Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.08.2012, Blaðsíða 35
„Já, hún er stór þáttur. Ég hef alltaf gert mikið af því að spila kammertónlist og á námsárum mín- um úti í Berlín var ég í mörgum mis- munandi kammerhópum. Ég fæ mikið út úr því að spila kammer- tónlist, það er alveg ótrúlega skemmtilegt að vinna svona náið með öðru tónlistarfólki. Svo er líka til svo mikið af fallegri kammer- tónlist.“ Þú hefur komið fram á tónleikum með hljómsveitinni Hjaltalín. Hvernig upplifun var það? „Það var virkilega gaman. Hljóm- sveitin er skipuð frábærum tónlist- armönnum og þau voru öll auðvitað miklu betri en ég í að koma svona fram án nótna og spila af fingrum fram. En það var gaman að prófa þess konar tónlistarflutning og mig langar að gera meira af því í framtíðinni.“ Menningarborgin Berlín Kom aldrei annað til greina en að fara út og læra meira? „Ég var búin að vera lengi í tón- listarnámi og þá getur maður ekki beinlínis tekið sér langt hlé. Ef mað- ur tekur sér ár í að gera eitthvað annað þá er mjög erfitt að koma sér aftur í gang. Ég ákvað að það kæmi ekkert annað til greina en að halda áfram tónlistarnámi. Eftir að hafa verið í námi í Listaháskólanum ákvað ég að láta á það reyna að kom- ast til útlanda og kynnast öðru um- hverfi. Það eru mikil viðbrigði að koma til Berlínar og fara í stóran skóla þar sem er fullt af fólki sem spilar á alls konar hljóðfæri. Ég fann fyrir mikilli hvatningu en líka meiri samkeppni en ég hafði áður kynnst. Ég var í námi í fjögur ár í Berlín og þar var mikið að gera. Aukagrein- unum fækkaði með hverju ári en ég var alltaf að takast á við fjölbreytileg verkefni. Þegar ég kom út lærði ég fyrst almennilega að æfa mig og það var mjög gott. Ég lærði hjá tveimur kennurum og annar þeirra spilaði með Berlínarfílharmóníunni og var alltaf tilbúinn að hleypa okkur nem- endum sínum inn á tónleika. Það var ómetanlegur hluti af upplifun minni af Berlín og námi mínu sem tónlist- armaður að vera á þessum tón- leikum. Reyndar er allt tónlistarlíf í borginni í heimsklassa.“ Hvernig er Berlín? „Ég var og er óskaplega hrifin af Berlín. Þar er skapandi og skemmti- leg orka í loftinu og menningarlífið er ótrúlega fjölbreytt. Borgin býr líka yfir sérstökum hráum sjarma og er þannig heillandi á annan hátt en fallegar borgir eins og til dæmis París. Það sem mér fannst líka ein- kennandi við að búa í Berlín var allt plássið. Það er oft gríðarhátt til lofts í gömlu húsunum í Berlín og göt- urnar eru óvenjubreiðar. Þar af leið- andi er meira pláss til að vera til, hugsa óvenjulegar hugsanir og gera það sem manni dettur í hug.“ Finnst þér gaman að koma fram opinberlega og spila? „Það verður auðveldara með hverju árinu. Mér finnst reyndar að mér hafi tekist ágætlega að hafa gaman af þessu. Það er líka um að gera, annars væri maður bara að pína sig.“ Morgunblaðið/Eggert Arngunnur Tónlist frá þýska málsvæðinu er ráðandi á tónleikunum en mér finnst það viðeig- andi þar sem ég hef verið í námi í Þýskalandi. MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012 Tónlistarkonan Beyoncé hyggst gera heimildarmynd um líf sitt og jafnframt koma fram í henni, eðli málsins samkvæmt. Breska dag- blaðið Guardian segir frá því að Beyoncé og samstarfsmenn hennar séu að kynna verkefnið fyrir kvik- myndafyrirtækjum vestra, í leit að framleiðendum. Verði af gerð myndarinnar er hún sú fyrsta sem Beyoncé stýrir en hún mun aðeins vera á teikniborðinu eins og staðan er í dag. Umboðsfyrirtæki tónlist- arkonunnar, ICM, mun hafa tekið upp myndefni í Hollywood til kynn- ingar verkefninu og þykir heldur óvenjulegt í kvikmyndaborginni að tónlistarmaður geri heimildarmynd um sjálfan sig. Í myndinni verður blandað saman tökum frá tón- leikum og viðtölum en ekki er á hreinu hvort öll ævi Beyoncé verð- ur til umfjöllunar. Heimild Beyoncé hefur í hyggju að gera heimildarmynd um sjálfa sig. Vill gera heimildar- mynd um sjálfa sig Reuters Leikarinn Dan Aykroyd hefur greint frá því að kollegi sinn, Bill Murray, muni ekki leika í þriðju kvikmynd- inni um Drauga- banana, Ghost- busters 3. Murray lék í fyrstu tveimur myndunum með Aykroyd, Harold Ramis og Ernie Hudson. Þriðja myndin hefur verið á teikniborðinu í rúman áratug og er enn unnið að handritinu. Murray verður ekki í Ghostbusters 3 Bill Murray Kvikmyndin Jism 2 var frumsýnd á Indlandi föstudaginn sl. Hún hefur vakið mikið umtal þar í landi sem og utan landsteinanna, annars veg- ar vegna þess að klámmynda- leikkona fer með aðalhlutverkið og hins vegar þess að myndin þykir í grófara lagi, sé miðað við indversk- ar kvikmyndir. Klámmyndaleikkonan Sunny Leone er kanadísk-indversk og er hún þekkt á Indlandi fyrir þátttöku sína í raunveruleikaþætti þar í landi, Bigg Boss, sem svipar til þáttanna Big Brother. Leone leikur klámmyndaleikkonu í Jism 2 og þurfti því ekki að undirbúa sig sér- staklega fyrir hlutverkið. Borgarstjóri Mumbai er meðal þeirra sem ósáttir eru við myndina en hann skipaði svo fyrir í liðinni viku að öll kynningarveggspjöld fyrir hana yrðu fjarlægð af strætis- vögnum borgarinnar. Leikstjóri myndarinnar, Pooja Bhatt, er kona og segist hún með myndinni vilja sýna konuna sem kynveru en ekki sem leikfang fyrir karlmenn. Þess má geta að orðið „jism“ þýð- ir líkami á hindí en orðið hefur aðra og öllu grófari merkingu á ensku. Klámmyndaleikkona í Bollywood-mynd Hiti Úr Bollywood-myndinni Jism 2. Clint Eastwood hefur lýst opin- berlega yfir stuðningi sínum við frambjóðanda repúblikana, Mitt Romney, til forsetakjörs í Banda- ríkjunum. Leikstjórinn tjáði sig um kosningarnar á góðgerðarsam- komu í Idaho og sagðist styðja Romney „vegna þess að ég held að landið þurfi á uppörvun að halda.“ Eastwood studdi líka Repúblik- anaflokkinn í forsetakosningunum 2008, þegar John McCain var í framboði. Clint Eastwood styður Mitt Romney Eastwood Yfirlýstur repúblikani. OPNUNARTÍMI EFNALAUG MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: LOKAÐ OPNUNARTÍMI FATALEIGA MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS Hröð og vönduð þjónusta. Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára. Persónuleg þjónusta og hagstætt verð. ALHLIÐA HREINSUN Hreinsum einnig sængur, svefnpoka og rúmteppi Minnum á að gott er að geyma dúnúlpurnar hreinar yfir sumartíman

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.