Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2012 Björn Friðfinns- son starfaði drjúgan hluta ævi sinnar að sveitar- stjórnarmálum. Hann var bæj- arstjóri á Húsavík árin 1966- 1972 og var þá í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitarfé- laga og í fjórðungsráði Fjórð- ungssambands Norðlendinga. Frá árinu 1977 til 1987 var hann embættismaður Reykjavíkur- borgar, síðast framkvæmdastjóri lögfræði- og stjórnsýsludeildar borgarinnar. Frá árinu 1982 til ársins 1987 var hann formaður sambandsins og í tengslum við það var hann í skipulagsstjórn ríkisins sömu ár og formaður 1985-1987. Sem formaður sam- bandsins var hann jafnframt ábyrgðarmaður Sveitarstjórnar- mála, sem ég ritstýrði. Hann var afar frjór í hugsun og fús til að brydda upp á nýjungum. Hann var ötull við að efla fræðslustarf sambandsins í formi námskeiða fyrir sveitarstjórnarmenn og starfsfólk sveitarfélaga á ýmsum sviðum. Þegar olíukreppan brast á beitti hann sér fyrir því að haldin yrðu námskeið í stillingu olíukynditækja. Þá skrifaði hann skýringar við sveitarstjórnarlög- in, sem sambandið gaf út 1986 og aftur 1989. Björn vildi hafa skipulag á hlutunum. Þá hafði eins og áður hafði tíðkast að helga hverju tölublaði tilteknu þema eða sveit- arfélagi og framan á kápu blaðs- ins valin mynd í tengslum við það. Hann spurði mig eitt sinn hvaða kápumynd ég hefði hugsað mér að hafa á næstu tölublöðum. Ég svaraði því til að það gæti eins og endranær ráðist af því hvort eitthvert sveitarfélag myndi samþykkja nýtt aðal- skipulag eða halda upp á stór- afmæli sem vert væri að gera skil. Björn taldi rétt að ákveða meginþema fyrir næstu sex tölu- blöð. Ég lét til leiðast, bjó til lista sem ég sýndi honum en áskildi mér rétt til að skjóta inn nýju efni eftir því sem tilefni gæfist til. Reyndin varð sú að listinn yf- ir væntanlegar kápumyndir og þemu dugði til tveggja ára eða ríflega það. Kynni okkar Björns hófust raunar áður en hann varð for- maður sambandsins. Eitt fyrsta samvinnuverkefni okkar var að vinna að sameiningu Húsavíkur og Flateyjar rétt fyrir 1970. Er mér minnisstæð koma mín til Húsavíkur tiltekinn vordag á hafísári er Björn lét strengja sterkan vír fyrir höfnina til þess að halda frá henni ísjökum sem lónuðu úti fyrir og ógnuðu bryggjunum. Þá ræddum við ýmis hugðarefni Björns, en hann mun hafa verið einna fyrstur Ís- lendinga til að sjá fyrir sér og að skrifa um þá möguleika fyrir þjóðina sem gætu falist í hlýn- andi loftslagi og opnun siglinga- leiðarinnar norðan við landið, svo drepið sé á dæmi um áhugamál hans. Ennfremur lagði hann til að Íslendingar tækju þátt í sam- starfi svonefndra vetrarborga á norðurslóðum. Um árabil var Björn einn af framkvæmdastjórum Eftirlits- stofnunar EFTA. Það var því ekki ónýtt að eiga hann að þegar svara þurfti fyrirspurnum frá Evrópuráðinu á ensku lagamáli. Þar reyndist hann mér haukur í horni. Fyrir það er vert að þakka. Björn Friðfinnsson ✝ Björn Frið-finnsson fædd- ist á Akureyri 23. desember 1939. Hann lést 11. júlí sl. Jarðarför Björns var gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík fimmtudaginn 19. júlí 2012. Ég votta Iðunni Steinsdóttur og fjölskyldu hennar innilega samúð. Unnar Stefáns- son samf/Unnar Stefánsson Það var sárt á fallegum sumardegi að fá þær fréttir að Björn Friðfinnsson væri fallinn frá. Ég naut þeirra forréttinda að kynnast og starfa með honum um árabil í dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu, að öllum þeim fjöl- breyttu verkefnum sem þar voru til umfjöllunar. Hæfileikar Björns voru á mörgum sviðum. Hann var einstaklega vel lesinn, fróður og skemmtilegur og hafði frá mörgu að segja. Reynsla hans og þekking var víðtæk og sérstaklega var hann vel að sér í öllu því sem sneri að Evrópu- rétti. Björn studdi vel við sam- starfsfólk sitt og veitti því ómet- anlega leiðsögn. Sú leiðsögn var ekki einungis á hinu faglega sviði því Björn var umfram allt hjarta- hlýr og góður maður sem lagði sig fram um að aðstoða þá sem minna máttu sín í samfélaginu. Nefna má í því sambandi ómet- anlegt framlag hans til málefna flóttamanna hér á landi. