Morgunblaðið - 07.08.2012, Side 21

Morgunblaðið - 07.08.2012, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012 Strákarnir okkar Sverre, Ólafur, Guðjón Valur og Kári höfðu ekki miklar áhyggjur af leiknum gegn Bretlandi í gær en voru líklega meira að hugsa um leikinn gegn Ungverjum á morgun. Golli Síðastliðið haust tók ég sæti í stjórn Hollvinasamtaka líknardeilda til að stuðla að því að koma í veg fyrir að líknardeild Landspítalans á Landakoti yrði lokað. Ekkert mun hafa verið athugavert við rekstur þessarar deildar. Velferðarnefnd Alþingis féllst á sjónarmið stjórnar Holl- vinasamtakanna sem færð voru fyrir því að deildinni yrði ekki lokað og fjár- laganefnd lagði til 50 milljón króna auka- fjárveitingu til Landspítalans til þess að halda mætti líknardeildinni gangandi. En embætt- ismenn tóku völdin af hinu háa Alþingi, sem þó er ábyrgt fyrir stefnumörkun í heilbrigð- ismálum, og sagði upp starfsfólki deildarinnar sem var síðan lokað hinn 1. mars 2012. Það er sjálfsagt líkt með sannleik- ann og fjall fyrir norðan sem að Halldór Laxness segir í Íslands- klukkunni að heiti þremur nöfnum eftir því hvaðan á það er horft. Fyr- ir okkur sem börðumst fyrir því að starfsemin héldi áfram á Landakoti og fulltrúum í velferðarnefndinni var heiti þessarar deildar aðeins eitt – líknardeild Landspítalans á Landakoti. Upphæðin, 50 milljónir króna, er umtalsverð, en hér er ómaklega vegið að fólki sem er að kveðja líf sitt. Vegið þar sem síst skyldi og fækkun um þrjú til fjögur sjúkrarúm orðin staðreynd. Þótt ég hafi árið 1996 veitt formennsku nefnd embættismanna, fulltrúa úr viðskipta- lífinu og alþingismanna sem vann framtíð- arsýn fyrir íslensku utanríkisþjónustuna og eflingu hennar hefði ég leyft mér að leggja til að fyrr skyldi lokað s.s. einu sendiráði, en þá að sjálfsögðu með ákvörðun þar til bærra að- ila – en ekki embættismanna. Hollvinasamtök líknardeilda undirbúa nú ráðstefnu í næsta mánuði til að stuðla að nýrri stefnumörkun í heilbrigðismálum sem tekur tillit til lífsnauðsynlegrar þjónustu fyrir neyt- endur. Líknarþjónusta, sem endurspeglar þá samúð, umhyggju og þjónustu sem við viljum sýna fólki á ævikvöldinu, á ekki að falla þar undir sama flokk og fegrunaraðgerðir. Kynning og hagsmunir Íslands voru snar þáttur af ævistarfi mínu og m.a. að skýra er- lendis í ræðu og riti frá Íslandi og því sem þar gerðist. Sjálfsagt hreykti maður sér oft hátt af því velferðarþjóðfélagi sem við höfum byggt okkur. Frægur bandarískur dálkahöf- undur sem skrifaði í 120 dagblöð kom til Ís- lands fyrir mitt tilstilli árið 2007 til að skrifa um heilbrigðismál og umhverfismál á Íslandi, en ég hafði borið lof á hvort tveggja í hennar eyru. Síðan þá er verri tíð og við ræðum okk- ar í milli um hnignun heilbrigðiskerfisins. Umræða um stefnumörkun í heilbrigð- ismálum kann að einhverju leyti að hafa stað- ið í skugga umræðu um umbætur á réttarfari og stjórnskipun, en ríka nauðsyn ber til að horfa af raunsýni til framtíðar og meta á hverju við höfum efni, hverjir hafi ákvörð- unarvaldið og fyrir hvern er verið að vinna. Í mínum huga eru hagsmunir barna og ungs fólks og aðhlynning deyjandi fólks efst á blaði. Andstreymi lífsins er margvíslegt, en við eig- um að létta deyjandi fólki og aðstandendum þess kveðjustundirnar. Eftir Helga Ágústsson »Hér er ómaklega vegið að fólki sem er að kveðja líf sitt. Vegið þar sem síst skyldi. Helgi Ágústsson Höfundur er fyrrverandi ráðuneytisstjóri og sendiherra. Frá rómantík til raunsæis – varnarstaða í heilbrigðismálum Á síðustu dögum hafa farið fram umræð- ur um kostnaðinn við hið opinbera og rætt hefur verið um hvaða áherslu leggja skal á velferðarsamfélagið og umfang samneyslu og fyrirætlanir stjórn- málaafla. En lítið er minnst á þá raunveru- legu möguleika sem fyrir hendi eru til þess að auka afköst og hagkvæmni í opinberum rekstri og draga úr hlutdeild ríkisins í sam- félagsbúskapnum. Stjórnmálaáherslur Nú er það svo að markmið og leiðir í hagræðingu hjá hinu opinbera eru ekki eins nátengd meginhugmyndum stjórnmálanna til hægri og vinstri um hlutverk ríkisins og ætla má af umræðunni. Ríkisstjórnir í okkar heimshluta stefna nánast undantekn- ingalaust að minnkandi opinberum rekstri og að lækka hlutfall op- inberra starfsmanna á atvinnumark- aði. Helstu fylgismenn norræns vel- ferðarþjóðfélags gætu því vel verið leiðandi í umræðu um sparnað hins opinbera og ákveðin dæmi eru um að ríkisstjórnir sósí- aldemókrata hafi tekist á