Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012 VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Arngunnur Árnadóttir klarinettu- leikari og píanóleikarinn Väinö Jalk- anen halda tónleika í Salnum í Kópa- vogi fimmtudaginn 9. ágúst klukkan átta. Tónleikarnir eru hluti af Tón- listarhátíð unga fólksins. Þetta er í fyrsta skiptið sem Arn- gunnur heldur tónleika af þessu tagi á Íslandi, en hún lauk nýlega námi frá Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín og stundaði áður nám í Tónlistarskóla Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands. Píanóleikarinn á tónleikunum á fimmtudaginn, Finninn Väinö Jalkanen, stundar nám í Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín. „Það er venja að fólk komi fram á svona tónleikum þegar það lýkur tónlistarskóla,“ segir Arngunnur. „En ég hætti í Tónlistarskóla Reykjavíkur án þess að taka burt- fararpróf og kláraði ekki heldur námið í Listaháskóla Íslands. Ég lauk námi mínu í Berlín í sumar en lokaprófið var einmitt í tónleika- formi. Þess vegna fannst mér tilvalið að endurtaka leikinn á Íslandi og halda loks tónleika af þessu tagi hérna.“ Á efnisskránni eru verk eftir Rob- ert Schumann, Leonard Bernstein, Alban Berg og Johannes Brahms. Spurð um dagskrána segir Arn- gunnur: „Tónlist frá þýska málsvæð- inu er ráðandi á tónleikunum en mér finnst það viðeigandi þar sem ég hef verið í námi í Þýskalandi. Dagskráin er römmuð inn af vinunum Schu- mann og Brahms, sem voru helstu fulltrúar þýskrar síðrómantíkur og deildu auk þess ást sinni á Clöru Schumann. Á milli Brahms og Schu- manns á dagskránni er síðan að finna Bernstein frá New York og Alban Berg frá Vínarborg, en þeir standa fyrir mjög ólíka tónlistarstíla á 20. öld. Þannig að það má finna bæði samherja og andstæðinga á dagskránni.“ Vildi spila á saxófón Arngunnur er flutt heim og hefur verið ráðin fyrsti klarinettuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í eitt ár til reynslu. „Það er yndislegt að fá að leika hjá Sinfóníunni,“ segir hún, „ég var mjög heppin því stöður þar losna ekki svo oft.“ Hún var átta ára þegar hún fór að læra á klarinettu. „Ég var í Tón- menntaskóla Reykjavíkur þar sem nemendur byrjuðu í forskóla og spiluðu á blokkflautur og eftir það fóru þeir á hljóðfærakynningu þar sem eldri nemendur spiluðu. Ég valdi mér að spila á saxófón af því að mér fannst stelpan sem spilaði á það hljóðfæri spila svo flott og blúsað lag. En það kom í ljós að ég var með of litla putta til að geta spilað á saxó- fón þannig að mér var bent á að byrja að spila á klarinettu og sagt að svo gæti ég seinna skipt yfir í saxó- fóninn. Síðan gleymdi ég að skipta. Þannig að það var tilviljun að ég fór að spila á klarinettu. En núna er ég mjög ánægð með valið og held mig við þetta hljóðfæri. Ég trega saxó- fóninn ekki mikið.“ Hvað er skemmtilegt við klarinettuna? „Mér finnst, og hef heyrt marga aðra segja það líka, að klarinettan sé blæbrigðaríkt blásturshljóðfæri, það er til dæmis hægt að spila afar veikt á hana. Klarinettan blandast svo vel við önnur hljóðfæri og hefur fallegan viðartón. Svo er til ótrúlega mikið af fallegri kammertónlist fyrir klarin- ettu, sem sýnir að tónskáldin hafa tilfinningu fyrir þessu hljóðfæri. Klarinettusónöturnar eftir Brahms eru gott dæmi um það, en Sónata nr. 2 í Es-Dúr verður flutt á tónleik- unum. Við klarinettuleikararnir er- um svo heppnir að það er til mikið og skemmtilegt úrval af verkum fyrir klarinettu.“ Þið Väinö ætlið að flytja kammer- tónlist á tónleikunum. Er kammer- tónlistin stór þáttur í þínum tónlist- arflutningi? Samherjar og andstæðingar í Salnum  Arngunnur Árnadóttir klarinettu- leikari leikur á tónleikum á fimmtudag Viðamikil yfirlitssýning á verkum fatahönnuðarins Valentinos Garav- anis, Valentino: Master of Couture, verður opnuð 29. nóvember nk. í Somerset House í Lundúnum og verður m.a. að finna á henni 60 metra langan tískusýningarpall og yfir 130 handunna kjóla. Verkin á sýningunni munu spanna hálfa höld. Valentino er einn þekktasti og virtasti fatahönnuður sögunnar og hafa margar stjörnur klæðst kjól- um hans, m.a. Grace Kelly og Sophia Loren. Meðal kjóla á sýning- unni verður brúðarkjóll Jackie Kennedy, kjóllinn sem hún klæddist er hún gekk að eiga Aristotle Onassis árið 1968, að því er fram kemur í frétt á vef dagblaðsins Guardian. Þá verður einnig hægt að virða fyrir sér brúðarkjól grísku prinsessunnar Marie-Chantal frá brúðkaupi hennar sem fram fór ár- ið 1995. Á sýningunni verða marg- ar flíkur sem aldrei hafa verið til sýnis áður í Bretlandi. Auk þeirra verða sýndar ljósmyndir úr fórum Valentinos og aðrir gripir og mynd- bönd sýnd af honum við störf sín. Valentino settist í helgan stein árið 2007 og hefur ekki hannað síðan. Fatamerkið Valentino var keypt í júlí sl. af fjárfestingafélaginu May- hoola. Reuters Stjörnukjóll Leikkonan Julia Roberts var í Valentino-kjól þegar hún tók við Óskarsverðlaunum árið 2001. Margar stjörnur hafa klæðst flíkum hans. Sögufrægir kjólar á Valentino-sýningu Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Opið virka daga frá 10-18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.