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Iðunni, börnum þeirra og öðrum aðstandendum og vin- um. Minningin um góðan dreng lifir. Stefán Eiríksson. Björn Friðfinnsson var ná- tengdur Lagadeild Háskóla Ís- lands stóran hluta sinnar merku starfsævi. Hann útskrifaðist það- an með embættispróf á árinu 1965. Hann hóf stundakennslu við deildina í opinberri stjórn- sýslu á árinu 1977 og sinnti henni allt til ársins 1990. Á þeim tíma öðlast Björn mikla yfirsýn og þekkingu á því réttarsviði í störf- um sínum fyrir Reykjavíkurborg og Stjórnarráðið. Skýringarrit hans um sveitarstjórnarlögin og kennslubók um opinbera stjórn- sýslu, sem hann gaf út á síðari hluta þessa tímabils, bera þess vitni. Breytingar urðu á högum Björns og fjölskyldu hans á árinu 1993 þegar hann var skipaður framkvæmdastjóri Eftirlits- stofnunar EFTA eftir að hafa tekið þátt í samningagerðinni um Evrópska efnahagssvæðið. Eftir heimkomu hans frá Brüssel 1996 naut deildin að nýju krafta Björns en nú við kennslu á sviði Evrópuréttar þar sem reynsla hans á erlendum vettvangi og djúpstæð þekking naut sín vel. Björn var síðan prófdómari við lagadeildina á því sviði allt fram á síðasta dag. Las hann yfir fjölmargar ritgerðir kandídata til embættis- og meist- araprófs auk þess að sinna próf- dómarastörfum við skrifleg og munnleg próf. Öll þessi verkefni leysti Björn óaðfinnanlega af hendi og með bros á vör. Björn var sannur vinur lagadeildarinn- ar og góður liðsmaður. Hans verður sárt saknað. Fyrir hönd samstarfsmanna hans við Lagadeild Háskóla Ís- lands þakka ég Birni fyrir ára- langt samstarf á vettvangi deild- arinnar og sendi fjölskyldu hans einlægar samúðarkveðjur. Bless- uð sé minning Björns. Róbert R. Spanó. Þó að ReykjavíkurAkademían hafi löngum verið talin vígi yngri fræðimanna hefur það verið gæfa hennar að vera vettvangur fræðilega þenkjandi fólks og fræðimanna á öllum aldri. Til að mynda hefur alltaf átt þar aðset- ur fólk á eftirlaunum sem hefur viljað njóta og láta aðra njóta starfskrafta sinna. Í þeim hópi var Björn Friðfinnsson. Við vor- um dálítið forvitin að fá svona karl í hús, sem hafði starfað víða, bæði heima og erlendis við góðan orðstír og í ofanálag átt í útistöð- um við rótgróið valdakerfi stjórnmálanna. Björn lét ekki mikið yfir sér, lágvaxinn, þéttur á velli og hæg- látur í fasi en líklega tóku flestir fljótt eftir glettnisglampa í aug- um og góðlátlegu brosi sem hvarf eiginlega aldrei. Við kynni kom í ljós að þarna var ekki á ferðinni neinn steinrunninn emb- ættismaður heldur víðsýnn og fjölmenntaður maður með opinn huga, sem gat jöfnum höndum frætt okkur um lögfræðileg álita- mál, refilstigu stjórnkerfa og sérkenni mannlífsins á Norður- landi, ekki síst í Grímsey þaðan sem hann var ættaður. Skýring- ar hans voru alltaf ljósar og ein- faldar og það var ógleymanlegur kaffitími þegar hann útskýrði á töflu eins og gamalreyndur kennari, ættartengsl sem voru svo flókin að Grímseyingur nokkur var í raun afi sjálfs sín. Björn starfaði að mannúðar- málum og var hjálpsamur að eðl- isfari, laumaði bókum og fróðleik að mönnum þegar hann vissi að gagn væri að. Hann var einstak- lega velviljaður Reykjavík- urAkademíunni og hollráður okkur sem þar vorum við stjórn- völinn því oft þurftum við að glíma við skriffinnsku sem við höfðum litla þekkingu