Morgunblaðið - 20.07.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2012
ÚRVAL FATNAÐAR OG GJAFAVÖRU
Opið virka daga frá 10-18
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
Skátastarf á Íslandi er með miklum
blóma og um að gera að hvetja unga
fólkið til að ganga til liðs við þessa
gamalgrónu hreyfingu, sem hefur
starfað hér í heila öld. Á heimasíðu
Bandalags íslenskra skáta (BÍS)
skatar.is, er hægt að kynna sér hvað
er í boði og út á hvað það gengur að
vera skáti. Þar kemur t.d. fram að
markmið skátahreyfingarinnar sé að
þroska börn og ungt fólk til að verða
sjálfstæðir, virkir, hjálpsamir og
ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.
Skátar hittast almennt vikulega á
fundum og vinna í hópastarfi að
margþættum verkefnum, taka þátt í
útilífi og alþjóðlegu skátastarfi.
Hvort sem það er gönguferð, varð-
eldur, næturleikur, hellaferð, hnúta-
kennsla, tjaldútilega, skátaheiti, úti-
eldun, skátastarf á netinu, skáta-
vígsla eða kakó og kex. Nú er lag að
tékka á skátunum fyrir krakkana.
Vefsíðan www.skatar.is
Morgunblaðið/Ernir
Skátar Frábær félagsskapur og skemmtilegt starf bæði um sumar og vetur.
Fjölbreytt skátastarf
Nú þegar sólin hverfur um stund á
bak við skýin sem ætla að gráta
nokkrum regndropum á okkur mann-
fólkið hér á Íslandi, er full ástæða til
að hvetja fólk til að njóta þess. Vissu-
lega er fólk fljótt að fá leiða á væt-
unni en það er tímaeyðsla að kvarta
og kveina yfir því sem ekki er hægt
að breyta. Miklu skemmtilegra er að
skottast út í rétta gallanum og hafa
hann vatnsheldan og njóta þess að
finna hlýja rigningardropa hreinsa
andlitið af inniveru. Útivera er ekkert
minna skemmtileg þó ekki sé glamp-
andi sól, hún getur meira að segja
orðið frábær, þá ilmar gróður jarðar.
Endilega…
…njótið regns
og hlýinda
Morgunblaðið/Eggert
Rigning Hún getur verið góð.
Þegar rigningin hellist yfir okkur get-
ur verið heillaráð að vera innandyra á
góðum stað þar sem hægt er að njóta
menningar. Eitt af því sem hægt er að
gera á morgun, laugardag, er að
bregða sér í Rangárþing á tónleika í
Selinu á Stokkalæk. Þar ætlar
Kammerhópurinn Stilla að koma
fram kl. 16 og yfirskrift tónleikanna
er „Tónlist frá ýmsum löndum –
Rússland, Frakkland, Ítalía, Svíþjóð,
Ísland, Rúmenía og Írland“.
Kammerhópurinn Stilla er skip-
aður strengjakvartett og söngvurum
og ætla þau að leika allt frá eldfjör-
ugum þjóðlögum til hádramatískra
sönglaga, auk þess sem dúettar og
tríó úr heimi óperunnar fá að hljóma.
Flutt verða verk eftir Rachmaninoff,
Bellini, Sibelius, Bizet o.fl. auk ís-
lenskra söngperlna eftir Karl O. Run-
ólfsson, Atla H. Sveinsson og Sigfús
Halldórsson. Strengjakvartettinn
flytur svo fjöruga þjóðdansa í eigin
útsetningum. Um að gera að koma
líka við á Kaffi Langbrók í Fljótshlíð
nú eða Café Eldstó & Húsi leirkera-
smiðsins á Hvolsvelli.
Kammerhópurinn Stilla heldur tónleika í Selinu á Stokkalæk
Gott að bregða sér út úr bænum
og njóta tónlistar í sveitinni
Glæsilegur hópur Þau eru strengjakvartettinn og söngvararnir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég byrjaði í skátunum ívetur og finnst það alvegfrábært. Frændur mínirsem eru í skátunum voru
alltaf að segja mér frá einhverju
skemmtilegu þar og þess vegna vildi
ég prófa og ég sé ekki eftir því,“ seg-
ir Thelma Líf Sigurðardóttir sem er
í skátafélaginu Hraunbúum í
Hafnarfirði. Hún er fálkaskáti en að
liðnu þessu sumri mun hún færast
einu stigi ofar og verða dróttskáti.
Innan fálkanna eru strákarnir kall-
aðir riddarar og stelpurnar rauð-
skinnur. „Við hittumst einu sinni í
viku og gerum allskonar skemmti-
legt, búum til ís, leirum og ótal
margt fleira. Svo eru útilegur reglu-
lega allan ársins hring og við lærum
að bjarga okkur úti í náttúrunni.“
Söngur við bálköst
Ekki var laust við að Thelma
Líf væri með tilhlökkunarblik í auga,
hún getur vart beðið eftir því að
sunnudagurinn renni upp, því þá fer
hún á sitt fyrsta Landsmót skáta.
„Þetta verður heil vika í tjaldi við
Úlfljótsvatn og það mæta um tvö
þúsund skátar, alls staðar að úr
heiminum. Þetta er stórt alþjóðlegt
mót og virkilega spennandi. Við
verðum nokkrar vinkonur saman í
tjaldi og ætlum að skemmta okkur
vel, enda verður flott dagskrá, alls-
konar keppnir, fjölbreyttar göngu-
ferðir, bátsferðir, kveikt verður bál,
sungið og ótal margt fleira.“
Saumaði kjól sjö ára
Thelma Líf er hugmyndarík og
skapandi stelpa og gerði sér lítið
Skátastelpa með
sköpunargáfu
Hún er á leið á skátamót og verður heila viku í tjaldi við Úlfljótsvatn þar sem
mæta um tvö þúsund skátar, alls staðar að úr heiminum. Thelmu Líf er margt til
lista lagt, hún prjónar, heklar, föndrar og bakar. Hún gerði sér lítið fyrir og hann-
aði og prjónaði sér húfu fyrir skátamótið með merki skátahreyfingarinnar.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Dýravinur Thelma Líf að leika við hundinn sinn hana Sögu.