Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300
Opnunartími: 08:00 - 17:00 alla virka daga
www.ispan.is - ispan@ispan.is
CE-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðing
ar í gleri
… og okku
r er nánast
ekkert ómö
gulegt
• Sólvarnargler
• Einangrunargler
• Öryggisgler
• Eldvarnargler
• Speglar
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í skjólveggi
- Í rennihurðir
Með nýrri kynslóð öryggismyndavélakerfa hjá Svar tækni getur þú núna fylgst
með beinni útsendingu úr myndavélunum hvar sem þú ert staddur, hvort sem
er í gegnum tölvu, iPad eða snjallsíma. Hærri upplausn en þekkst hefur hjá
eldri kynslóðum gerir þér svo kleift að þekkja þann sem er á myndinni.
Ný kynslóð
öryggismyndavéla
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
VIÐTAL
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta eru alltaf jafnskemmtilegar
ferðir og við erum alltaf að upplifa
og sjá eitthvað nýtt í umhverfinu.
Við höfum verið mjög heppin með
veðrið. Landslagið er ætíð jafn-
fallegt, eiginlega aldrei eins, og ís-
lenski hesturinn er virkilega
skemmtilegur,“ segir Díana Brickel,
79 ára breskur eftirlaunaþegi og
fyrrverandi kennari, sem er að ljúka
tveggja vikna hestaferð um vest-
anvert landið. Hún hefur komið
hingað á hverju sumri undanfarin 25
ár, ef undan er skilið eitt skipti þeg-
ar hún þurfti að fara til Bandaríkj-
anna á ráðstefnu. Hún bætti sér það
bara upp árið eftir þegar hún kom
til Íslands í tvígang!
Hittast líka yfir veturinn
Ferðafélagarnir hafa að stórum
hluta verið þeir sömu allan tímann;
hestaáhugafólk frá Þýskalandi og
Svíþjóð. Brickel er aldursforsetinn í
hópnum og gjarnan kölluð „Lady
Diana“ eða Lafði Díana. Mjög góð
kynni hafa myndast hjá þessum
hópi og fá þau aldeilis ekki nóg
hvert af öðru í hestaferðunum. Fyr-
ir nokkrum árum tóku þau upp á því
að hittast í Hannover í Þýskalandi
að vetri til, þar sem fyrri Íslands-
ferðir eru rifjaðar upp og byrjað að
undirbúa þá næstu. Þau eru einnig
farin að tala smáíslensku sín á milli,
þegar sest er niður á kvöldin í ferð-
unum og spjallað.
„Þetta er nú bara eitt og eitt orð
en mig langar að læra tungumálið
betur,“ segir hún.
Átti tvo íslenska hesta
Hestaferðin á Íslandi tekur sem
fyrr segir tvær vikur. Lagt er af
stað frá Brekkulæk í Miðfirði og
þaðan farið um Hrútafjörð, yfir í
Dalina, að Löngufjörum á Snæfells-
nesi og til baka yfir Rauðamelsheiði
og Haukadalsskarð yfir í Hrútafjörð
og 370 km hring lokað á Brekkulæk.
Spurð hvernig ferðirnar til Ís-
lands hafi komið til segir hún bresk-
an vin sinn í hestamennskunni hafa
bent sér á þær. Hún var heldur ekki
alveg ókunnug íslenska hestinum
eftir að hafa átt tvo slíka gripi um
tíma í Bretlandi. Brickel býr í út-
hverfi London og starfaði þar sem
kennari í mörg ár og síðar við
kennslu í kennaraskóla.
„Ég mun halda áfram að koma til
Íslands á meðan heilsan leyfir. Leið-
sögumennirnir eru frábærir, þau
Eggert og Herdís, og allir aðrir sem
aðstoða í ferðinni. Við fáum góðan
og þjóðlegan mat og kokkarnir
kunna greinilega sitt fag,“ segir
hún.
Heimsækir íslenska vini
Þó að hestaferðinni sé lokið hefur
hún ekki fengið nóg af landi og þjóð.
Við tekur nokkurra daga frí til að
heimsækja íslenska vini á Akureyri
og í Reykjavík, sem hún kynntist
bæði hér á landi og í Bretlandi fyrir
mörgum árum.
Henni fannst ekkert slæmt að yf-
irgefa London á meðan Ólympíu-
leikarnir eru. Hún sá Íslendinga
leggja Svía að velli í handbolta, þeg-
ar þau gistu á Eldborg eitt kvöldið
og horfðu á sjónvarpsútsendinguna,
og vonar að við fáum gullið. Sannari
Íslandsvin en Lafði Díönu Brickel
er vart að finna.
Lafði Díana kemur aftur og aftur
Ljósmynd/Herdís K. Brynjólfsdóttir
Íslandsvinur Díana Brickel, fremst á myndinni, á ferð um Löngufjörur á Snæfellsnesi. Hún kemur á hverju sumri í
hestaferð til landsins og er ekki af baki dottin þó að hún sé að verða áttræð. Hefur þegar pantað næstu Íslandsferð.
Díana Brickel, fyrrverandi kennari í London, komið hingað í hestaferðir á hverju sumri í 25 ár
Sama leiðin og sömu ferðafélagarnir Verður áttræð á næsta ári og þegar búin að panta ferð
Diana Brickel er ekkert að
breyta mikið út af vananum í
hestaferðunum til Íslands. Frá
upphafi, eða í kringum 1987,
hefur hún farið í þessar hesta-
ferðir á vegum Arinbjörns Jó-
hannssonar á Brekkulæk, sem
fyrstu árin var hennar leið-
sögumaður.
Arinbjörn hóf sínar skipu-
lögðu hestaferðir með útlend-
inga árið 1979, einn af þeim
fyrstu hér á landi. Frá árinu
1993 hafa leiðsögumennirnir
verið þeir sömu; Eggert Páls-
son, bóndi á Bjargshóli og ná-
granni Arinbjörns, og Herdís
K. Brynjólfsdóttir, túlkur og
kennari, sem eru hér á með-
fylgjandi mynd með Díönu á
meðan hún var í símaviðtali
við Morgunblaðið um helgina.
Alls voru 18 manns á ferð að
þessu sinni og hestarnir hátt í
90, flestir í eigu Eggerts Páls-
sonar.
Með sömu leiðsögumönnunum