á. Björn og Iðunn tóku virkan þátt í félagsstarfi Akademíunnar og tóku meira að segja á móti okkar stóra hópi í sínum fallega sumarbústað fyrir austan fjall þar sem við nutum gestrisni þeirra og elskusemi. Björn hafði framsögu á nokkrum málþingum og málstofum á vegum RA og veitti okkur þannig örlitla innsýn í þau spennandi verkefni sem hann átti í handraðanum en hafði ekki áður haft næði til að sinna. Allir héldu að Björn ætti í vændum notaleg eftirlaunaár þar sem hann gæti í senn notið ávaxtanna af heilladrjúgu ævi- starfi og fengist við þessi fjöl- breyttu hugðarefni. Illvíg veik- indi bundu enda á allt slíkt og við í ReykjavíkurAkademíunni sökn- um góðs vinar. Við sendum Ið- unni og öllum afkomendum Björns okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Fyrir hönd félaga í ReykjavíkurAkademíunni, Viðar Hreinsson. Ingunn Ásdísardóttir. Þorleifur Hauksson. Kveðja frá Rauða krossinum Björn Friðfinnsson var í hópi þeirra sem tóku á móti fyrsta hópi víetnamskra flóttamanna sem komu til Íslands árið 1979 og aðstoðaði æ síðan þá flótta- menn sem komu til Íslands við að koma undir sig fótunum í nýju landi og aðlagast íslensku sam- félagi. Björn og eiginkona hans Ið- unn Steinsdóttir héldu til dæmis um árabil veislu á heimili sínu á þrettándanum fyrir þá flótta- menn sem komu árið 1979 og þá sem komu í kjölfarið vegna ætt- artengsla. Alltaf var notalegt andrúmsloft í þessum veislum og voru þær góður vettvangur fyrir flóttafólkið sem annars hittist sjaldan til að koma saman. Björn sat í stjórn Rauða krossins 1977-1991 og var for- maður flóttamannanefndar 1979- 1993 en á þeim árum var tekið á móti hópum flóttamanna frá Ví- etnam og Póllandi. Rauði krossinn þakkar Birni hið mikla og fórnfúsa starf sem hann lagði fram í nafni Rauða krossins í þágu flóttamanna. Björn vann ekki aðeins frábært sjálfboðastarf á þessum árum heldur var hann og fjölskylda hans þessum skjólstæðingum ómetanlegur bakhjarl alla tíð. Þannig aðstoðaði Björn fólkið við að kaupa íbúðir, stofna fyr- irtæki, fá vinnu og var því alltaf innan handar ef eitthvað bjátaði á. Víst er að mörg úr þeirra hópi hugsa til hans með hlýhug fyrir veitta aðstoð og vináttu í gegnum árin. Fyrir hönd félaga, sjálfboða- liða, starfsfólks og stjórnar Rauða krossins á Íslandi þökk- um við Birni fyrir fórnfúst starf hans með félaginu. Eiginkonu hans og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur. Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins. Ég var staddur úti við í Ný- höfn á Melrakkasléttu er Iðunn hringdi og sagði mér lát Björns. Ég horfði í átt til Grímseyjar – staðarins sem ég vissi að Birni var svo kær og hugsaði hlýtt til góða vinar míns. Þangað fór hann sem barn til ömmu sinnar er heimsstyrjöldin stóð yfir – þótti öruggari þar gegn vítisvél- um styrjaldarinnar en á götum höfuðborgarinnar. Í Grímsey leið Birni vel og árlega fór hann þangað í traust athvarf og tók tryggð við staðinn. Þaðan má sjá til heimabyggðar minnar. Birni kynntist ég fyrir um þrjátíu árum er við gengum í Lionsklúbbinn Víðarr þar sem Björn átti síðar eftir að gegna fjölda trúnaðarstarfa. Við náðum vel saman; einhver bönd tengdu – kannski var það norðrið – Grímsey og Melrakka- slétta, þessar hrjóstrugu byggðir en bestu staðir í heimi að mati þeirra sem þar slitu litlum skóm. Við störfuðum báðir á vegum hins opinbera og gátum rætt ým- is mál út frá okkar reynslu og spjallað um menn og málefni sem við þekktum. Báðir höfðum við gaman af fólki – ekki síst sög- um af fólki og gjarnan sáum við kómísku hliðarnar á þeim mál- um. Björn var hafsjór af sögum og sögumaður aldeilis ágætur – átti stutt að sækja þá eiginleika. Kom það oft í hans hlut að leggja til einhver gamanmál