við hann af mikilli al- vöru. Þá er stjórnarseta hægri flokka ekki alltaf uppskrift að bættri notkun opinbers fjár. Samkvæmt mælingum jókst skilvirkni ekki í breskri stjórnsýslu á Thatcher tímanum, sem sýnir vel að nið- urskurður einn og sér bætir ekki rík- isreksturinn. Hér á landi jókst op- inber kostnaður jafnvel á tímabili hægri stjórna á árunum 1991-2009 og réttmætt er að spyrja um framþróun skilvirkni þann tíma. Hlutverk upplýsingatækninnar Á Vesturlöndum hafa flestar ríkis- stjórnir sett sér þau markmið að nú- tímavæða stjórnsýsluna með tölvu- væðingu. Þá er átt við að færa starfshætti nær menningu netsins, en draga úr vægi skrifræðis og stig- veldis. Þannig er stefnt að bættri og hraðari þjónustu með aðferðum nets- ins og lækkun kostnaðar við veitingu hennar. Þessi markmið nást ekki nema með umbreytingu opinberra starfa. Stórauka þarf samráð innan og milli stofnana og stjórnsýslustiga, sem ber með sér aukna skráningu sem sam- þættingaraðferð. Slík vinnubrögð þarf að viðhafa ef almenningur og at- vinnulíf á að fá samþætta þjónustu og svörun erinda og beiðna á einum stað á netinu óháð stofnanamúrum. Aukin skráning styður við opnari stjórn- sýslu og henni þarf að fylgja eftir með opnun opinberra gagnasafna án persónugreinanlegra upplýsinga til endurnýtingar fyrir markaðsaðila. Stofnanir þurfa að verða að vef sín- um og afgreiðsla þeirra óháð stað. Þannig geti opinberir starfsmenn unnið á netinu og búið hvar sem er. Leiðandi stofnanir vestanhafs hafa ekki starfsaðstöðu nema fyrir hluta starfsfólks síns. Þá getur þessi þróun leitt til sameiningar stofnana sem veita þjónustu í nánu samstarfi. Upp- lýsingatækni getur stóreflt eftirlit og oft í rauntíma og ættu hinar veiku eftirlitsstofnanir hér á landi að hag- nýta sér hana, eins og leiðandi dæmi eru um á alþjóðavettvangi. Þessi at- riði eiga að auka skilvirkni opinberra starfa, draga úr bílaumferð og lækka kostnað hjá atvinnulífinu og almenn- ingi. Lýðræðið styrkist með auknu gagnsæi og samráði og jafnvel hug- tök eins og traust. Samvinna við markaðsaðila Færst hefur í vöxt að markaðs- aðilar taki að sér opinber verkefni og ný þjónusta er gjarnan stofnsett með tilstyrk þeirra. Hugmyndin byggir á því að skilvirkni eykst hraðar á sam- keppnismarkaði en hjá því opinbera, þar sem hún getur staðið í stað í ára- tugi. Úthýsing hefur einnig í för með sér sveigjanleika í þróun þjónust- unnar og markaðsfyrirtæki ættu að geta hagnýtt sér sérhæfingu til að afla sér fleiri verkefna. Fræðilega lítur málið mjög vel út og flest vestræn ríki takast á við þessa nýju áskorun. En til þess að góður árangur náist þurfa að vera fyrir hendi virkur samkeppnismark- aður og samstarfs- og stjórnunarnet milli hins opinbera og markaðsaðila. Margt bendir til þess að þessi tvö skilyrði hafi ekki alltaf verið til stað- ar, hvorki erlendis né hér á landi. Í fjármálakreppunni hefur komið fyrir að opinberir aðilar taka að sér áður úthýst verkefni til þess að spara. Því er ljóst að stjórnmála- menn og stjórnsýslan þurfa að vanda sig meira en áður ef hið opinbera á að spara með samvinnu við markaðsaðila. Niðurlag Stjórnvöld hafa hafnað endurnýjun stjórnsýslunnar með notkun upplýsingatækni mest alla þessa öld, en Ísland kemur mjög illa út úr alþjóðlegum mælingum á um- breytingu þjónustu hins opinbera með notkun netsins, er jafnvel lakast í Evrópu. Svarið við ofvöxnu rík- iskerfi felst ekki í beinum niður- skurði þess, þótt það eigi stundum við, enda hefur velferðarkerfið sjald- an sýnt mikilvægi sitt eins greinilega og í efnahagsörðugleikunum. Hins vegar mættu íslensk stjórn- málaöfl sameinast um að endurbæta vinnubrögð stjórnsýslunnar með notkun upplýsinga- og samskipta- tækni og auka með því skilvirkni í op- inbera geiranum, minnka umsvif hans og bæta þjónustu. Og setja upp samskiptanet við einkamarkaðinn og reyna að koma á virkum samkeppn- ismarkaði á sviðum opinberrar þjón- ustu. Slíkar aðgerðir ynnu vel með efnahagsbatanum sem nú er að hefj- ast og gætu flutt störf frá ríkinu út á vinnumarkaðinn eftir því sem hann tekur við fleirum. Fá verkefni eru líklegri til þess að auka samkeppnishæfni Íslands. Eftir Hauk Arnþórsson » Íslensk stjórnmála- öfl mættu sameinast um að endurbæta vinnu- brögð stjórnsýslunnar á forsendum upplýsinga- og samskiptatækni og auka með því skilvirkni. Haukur Arnþórsson Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Kostnaður hins opinbera

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.