Morgunblaðið - 07.08.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Billund
*Flugsæti aðra leið með sköttum.
Netverð á mann.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri • Sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
13.900 kr.*flugfr
á
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Töluverð umferð var á landinu í gær eins og
við mátti búast við lok verslunarmannahelg-
ar, en umferðin var mest um Kjalarnes og
Hellisheiði.
Um klukkan 18 í gærkvöldi höfðu 6.420
bílar farið um Hellisheiði frá miðnætti og var
meðalumferð þar rúmlega 15 bílar á mínútu,
en mikil umferð var á öllu Suðurlandi.
Fjöldi bíla frá Landeyjahöfn
4.467 bílar höfðu farið um Þjórsárbrú
klukkan 18 í gær og var meðalakstur þar
rúmlega fimm bílar á mínútu. Á sama tíma
höfðu 4.032 bílar farið yfir Markarfljótsbrúna
en öll umferð frá Landeyjahöfn fer um hana.
Umferðin um Steina undir Eyjafjöllum var
töluvert minni eða 1.586 bílar en það sýnir
hversu gríðarleg umferð er frá Landeyja-
höfn.
Svo virðist sem margir nýti sér Mosfells-
heiði til að komast til borgarinnar, en umferð
um Gjábakkaveg frá miðnætti var einnig
töluverð, 2.475 bílar, og fóru að meðaltali sjö
bílar á mínútu þar um klukkan 18 í gær.
Lítið um hraðakstur
Nokkur umferð var einnig um Vesturland.
Um Hafnarfjall höfðu 4.889 bílar farið frá
miðnætti til klukkan 18 og meðalumferð þar
var tæplega 17 bílar á mínútu. Á Kjalarnesi
var umferðin öllu meiri, eða 6.577 bílar. Með-
alumferðin var svipuð um klukkan 18 eða
rúmlega 16 bílar á mínútu.
Þær lögreglustöðvar sem náðist samband
við gáfu allar þær upplýsingar að umferðin
hefði gengið nokkuð vel, en lítið var um hrað-
akstur.
Umferð þung en áfallalaus
Umferðin var mest um Kjalarnes og Hellisheiði Margir nýttu sér Mosfells-
heiði á leið sinni til borgarinnar Gríðarlega mikil umferð frá Landeyjahöfn
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á heimleið Umferðin var mikil í gær en gekk til-
tölulega vel fyrir sig, að sögn lögreglunnar.
Norðurlandamótið í hestaíþróttum
var haldið í Eskilstuna í Svíþjóð
um helgina. Íslenska landsliðinu
vegnaði vel og fékk fjögur gull á
mótinu.
Agnar Snorri Stefánsson var þar
fremstur í flokki, en hann vann
þrjú gull á mótinu. Hann keppti á
hestinum Feng frá Staagerup og
urðu þeir Norðurlandameistarar í
fimmgangi, slaktaumatölti og sam-
eiginlegum fimmgangsgreinum.
Hann var tolleraður af landsliðs-
félögum sínum að lokinni keppni.
Þá varð Flosi Ólafsson Norð-
urlandameistari í tölti ungmenna á
Kveik frá Lian. Þeir fengu einnig
silfur í fjórgangi og brons í sam-
anlögðum fjórgangsgreinum.
Reynir Örn Pálmason endaði í
öðru sæti í slaktaumatölti á Tór frá
Auðsholtshjáleigu og Guðlaug
Marín Guðnadóttir varð önnur í
250 metra skeiði á Toppi frá
Skarði.
Hafliði Halldórsson var liðsstjóri
íslenska landsliðsins. Ljósmynd/Hannes Sigurjónsson
Íslenska landsliðinu gekk vel á Norðurlandamótinu í hestaíþróttum
Agnar
vann þrjú
gull á NM
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Þetta er ekki formlegur hópur með
erindisbréfi heldur einungis vinnu-
hópur og hver ráðherra mætir sjálfur
eða velur sína full-
trúa,“ segir Stein-
grímur J. Sigfús-
son ráðherra
aðspurður hvort
búið sé að skipa
vinnuhóp um hið
svokallaða Gríms-
staðamál, en rík-
isstjórnin til-
kynnti nýlega að
til stæði að skipa
slíkan hóp.