á klúbb- fundum – fróðleik og stundum hreina vitleysu sem aldrei er of mikið af í lífinu. Björn kunni líka þá list að segja aldrei frá á kostnað annarra og fjarri honum að miklast af sjálfum sér. Björn var góður Lionsfélagi. Sagði alltaf já væri til hans leitað og taldi hlutina aldrei eftir sér. Eftirminnilegt er mér er við fé- lagarnir hreinsuðum drasl með Hellisheiðarvegi. Þá mætti Björn með fullan bíl af krökkum og stýrði liði sínu vasklega og fyllti sjálfur hvern ruslapokann á fæt- ur öðrum. Man ég hvað ég dáðist að þessum háttsetta embættis- manni að hann skyldi óragur taka þátt í svona ruslatínslu. En svona var Björn; heimsmaður og háttsettur en jafnframt svo fjarri honum að telja eitt verkið fínna en annað. Já – ég vissi að hverju dró hjá Birni og nú er hérvistardögum hans lokið. Eftir því sem árin líða fer maður að skynja tilveruna í öðru ljósi en á ungdómsárum. Æ oftar hugsar maður til þess hvað maður getur verið Guði þakklát- ur fyrir fallegt og gott líf; að hafa eignast barnahóp og barnabörn og fengið að fylgjast með þeim dafna. Og maður skynjar að þetta er hið eina sanna hlutverk- ið í lífinu. Þegar þessu öllu miðar vel áfram getur maður kvatt sáttur. Ég má fullyrða að Björn var hamingjusamur í sínu einka- lífi – hafði átt farsælt og gott líf og það er í raun meira en svo margir geta sagt. Hann má því kveðja sáttur. Við Lionsfélagar hans í Víð- arri komum til með að sakna góðs og trausts vinar og oft mun verða vitnað í Björn. Þannig myndi hann vilja hafa það. Um leið og við félagarnir kveðjum Björn með virðingu og söknuði, færum við Iðunni, börn- um hans og öðru venslafólki okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Ég kveð minn góða vin og bið honum blessunar Guðs um alla eilífð. Á útfarardegi mun ég horfa til Grímseyjar – hugsa til Björns og fara með bæn okkur báðum til góða. F.h. Lionsklúbbsins Víðarrs, Níels Árni Lund. Kveðja frá Landssambandi sumarhúsaeigenda. Björn Friðfinnsson er látinn. Hann var einn frumkvöðlum í starfi fyrir Landssamband sum- arhúsaeigenda. Björn var mjög ráðagóður og vandvirkur í öllum þeim málum sem hann tók að sér fyrir sambandið. Björn var kjör- inn annar formaður sambandsins og sat hann til dánardægurs í stjórn og varastjórn sambands- ins. Birni var veitt fjölda viður- kenninga fyrir störf sín hjá sam- bandinu og var kjörinn heiðursfélagi sambandsins þann 28. apríl, 2008. Björn var góður húmoristi og var nærvera hans góð. Þá sagði Björn mér að þegar hann var bæjarstjóri á Húsavík þá hefði hann ásamt prestinum og frysti- hússtjóranum á staðnum borið sama fornafn. Þar sem þeir voru eðli starfa síns allir áberandi í bæjarlífinu þótti rétt að aðgreina þá í sundur með forskeyti. Þann- ig að bæjarstjórinn var kallaður Aðalbjörn, presturinn Guðbjörn og frystihússtjórinn Ísbjörn. Síð- an hló Björn smitandi hlátri svo undir tók. Það var oft gott að leita í smiðju félaga míns með góðar sögur sem hægt væri að endurflytja á mannamótum. Björn segir sjálfur svo frá að sambandið væri verkfæri til að ná fram ýmsum hagsmuna- og áhugamálum þeirra sem tengjast frístundahúsabyggðinni. Björn og Iðunn höfðu mikið dálæti á því að dvelja í frístunda- húsinu sínu í Ásgarðslandi. Eða eins og Björn sagði sjálfur frá þar sem lóan, spóinn og krían og aðrar vængjaðar tónlistarverur fá einar rofið kyrrðina langtím- um saman. Þar taldi Björn að menn fengu ekki eingöngu notið kyrrðar og fuglasöngs, heldur fengu menn þar útrás fyrir rækt- unarþörf og viljann til að græða landið skógi og blómgróðri. Björn var mikill baráttumaður í okkar röðum og gerði hann sér grein fyrir hversu mikilvægt verkfæri sambandið væri til að ná fram ýmsum hagsmuna- og áhugamálum í frístundahúsa- byggðinni. Hann