Morgunblaðið - 20.07.2012, Side 36

Morgunblaðið - 20.07.2012, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þið gætuð lent í átökum við foreldra ykkar eða yfirboðara. Hættu að remabst þetta og elskaðu sjálfan þig eins og þú ert í augna- blikinu - þú þarft ekkert að breyta neinu. 20. apríl - 20. maí  Naut Allskyns hlutir eru að koma upp á yf- irborðið og valda vandræðagangi í sam- skiptum þínum við aðra. Mundu því að koma fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Stundum á fólk ákaflega erfitt með að koma sér að hlutunum. Mundu að þú getur lært margt um sjálfa/n þig af samskiptum þín- um við aðra og því hvernig þú tekur á hlut- unum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefðir gott af því að fara í stutt ferðalag í dag. Haltu athyglinni á starfinu því að það heldur heimilinu uppi. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur unnið skipulega og nú er komið að næsta stigi málsins. Og þér virðist standa á sama. Það eru ekki allir jafn þroskaðir og þú, svo þú átt skilið klapp á bakið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Eitthvað það liggur í loftinu sem gerir þig óöruggan. Umönnun foreldra og barna fell- ur í þinn hlut núna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhver hefur algerlega gefist þér. Nýttu þér hráan kraft himintunglanna til þess að miða þér áleiðis, í stað þess að láta nýjan og yndislegan snertiflöt villa þig af leið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur átt erfitt með að ein- beita þér í vinnunni að undanförnu og þarft að beita þig meiri aga. Líttu á björtu hliðarnar og þá kemur hitt af sjálfu sér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það má auðveldlega skemmta sér án mikils tilkostnaðar. Láttu ekki einhver smá- atriði verða til þess að draga úr þér kjarkinn og brettu bara upp ermarnar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Samband mun sýna á sér nýja og skemmtilega hlið, sem fær þig til að eyða meiri tíma fyrir framan spegilinn. Ekkert er eins frá- hrindandi og talsmaður sem veit ekki hvað hann er að tala um. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Notaðu tímann til þess að hugsa um vináttuna. Leyfðu þeim að kynna hug- myndir sínar áður en þú leggur þínar fram og talaðu svo fyrir málamiðlun. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér hefur öðlast það tækifæri að fá yf- irsýn yfir visst mál og nú er rétti tíminn til að rannsaka það nánar. Taktu í útrétta hönd þeirra sem vilja aðstoða þig. Það varð mörgum fagnaðarefni erspurðist að bar hefði verið opn- aður á Hrafnistu. Ármann Þor- grímsson orti þegar: Með aldrinum þá eykst mér lyst í mig vínið þyrstur sloka Ég hér með sæki um heilsársvist á Hrafnistu til æviloka. Ágúst Marinósson sendi honum kveðju: Fellur Manna barinn best breyskur fetar götu hála. Fullur deyja fyrir rest fyrir Guði reifur skála. Þá Ólafur Stefánsson: Ef ég fengi inni þar að ævi minnar lokum, hlakka ég til að hafa bar og hass í stórum pokum. Símon Jón Jóhannsson stal nokkr- um vísuorðum eins og siður er meðal hagyrðinga þegar þeir yrkja til spari: Lífið verður hopp og hí á Hrafnistu ég mildur bý, „því fyrir því gefst ekkert garantí að hjá guði ég komist á fyllerí.