Morgunblaðið - 07.08.2012, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2012
ZUMBA
Dansaðu þig í form með einföldum sporum,
skemmtilegri tónlist og góðum félagsskap.
Jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.
• Zumba - þri. og fim. kl. 17:30
• 4 vikur
• Hefst 10. júlí. Verð 11.900 kr.
Betri heilsa borgar sig!
KVENNALEIKFIMI
Góð leikfimi fyrir allar konur sem vilja styrkja sig og líða betur.
Fjölbreyttar styrktaræfingar. Námskeiðin eru í 4 vikur.
Kennsla á mán., mið. og fös. kl. 16:30 (3x í viku)
• Þjálfari: Þóra Sif Sigurðardóttir, íþróttafræðingur.
• Hefst 13. ágúst. Verð 13.900 kr.
Kennsla á þri. og fim. kl. 10:00 (2x í viku)
• Þjálfari: Elva Björk Sveinsdóttir, íþróttafræðingur.
• Hefst 14. ágúst. Verð 11.900 kr.
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
Þóra Sif
Sigurðardóttir
Elva Björk
Sveinsdóttir
– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
20.ágúst.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 5691105
kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út sérblað um
Heilsu og Lífstíl föstudaginn 24.ágúst.
• Ný og spennandi námskeið
í heilsuræktarstöðvum.
• Hreyfing og líkamsrækt.
• Hvað þarf að hafa í ræktina.
• CrossFit
• Þríþraut.
• Reiðhjól.
• Skokk og hlaup.
• Dans og heilsurækt.
• Andleg vellíðan.
• Svefn og þreyta.
• Skaðsemi reykinga.
• Fljótlegar og hollar uppskriftir.
• Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi efni.
SÉRBLAÐ
Þetta er tíminn til að huga að heilsu
sinni og lífstíl og stefna í nýjar áttir á
því sviði. Í blaðinu Heilsa og lífsstíll
verður kynnt fullt af þeim mögu-
leikum sem í boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl
haustið 2012.
MEÐAL EFNIS:
Væntanlega hefur
ekki farið fram hjá
neinum að þessa dag-
ana fara Ólympíu-
leikarnir fram í
London.
Ólympíuleikarnir eru
stærsta íþróttahátíð
heimsins og njóta
gríðarlegrar hylli al-
mennings og fjöl-
miðla um allan heim.
Íþrótta- og Ólympíu-
samband Íslands sendir vaska
sveit 27 íþróttamanna og kvenna á
leikanna. Slíkur fjöldi er sér-
staklega mikill sé miðað við aðrar
þjóðir af svipaðri stærð. Íþrótta-
hreyfingin er stærsta fjöldahreyf-
ing á Íslandi með hátt í 200.000 fé-
lagsaðildir. Ljóst er því að áhugi
íslendinga er mikill fyrir Ólympíu-
leikum og útsendingum þeim
tengdum.
Á undanförnum árum hefur
reglulega komið fram gagnrýni á
að RÚV hafi dregið úr framboði
íþróttaefnis og hafi ekki náð að
sinna stórmótum sem þessum, svo
ekki sé talað um hina fjölbreyttu
flóru íslenskra íþróttagreina. Því
er afar mikilvægt að geta þess
sem vel er gert í rekstri RÚV nú í
tengslum við þessa Ólympíuleika.
Frammistaða stofn-
unarinnar er til mik-
illar fyrirmyndar hvað
varðar útsendingar að
þessu sinni. Sérstök
Ólympíurás gerir það
að verkum að fjöl-
breytni á íþróttaefni
er mikil en einnig og
ekki síður að hægt er
að senda út annað efni
á aðalrás RÚV. Þá er
ljóst að RÚV hefur
sent myndarlega sveit
til London til að sinna
þessu mikla verkefni og er það vel.
Starfsmenn RÚV hafa verið fag-
legir og vel undirbúnir í umfjöllun
sinni. Í mínum huga er eðlilegt að
RÚV hugi að því að festa í sessi
sérstaka íþróttarás til framtíðar til
að sinna íþróttaþyrstum íbúum
þessa lands og í samræmi við að
RÚV er stofnun allrar þjóð-
arinnar.
Góð frammistaða
RÚV
Eftir Stefán Snæ
Konráðsson
Stefán Snær
Konráðsson
» Í mínum huga er
eðlilegt að RÚV
hugi að því að festa í
sessi sérstaka íþrótta-
rás til framtíðar
Höfundur er bæjarfulltrúi
og íþróttaáhugamaður.
Er einhver að stjórna þessu landi?
Fær fólk að framkvæma út um land-
ið án afskipta stjórnvalda? Hver gef-
ur ykkur leyfi til að Kínavæða land-
ið? Ég hef áður skrifað það að þessi
áform eru stórhættuleg og hern-
aðarlegir Kínverjar eru með heims-
yfirráð á sinni
stefnuskrá og
löngu búnir að
skipuleggja til
framtíðar, það
gerðu þeir með
fyrsta láninu til
Vesturveldanna.
Hvers á þjóðin að
gjalda með þessa
stjórnmálamenn
og stjórn lands-
ins, sama í hvaða flokki þeir eru, sem
eru svona auðtrúa og óvitrir og illa
upplýstir? Sem dæmi, hefði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir lesið sögu
Balkanskagans og sett sig inn í mál-
in í Kosovo þá hefði hún líklega ekki
skrifað undir að Albanar fengju
landið. Hver gaf henni leyfi til að
taka land af einni þjóð og afhenda
það annarri með undirskrift sinni?
