefjast í dag og
standa fram á sunnudaginn.
» Húnavaka var sett á Blöndu-
ósi í gær og mun hún standa
fram á sunnudaginn.
» Bryggjuhátíðin á Drangsnesi
hefst á morgun kl. 8:30 og
verður allan daginn.
» Á laugardaginn verður svo
Kátt í Kjós, en dagskráin
hefst kl. 12 á hádegi og stend-
ur fram á kvöld.
Blanda Á landsmót skáta koma oft skátar víðs vegar að úr heiminum.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2012
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það er aukin jarðskjálftavirkni í Kötlu og það eru búnir
að vera miklu fleiri smáskjálftar inni í Kötluöskjunni frá
því í júlí í fyrra en verið hefur undanfarin ár,“ segir
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðl-
isfræðingur og bendir á að um sé að
ræða grunna jarðskjálfta sem að lík-
indum tengjast jarðhitavirkni á svæð-
inu en hún hefur aukist að undan-
förnu. Hefur þetta ástand verið
ríkjandi við eldstöðina í rúmt ár og
bendir Magnús Tumi m.a. á að hlaupið
í Múlakvísl á síðasta ári tengist þess-
ari auknu virkni.
„Þannig að Katla er órólegri núna
en hún er vanalega,“ segir Magnús
Tumi en t.a.m. má nefna að í gær og
fyrradag mældust jarðskjálftar upp á rúmlega tvö stig í
Mýrdalsjökli.
Höfum beðið eftir gosi frá árinu 1955
Seinast gaus Katla öflugu gosi fyrir 94 árum, eða árið
1918, en ómögulegt er að segja fyrir um hvenær næsta
eldgos mun eiga sér stað í eldstöðinni. Magnús Tumi
bendir á að árið 1955 hafi margir átt von á gosi en nú 57
árum síðar er enn beðið eftir Kötlugosi.
„En auðvitað endar þetta með því að það kemur Kötlu-
gos,“ segir Magnús Tumi og bendir á að á árunum 1955,
1967, 1977, 1999 og á árunum 2001-2005 hafi verið mikill
órói á svæðinu með aukinni virkni jarðskjálfta og -hita.
„Það er oft heilmikið líf og jarðhiti inni í virkum öskj-
um, eins og Katla er, en erfitt að segja til um hvað sé und-
anfari eldgosa og hvað ekki,“ segir Magnús Tumi og bæt-
ir við að þó sé ljóst að skjálftana undir öskjunni megi
rekja til jarðhita en ekki til bráðnunar jökuls. „Bráðnun
jökuls ein og sér býr ekki til jarðskjálfta heldur er þetta
tengt jarðhitasvæðum og eldfjallinu.“
Þrátt fyrir að engar augljósar vísbendingar séu uppi
þess efnis að eldstöðin í Mýrdalsjökli muni koma til með
að gjósa á næstunni segir Magnús Tumi vissulega meiri
líkur en minni vera á gosi á næstu misserum. Að sama
skapi er ómögulegt að segja til um hversu öflugt næsta
eldgos í Kötluöskju verði. „Hversu stórt verður næsta
gos? – Það er ekkert í gossögunni sem segir okkur hvort
næsta gos verður stórt. Það virðast ekki vera tengsl þar á
milli að goshlé sé langt og svo komi stórt gos.“
Aukin virkni mælist enn
við eldstöðina Kötlu
Gossagan segir ekkert til um stærð á næsta eldgosi
Morgunblaðið/RAX
Titringur Að undanförnu hefur megineldstöðin Katla í
Mýrdalsjökli reglulega minnt á sig með jarðskjálftahrinum.
Magnús Tumi
Guðmundsson
„Við erum með körfur við veginn
fyrir bæði andar- og hænuegg.
Svo erum við með krukkur við
hliðina á eggjunum og fólk tekur
eftir þörfum og skilur eftir pen-
ing,“ segir Kristbjörg Þórey Ing-
ólfsdóttir, bóndi á Þorfinnsstöðum
í Vesturhópi. Þar ganga endurnar
og hænurnar um frjálsar, en and-
areggið selja þau á 150 krónur og
hænueggið á 50 krónur.
Á Þorfinnsstöðum í Vesturhópi
býr Kristbjörg ásamt eiginmanni
sínum, Jakobi Hermannssyni, og
þremur sonum þeirra, þeim Krist-
jáni, Ingólfi og Hermanni. Allir
eru þeir mjög duglegir að hjálpa
til við búskapinn, en Kristján hef-
ur sérstaklega verið duglegur að
hjálpa til með eggin. „Ég fer á
hverjum degi og kíki hversu mörg
egg eru í körfunni og bæti við eft-
ir þörfum,“ segir Kristján, en
hann hefur staðið í þessu und-
anfarin sumur og segir alltaf nóg
að gera.
Unnur Halldórsdóttir, formaður
Ferðamálasamtaka Íslands, átti
leið fram hjá bænum á dögunum
ásamt vinkonum sínum, en henni
líst mjög vel á framtakið. „Við
vorum á ferðalagi og ákváðum að
stoppa við skiltið. Svo hittum við
þennan unga dreng sem spjallaði
við okkur og sýndi okkur um-
hverfið,“ segir Unnur. pfe@mbl.is
Ljósmynd/Vegahandbókin
Duglegur Unnur Halldórsdóttir, formaður Ferðamálasamtaka Íslands,
heilsaði upp á Kristján frá Þorfinnsstöðum, sem er duglegur að selja eggin.
Selja andar- og hænuegg
við veginn á sumrin