“ Sigmundur Benediktsson er í öðr- um hugleiðingum: Æsku frá að ellitíð auðgar glóð í muna, enda tengi ár og síð ást við ferskeytluna. Davíð Hjálmar veltir ástinni líka fyrir sér eða afbrigði hennar, sagt sé að Mick Jagger sé gríðarlegur kvennamaður og hafi komist yfir á milli 4 og 5 þúsund konur, a.m.k. Sé miðað við 4.562 konur, hann hafi byrjað 18 ára og sé enn að, þá sé út- koman þessi: Víst er Jagger vinnuþjarkur mesti; vel hann má nýja konu á fjögra daga fresti fara á. Þegar ég byrjaði að skrifa vísna- þætti í Morgunblaðinu fyrir tæpum tveim áratugum fékk ég kærkomið símtal frá „alþýðuskáldinu“ Haf- steini Stefánssyni á Selfossi, sem gaukaði að mér nokkrum afbragðs- vísum, einföldum og tærum kveð- skap. Í bók hans Töfrum steinsins er stakan: Íslendingum yndi jók oft á langri vöku ef þeir gátu opnað bók eða smíðað stöku. Og hann orti: Ýmislegt ég ekki skil og engan veginn þekki. Hvernig vísan verður til veit ég bara ekki. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Jagger, ástarvísum og bar á Hrafnistu G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d BÁRÐUR LANDKÖNNUÐUR, HVER ER GALDURINN Á BAK VIÐ ÞAÐ AÐ KOMAST AF Í ÓBYGGÐUM? RIKKI AÐSTOÐAR MAÐUR MINN, HORFÐU ALDREI BEINT Í SÓLINA... ...OG ALDREI REYNA AÐ MJÓLKA GREIFINGJA ÞETTA ER UPPÁHALDS ÞÁTTURINN MINN MAGINN MINN SEGIR AÐ ÞAÐ SÉ KVÖLDMATUR ÆI, NEI ÞAÐ ER ENNÞÁ LANGT Í KVÖLDMAT ÉG ÞOLI EKKI ÞEGAR MAGINN Á MÉR LÝGUR AÐ MÉR HVAÐ MÁ BJÓÐA YKKUR AÐ HEYRA NÆST? HVAÐ MEÐ, „ÉG ÆTLA AÐ HÆTTA ÞESSARI VITLEYSU OG FÁ MÉR ALVÖRU VINNU?” HJÁLP! ÁSTARENGLARNIR ERU MÆTTIR! Víkverji er með heimakærarimönnum og hreyfir sig helst ekki úr sófanum ef hann á þess kost. Jú, inn á milli tekur Víkverji góða spretti í ræktinni, bara svona til þess að halda mestu aukakílóunum í burtu, en ef hann ætti þess kost myndi hann líklega hvorki hreyfa legg né lið nema þegar það hentaði honum. x x x Það vakti því furðu ýmissa Vík-verjavina þegar þeir fréttu að Víkverji og frú hefðu ákveðið að klífa Esjuna um daginn. Sú ákvörðun var að vísu tekin undir miklum fé- lagslegum þrýstingi, en forvitnin rak Víkverja áfram, þar sem of margir vina hans létu eins og líf þeirra hefði fyrst byrjað þegar þetta tiltekna kennileiti Reykjavíkurborgar hafði verið sigrað. Það að fara upp í Hall- grímskirkjuturn telst víst ekki með. x x x Skemmst er frá því að segja aðVíkverji naut fjallgöngunnar ekki. Ekki var liðinn langur tími þeg- ar hann fékk tak í bakið og strengi í lærvöðva, og það var bara á fyrstu metrunum. Þó að sársaukinn liði fljótt hjá voru Víkverji og frú bæði komin með nóg við skilti 4, hið síðasta áður en komið er að Steini. Kannski skipti þar einhverju máli að Víkverji kaus að vera í bómullarskyrtu við fínu gönguskóna sína, en helstu at- hugasemdir vina hans við ljósmyndir af afrekinu sneru að klæðaburði hans ofan mittis. x x x Því miður eru það viðtekin sannindiað Esjan sé ekki sigruð nema menn hafi í það minnsta farið upp að Steini, og því bíður það verkefni enn áður en hægt er að strika Esjuna af „fötulistanum“ svokallaða. Hins veg- ar eru Víkverji og frú sammála um að þegar og ef það gerist þá verði sú ferð farin algjörlega á þeirra eigin forsendum. Þá verður farið upp á hraða snigilsins, og í farteskinu verð- ur nóg af nesti og svaladrykkjum til þess að njóta á fjölmörgum áningar- stöðum. Þá blundar í Víkverja sú löngun að fara að þessu sinni í jakka- fötum, bara til þess að gleðja vini sína enn meira. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá, sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá líka, sem þá elska. (Lk. 6, 32.) AF HVERJU EKKI AÐ FÁ MEIRA FYRIR MINNA? Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is Pípulagnahreinsir Perfect Jet Síuhreinsihaus Stuðningssæti U.V. Áburður fyrir lok Glasabakki Yfirborðshreinsir fyir skel FituhreinsirFroðueyðir Síuhreinsir 3499,- 1249,- 2899,- 2899,-2999,- 3299,- 3499,- 4499,- 1999,- *Öll verð eru m/vsk og birt án ábyrgðar Úrval fylgihluta fyrir heita potta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.