kom m.a. að undirbúningi og framkvæmd að koma öryggismerkingum á öll sumarhús í landinu. Því starfi er ekki lokið og munum við halda uppi merkjum félaga okkar til allrar framtíðar. Við söknum sárt félaga okkar. Minning um góðan mann lifir áfram, líkt og sólin sem gengur til viðar en heldur alltaf áfram að lýsa. Landssamband sumarhúsa- eigenda, stjórn þess og starfs- menn sendum Iðunni og fjöl- skyldu hennar hugheilar samúðarkveðjur. Sveinn Guðmundsson. Kristjana Milla ólst upp við gott atlæti á heimili foreldra sinna, þeirra Sigríðar Hafstein og Geirs Thorsteinsson útgerð- armanns. Foreldrar hennar voru þátttakendur í atvinnuuppbygg- ingu þjóðarinnar og menningu. Hannes Hafstein, skáld og stjórnmálamaður, var móðurafi hennar, þannig að sterkir stofnar voru henni að baki. Stúlkan gekk menntaveginn og lauk prófi frá VÍ aðeins 17 ára og fór svo í hagfræðinám til USA. Hún hefur ung sýnt ein- beitni og áræði með því að fara á stríðstímum siglandi þangað. Námið gekk vel hjá Millu og um það leyti er heim skyldi farið kynntist hún mannsefni sínu, Al- freð Elíassyni flugmanni, er var þá í USA að taka á móti DC-4 flugvél Loftleiða. Það var ekki aftur snúið hjá þeim og þau giftu sig 1947. Þarna í byrjun Loftlei- ðaævintýrisins hófu þau svo bú- skap saman í Hlíðunum og eign- uðust sjö börn. Fyrsta barnið, Geir Alfreð, lést í barnæsku að- eins 2ja ára gamall. Það var ungu hjónunum þungt högg. Árin sem á eftir komu reyndust þeim happadrjúg, stór barnahópur, glæsilegt heimili í Haukanesinu og Loftleiðir blómstraði undir styrkri stjórn bónda hennar. Saga hans og félagsins hefur ver- ið gefin út í bók og einnig kvik- mynduð. Það var á Haukanesárunum sem við kynntumst, Haukur Al- freðsson, Bjarni Guðmundsson og undirritaður. Við höfðum fengið auðsótt leyfi þeirra hjóna Kristjana Milla Thorsteinsson ✝ Kristjana MillaThorsteinsson viðskiptafræðingur fæddist í Reykjavík 26. maí 1926. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. júlí sl. Útför Kristjönu Millu var gerð fimmtudaginn 19. júlí 2012. til hraðbátaútgerð- ar í bátaskýli húss- ins. Mér er minnis- stætt hve vel Milla tók á móti okkur strákunum eftir siglingar okkar, með mat og drykk. Í 41. kafla fyrstu Mósebókar segir að eftir sjö góð ár komi sjö mögur ár. Árið 1970 veiktist Alfreð alvarlega og á sama tíma tók að halla undan flugrekstri í heim- inum. Í hans félagi voru einnig komin upp innanhússátök og deilur um framtíðarstefnu sem og sameiningu við Flugfélag Ís- lands, sem stjórnvöld í landinu svo knúðu fram. Þá tóku við erf- iðir tímar hjá Millu en aftur sýndi hún úr hvaða efni hún var og af hverjum hún var komin. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika fór hún aftur til mennta og lauk stúdentsprófi og háskólaprófi í viðskiptafræðum. Hún blandaði sér svo í félagsmál og stjórnmál. Seinna tók hún sæti í stjórn Flugleiða er Alfreð gat ekki lengur sinnt þeim sökum heilsu- brests. Það sem stendur upp úr í þátt- töku þeirra hjóna og samherja þeirra í Loftleiðaævintýrinu er að Icelandair byggir sinn góða árangur í dag á grunn viðskipta- hugmynd Loftleiðamanna, þ.e. að bjóða útlendingum ódýrt flug yfir Norður-Atlantshafið og ná þannig einnig að bjóða Íslend- ingum tíðar ferðir til beggja átta. Þannig varð Loftleiðir fyrsta lág- gjaldaflugfélagið í heiminum. Það er þó nokkuð afrek að koma sex börnum á legg, stýra stóru heimili í útkanti höfuðborg- arinnar og um leið að vera stoð og stytta eiginmanns í krefjandi starfi hans. Öll þessi verkefni leysti Milla vel af hendi. Ýmsir erfiðleikar og heilsu- brestur gerði henni lífið erfitt síðustu árin og mun hún vera hvíldinni fegin. Sigurður Karlsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.