Að sögn Steingríms munu þau
ráðuneyti sem nú þegar tengjast mál-
inu, eða gætu mögulega tengst því,
taka þátt í starfi vinnuhópsins. „Ég
held að þetta séu fjögur eða fimm
ráðuneyti. Það eru semsagt iðnaðar-,
innanríkis-, sjávarútvegs- og land-
búnaðar-, umhverfis- og svona eftir
atvikum fjármálaráðuneytið og utan-
ríkisráðuneytið,“ segir Steingrímur
og bendir á að málið tengist þó mest
þremur ráðuneytum, þ.e. innanríkis-,
iðnaðar- og sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneyti.
Aðspurður hvort vinna hópsins sé
hafin segir Steingrímur: „Það var
strax byrjað að tína saman gögn og
undirbúa fund sem verður í þessari
viku.“ Að sögn Steingríms er ekki
ennþá búið að setja vinnu hópsins
tímamörk. „Við þurfum að átta okkur
á því hve mikið menn telja sig þurfa
að skoða,“ segir Steingrímur og bætir
við að menn muni taka sinn tíma til að
skoða þetta vel og starfið muni taka
að minnsta kosti nokkrar vikur.
Vinnuhópur um
Grímsstaðamál
fundar í vikunni
Steingrímur J.
Sigfússon
Af fjórum ökumönnum sem teknir
voru fyrir of hraðan akstur við svo-
kallað sérstakt umferðareftirlit rík-
islögreglustjóra í umdæmi lögregl-
unnar á Selfossi í gær mánudag
voru þrír þeirra konur.
Sérstaka athygli vakti að allar
mældust konurnar á sama ólöglega
hraðanum þegar þær voru teknar;
112 kílómetra hraða.
Auk kvennanna var einn karl-
kyns ökumaður tekinn þegar hann
ók á 117 kílómetra hraða um Ár-
nessýslu.
Töluverð umferð var að öðru
leyti um Suðurlandið í gær og gekk
að mestu greiðlega fyrir sig.
Þrjár teknar – allar
á 112 km hraða
Íslendingadagurinn var haldinn há-
tíðlegur í bænum Gimli í Kanada í
gær. Hátíðahöld höfðu staðið yfir alla
helgina en hápunktur þeirra var í
gær. Þá fór fram skrúðganga í bæn-
um en jafnframt voru fluttar ræður
og söngatriði.
Að sögn Atla Ásmundssonar, ræð-
ismanns Íslands í Winnipeg í Kanada,
fór Íslendingadagurinn vel fram.
„Hér hefur komið alveg gríðarlegur
fjöldi fólks og bæði skrúðgangan og
mannfjöldinn í bænum slógu öll met,“
segir Atli og bætir við: „Þar flytur
Bjarni Benediktsson, alþingismaður
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
minni Kanada. Stefán Jónasson, sem
er prestur hér um slóðir, flytur minni
Íslands og ávarp flytur bæjarstjórinn
á Akureyri, Eiríkur Björgvinsson.“
Þá bendir Atli á að sjónvarpsmað-
urinn Andri Freyr Viðarsson, ásamt
tökuliði þáttarins Andri á flandri, hafi
verið þarna á svæðinu að taka upp
efni fyrir nýja sex þátta sjónvarps-
þáttaröð.
Aðspurður hversu margir hafi ver-
ið viðstaddir hátíðahöldin yfir helgina
segist Atli ekki geta gefið upp ná-
kvæma tölu en segir þó að vanalega
taki 40-50 þúsund manns þátt í há-
tíðahöldunum.
Þá voru einnig hátíðahöld af sama
tilefni í Norður-Dakótaríki Banda-
ríkjanna síðastliðinn laugardag.
Fögnuðu Íslendingadegi
Mikill mann-
fjöldi í Gimli
Ljósmynd/Þrúður Helgadóttir
Á flandri Jóhann Jóhannsson, Kristófer Dignus, Haraldur Sigurjónsson,
Andri F. Viðarsson, Hugi Halldórsson, Davíð Magnússon og Atli Ásmundsson.