Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 40
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 220. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Varð bráðkvaddur í Eyjum
2. Ísland vann 17 marka sigur
3. Ronan Keating á sviðinu í dalnum
4. Íslendingar mæta Ungverjum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Marilyn og Greta, sýning á teikn-
ingum Kristínar Ómarsdóttur, verður
opnuð í aðalsafni Borgarbókasafns-
ins í Tryggvagötu kl. 17 í dag. Sýndar
verða teikningar Kristínar af Marilyn
Monroe og Gretu Garbo en í tilefni
opnunarinnar taka Ragnhildur Gísla-
dóttir og Lay Low lagið.
Marilyn og Greta á
Borgarbókasafninu
Samnorræna
ungmennatónlist-
arhátíðin Ung
Nordisk Musik
hefst 28. ágúst.
Verk ungra tón-
skálda frá Norð-
urlöndunum
verða flutt á átta
tónleikum í
Reykjavík og Skálholti. Í ár verður
megináhersla hátíðarinnar á nýj-
ungar í tónlistarflutningi og nýsköp-
un hljóðfæra. Aðgangur er ókeypis.
Nýjungar og nýsköp-
un á tónlistarhátíð
Mjög líklega sló franska kvikmyndin
Intouchables met um helgina sem
tekjuhæsta mynd allra tíma hér á
landi, af þeim sem hvorki eru á ís-
lensku né ensku. Gamla metið átti
Karlar sem hata konur,
43,6 milljónir kr., en í
síðustu viku hafði In-
touchables farið fram
úr Klovn sem
vermdi 2. sætið.
Hafði myndin þá
skilað 42 millj-
ónum í kassann.
Enn ekkert lát á vin-
sældum Intouchables
Á miðvikudag og fimmtudag SV 8-15 m/s og rigning eða súld,
en þurrt að mestu um landið austanvert. Hiti 12 til 23 stig.
Á föstudag og laugardag Suðlæg átt, 5-10 m/s og rigning sunn-
an- og vestanlands, en þurrviðri NA- og A-lands. Hiti 12 til 23 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 3-13 m/s, hvassast NV-til. Skýjað
og dálítil súld V-lands, en bjartviðri eystra. Hiti 10 til 20 stig.
VEÐUR
Ásdís Hjálmsdóttir keppir í
spjótkasti á Ólymíuleik-
unum í London í dag en hún
er í B-riðlinum sem hefst í
kringum 10.30 að íslensk-
um tíma. „Mér líst alveg af-
skaplega vel á þetta. Ég er
ofboðslega vel stemmd og
er akkúrat á þeim stað sem
ég á að vera á,“ sagði Ásdís
við Morgunblaðið en tólf
efstu komast í úrslita-
keppnina á fimmtudag.
»3
Ásdís vel stemmd
fyrir spjótkastið
Var þetta hlaup aldarinnar? Sú
spurning leitar óneitanlega á mann
eftir að hafa horft á 100 metra hlaup
karla á ólympíuleikvanginum í Lond-
on á sunnudagskvöldið. Ekki er svo
sem langt liðið á öldina en ef maður
skoðar keppendurna í
hlaupinu og árangur
þeirra hlýtur þessa
íþrótta-
viðburðar
að verða
minnst um
langa hríð.
Kristján
Jónsson
horfði á Usain Bolt
vinna magnaðan
sigur í London í
fyrrakvöld. »3
Hlaup aldarinnar þegar
Bolt stakk alla af?
„Ég kom hingað til að fá reynslu og ég
fékk hana svo sannarlega. Ég er búinn að
sanna fyrir sjálfum mér að ég get þetta.
Fyrir neðan mig voru heimsklassa-
skotmenn sem eru atvinnumenn í grein-
inni. Ég er töluvert reynsluminni og get
ekki æft eins mikið en held ótrauður
áfram. Ég stefni alla vega að því að keppa
á Ólympíuleikunum 2016 og 2020,“ segir
skotmaðurinn Ásgeir Sigurgeirsson. »2
Ásgeir stefnir á Ólymp-
íuleikana 2016 og 2020
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
„Það er búið að reikna út fyrir mig
að ég verð líklegast á unglingalands-
mótum fram til ársins 2027 haldi
fram sem horfir,“ sagði Jóhann
Gunnar Friðgeirsson, einn foreldra
keppenda á Unglingalandsmóti
UMFÍ á Selfossi, í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að nýloknu vel
heppnuðu landsmóti um helgina.
