Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2012 Formaður Framsóknarflokksinsfjallar um ríkisfjármálin á heimasíðu sinni og bendir á að sam- kvæmt fjárlögum ársins 2011 hafi hallinn á ríkissjóði átt að vera 36,4 milljarðar króna. Eftir árið hafi fjármálaráðuneytið talið að hallinn yrði 46,4 milljarðar en nú sé komið í ljós að hann hafi verið 89,4 milljarðar.    Hallinn hafi semsagt verið 173% umfram áætl- un fjárlaga, sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson telur að sé Evrópumet í skekkju.    Hann bendir á aðóreiðan hafi verið sambæri- leg árið áður. Gert hafi verið ráð fyrir 87,4 milljarða halla í fjár- lögum ársins 2010. Fjármálaráð- herra hafi svo talið, þegar fjárlögin voru kynnt, að hallinn yrði 13 millj- örðum minni. Þegar ríkisreikn- ingur hafi legið fyrir hafi hallinn hins vegar reynst 123,3 milljarðar.    Sigmundur bendir á að í fjár-lögum fyrir þetta ár hafi að sögn fjármálaráðuneytisins verið dregið úr aðhaldi vegna þess ár- angurs sem hafi náðst.    Hvernig ætli raunveruleg nið-urstaða ársins 2012 verði? Það kemur ekki í ljós fyrr en eftir kosningar,“ segir Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson.    Full ástæða er til að taka undirmeð formanni Framsóknar- flokksins um áhyggjur af fjár- lögum þessa árs. Og enn frekari ástæða er til að hafa áhyggjur af kosningafjárlögunum sem fram- undan eru. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Kosningafjárlög óreiðustjórnar STAKSTEINAR Jóhanna Sigurðardóttir Veður víða um heim 19.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 skýjað Bolungarvík 12 skýjað Akureyri 13 skýjað Kirkjubæjarkl. 13 rigning Vestmannaeyjar 13 skýjað Nuuk 13 heiðskírt Þórshöfn 9 skýjað Ósló 16 skýjað Kaupmannahöfn 17 skýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 18 léttskýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 13 skýjað Glasgow 16 léttskýjað London 20 léttskýjað París 21 skýjað Amsterdam 15 skýjað Hamborg 13 skúrir Berlín 17 þrumuveður Vín 28 skýjað Moskva 17 skýjað Algarve 27 heiðskírt Madríd 38 léttskýjað Barcelona 27 heiðskírt Mallorca 30 heiðskírt Róm 32 heiðskírt Aþena 30 heiðskírt Winnipeg 27 heiðskírt Montreal 20 skýjað New York 22 alskýjað Chicago 26 skýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:59 23:10 ÍSAFJÖRÐUR 3:32 23:47 SIGLUFJÖRÐUR 3:13 23:32 DJÚPIVOGUR 3:21 22:48 Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) fékk engin bein framlög frá ríkinu árið 2011. ,,Sjóðurinn hefur ekki fengið bein fjárframlög frá skattgreiðendum, síðan árið 2005, þegar hluta af ágóða vegna sölu Símans var ráðstafað til sjóðsins,“ segir í frétta- tilkynningu sem sjóðurinn sendi frá sér í gær. Til- efnið er sú framsetning fjármálaráðuneytisins, þeg- ar ríkisreikningur ársins 2011 var kynntur, að rekja megi hluta af bókhaldslegu tapi ríkissjóðs í fyrra til taps fyrri ára í rekstri NSA. Þetta gefur villandi mynd af rekstri og stöðu sjóðsins að mati forsvarsmanna NSA. ,,Eign ríkisins í NSA hefur hins vegar verið of- metin í bókhaldi ríkisins um langt skeið. Um þetta hefur NSA ekkert haft að segja. Mat ríkisins hing- að til hefur ekki stuðst við ársreikninga eða álit sjóðsins,“ segir í fréttatilkynningu NSA. Í frétt fjármálaráðuneytisins í fyrradag var ein af skýringunum sem tilteknar voru á að afkoma rík- issjóðs var verri en áætlað hafði verið, rakin til nið- urfærslu eignarhluta hjá NSA sem svaraði til um 5 milljarða króna. Í fréttatilkynningu NSA í gær seg- ir að endurmat eignanna hafi ekkert með rekstur eða stöðu NSA að gera. NSA hafi lagt mikla áherslu á gæta varúðar við verðmat eigna og sjóð- urinn telji ekki til tekna verðhækkanir á hlutabréf- um í fyrirtækjum sínum fyrr en endanleg sala á sér stað en færir tap um leið og það myndast. Bent er á að eigið fé NSA var jákvætt um 4,6 milljarða hinn 31. desember 2011. omfr@mbl.is NSA fékk engin bein ríkisframlög í fyrra  Forsvarsmenn Nýsköpunarsjóðs segja framsetningu fjármálaráðuneytisins á bókhaldslegu tapi samkvæmt ríkisreikningi ársins 2011 gefa villandi mynd Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð- ardóttir, hefur skipað sr. Ástu Ingi- björgu Pétursdóttur sóknarprest í Bolungarvík- urprestakalli í Vestfjarðapró- fastsdæmi. Hún tekur við embæt- inu 1. ágúst nk. Sr. Ásta er fyrsti presturinn sem hinn nýi biskup skipar, en sem kunnugt er var sr. Agnes sóknarprestur í Bolungarvík þegar hún var kjörin biskup. Tíu manna valnefnd prestakallsins náði sam- stöðu um að mæla með því að sr. Ásta Ingibjörg yrði skipuð í emb- ættið. Fimm umsækjendur voru um embættið: Sr. Ásta Ingibjörg Pét- ursdóttir, Elín Salóme Guðmunds- dóttir cand. theol, sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, Salvar Geir Guðgeirsson cand. theol og Sigríður Rún Tryggvadóttir cand. theol. Sr. Ásta Ingibjörg hefur gegnt embætti sóknarprests í Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli síðan 1. janúar 2009. sisi@mbl.is Nýr prestur til Bolung- arvíkur Ásta Ingibjörg Pétursdóttir  Fyrsti presturinn sem nýr biskup skipar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.