Unglingalandsmótið í ár var það
tíunda sem Jóhann og kona hans,
Heiða Björg Hreinsdóttir, sækja.
Upphaflega fylgdu þau syninum
Hreini Heiðari á hans fyrsta lands-
mót á Ísafirði árið 2003 þar sem
hann keppti í frjálsum íþróttum fyrir
hönd HSK. Þessa dagana fylgjast
hjónin með dætrunum Ingibjörgu
Andreu, 13 ára, og Elínborgu Önnu,
16 ára. „Metið hjá okkur var fyrir
tveimur árum en þá vorum við með
þrjá keppendur,“ segir Jóhann létt-
ur og á þar við systkinin þrjú. Hjón-
in eiga tvær dætur til, þær Aðalheiði
Erlu og Stefaníu Maren sem eru
þriggja og fimm ára, og fylgja þær
fjölskyldunni að sjálfsögðu á mótin.
Ætti ekki að koma á óvart ef þær
yrðu einn daginn í hópi keppenda
miðað við áhuga systkinanna.
Á landsmótin víða um land
Jóhann og fjölskylda sóttu lands-
mótið á Egilsstöðum í fyrra og setja
stefnuna á Höfn í Hornafirði að ári.
Fjölskyldan tekur virk-
an þátt meðan á mót-
unum stendur og
hefur gaman af.
Var Jóhann
m.a. í óðaönn að
ganga frá á tjald-
svæðinu á Selfossi
þegar blaðamaður náði af
honum tali enda titlaður
tjaldbúðastjóri HSK í ár.
Sonurinn hefur heldur ekki
alveg sagt skilið við viðburð-
inn, þrátt fyrir að vera vaxinn upp úr
keppni. Mætti hann aftur til leiks í
ár eftir hlé og vann við mótið, enda
enn á kafi í frjálsum.
Gott að ala börnin upp í þessu
Að sögn Jóhanns var það afar já-
kvætt þegar ákveðið var að halda
unglingalandsmótið á hverju ári í
stað annars hvers árs áður. Segir
hann gott að ala börn upp í þessu og
mótin góðan kost fyrir fjölskyldufólk
um verslunarmannahelgina. „Það er
helst að of lítið heyrist af þessu,“
segir hann.
„En það er eflaust bara þar sem
allt gengur vanalega svo vel fyrir sig
á mótinu.“
MMetþátttaka » Íþróttir
Á landsmóti til ársins 2027?
Fjölskylda á
unglingalands-
mótum sl. tíu ár
Ljósmynd/Jóhann Gunnar Friðgeirsson
Myndarlegur hópur Fjölskylda Jóhanns Gunnars og Heiðu Bjargar er sannkölluð landsmótsfjölskylda. Hér eru
systkinin (f.v.): Stefanía Maren, Elínborg Anna, Ingibjörg Andrea, Hreinn Heiðar og Aðalheiður Erla.
Veðrið lék við gesti á
Unglingalandsmóti
UMFÍ, sem fram fór á
Selfossi um helgina.
Metþátttaka var á mótinu
í ár og voru keppendur
rúmlega tvö þúsund tals-
ins, á aldrinum 11 til 18 ára,
auk fjölmargra aðstandenda.
Keppt var í ýmsum greinum, svo
sem boltaíþróttum, glímu, fim-
leikum, sundi og frjálsum íþrótt-
um, og voru fjölmörg mótsmet
slegin.
Talið er að yfir tíu þúsund
manns hafi sótt lokahátíð mótsins
sem fram fór á sunnudagskvöldið.
Skemmtu þar tónlistarmenn á
borð við Jón Jónsson og félaga
ásamt fleirum. Árleg flugeldasýn-
ing sló síðan botninn í vel heppnað
mót eins og hefð er fyrir.
Næsta unglingalandsmót fer
fram á Höfn í Hornafirði að ári.
Fjölmörg mótsmet slegin
UNLINGALANDSMÓT UMFÍ Á SELFOSSI