Albanar eru af Illyrija-stofni eða
Shiptar, fjallafólk frá Aserbaídsjan,
og með yfirráðum Tyrkja, sem vör-
uðu í um 500 ár yfir Balkan, varð eft-
ir eitthvað af Albönum í Suður-
Kospvo, í miklum minnihluta. Land-
ið áttu Serbar frá tímum
Stór-Serbíu. Það var Josip Broz
Tito, forseti sambandslýðveldisins
Júgóslavíu, sem var Króati, sem
opnaði almennt fyrir Albananna til
borgarinnar Pristina. Það var póli-
tísk ákvörðun til þess að veikja
Serba, en síðan fara Albanarnir til
norðurs í Kosovo. Þegar ég bjó í
Serbíu (Beograd) 1967-1977 voru
daglega fréttir af voðaverkum Alb-
ana á meðan þeir voru að ná slétt-
unni, þess vegna er í dag meirihlut-
inn Albanar. Þið fréttamenn sögðuð
alltaf frá „Frelsisher Albana“, hvað
voru þeir að frelsa? Þeir hafa ekki
átt Kosovo. Þessi her er og var
hryðjuverkaher og í suðurhluta Kos-
ovo er nú búið að koma á fót þjálf-
unarbúðum fyrir hryðjuverkamenn.
Það er ekki að ástæðulausu að Sló-
venar og Króatar vilja ekki Albana
inn til sín. Ég á ekki að þurfa að tí-
unda frekar af hverju og hvers
vegna. Það þyrfti að senda þá stjórn-
málamenn sem vilja ESB- og Kína-
væðingu til ársdvalar í suðupott-
inum Balkan, svo að þeir áttuðu sig á
hvað við eigum, og lífið er ekki eins
og leikskólinn þar sem þeir ólust
upp.
Vaknið, heimurinn þarna úti getur
verið grimmur og okkar komandi
kynslóð er ekki alin upp til að takast
á við þau öfl. Þú, Ögmundur Jón-
asson, átt þakkir skildar fyrir fram-
göngu þína í að verja landið. Við eig-
um öll Ísland, ekki bara Halldór
Jóhannsson og gráðugir sveitar-
stjórnarmenn á N-Austurlandi. Að
öðru; hvað er með forsætisráðherra
landsins, því talar hún aldrei til þjóð-
arinnar? Veist þú, Jóhanna, að stór
hluti landsmanna er orðinn þreyttur
á stjórnleysi ykkar, það fá allir að
arðræna okkur? Þetta er hópurinn
sem ekki fór í Háskólann. Það eru
blikur á lofti um þriðju heimsstyrj-
öldina, eruð þið eitthvað að undirbúa
þjóðina verði svo? Nei, auðvitað
ekki, þið horfið ekki fram í tímann
frekar en með Kínavæðinguna. Tak-
ið af skarið og neitið Huang Nubo
um land og höfn handa Kínaveldi,
því að auðvitað tengist þetta allt. Ég
mótmæli þeim stjórnmálamönnum
sem vilja selja landið. Leiga til
margra ára er sama og sala. Megi
landvættirnar nú vernda land og
þjóð.
STEFANÍA JÓNASDÓTTIR,
Sauðárkróki.
Hver gefur ykkur leyfi?
Frá Stefaníu Jónasdóttur
Stefanía
Jónasdóttir
Bréf til blaðsins
Nýafstaðnar forseta-
kosningar eru mér of-
arlega í huga eins og ef
til vill mörgum öðrum.
Þetta voru sögulegar
kosningar. Aldrei hafa
jafnmargir frambjóð-
endur boðið sig fram.
Sex forsetaframbjóð-
endur, allir með sína
kosti og galla. Allir
höfðu mikið til brunns
að bera, allir með mismunandi
áherslur. Hver og einn þjóðfélags-
þegn hafði tækifæri til að finna þann
frambjóðanda sem honum fannst
hentugastur í starf forseta. Fram-
bjóðanda sem studdi þeirra málefni.
Einn af frambjóðendunum var
sitjandi forseti. Hann hefur setið síð-
ustu 16 ár og bauð sig fram til að
vera 20 ár í embætti. Margir deildu
um það hvort það væri of langur
tími. Persónulega er ég á þeirri skoð-
un að 20 ár sé of langur tími í emb-
ætti. Ólafur Ragnar Grímsson hefur
þó gert marga mjög góða hluti á sín-
um kjörtímabilum og staðið sig með
prýði. En að mínu mati var kominn
tími til að fá nýtt fólk á Bessastaði,
nýjar áherslur og nýjar skoðanir.
Fólk af minni kynslóð þekkir það
ekki að hafa annan forseta en herra
Ólaf Ragnar Grímsson. Ég man alla-
vega aldrei eftir öðrum forseta í
embætti, þótt vissulega hafi ég heyrt
annarra getið og þá sérstaklega Vig-
dísar Finnbogadóttur. Ég talaði við
nokkra af minni kynslóð og flestir
sögðust ætla að kjósa Ólaf Ragnar af
þeirri ástæðu að þeir þekktu til hans
og nenntu ekki að kynna sér aðra
frambjóðendur. En ég spyr: Hvað
gerir það fólk þá, ef Ólafur Ragar
býður sig ekki fram á næsta kjör-
tímabili?
Mér finnst mikilvægt að fólk kynni
sér frambjóðendurna og finni hver
er þeirra frambjóðandi. Ég komst
snemma á þá skoðun að minn fram-
bjóðandi væri hin ágæta og merka
manneskja Herdís Þorgeirsdóttir.
Hennar baráttumál höfðuðu til mín
og hennar kostir fannst mér margir,
mun fleiri en gallar. Ég var henni
sammála í langflestu. Mér fannst
hún ætíð komast vel að orði, var
kurteis og málefnaleg. Gat alltaf rök-
stutt sín málefni og
hafði alltaf svör við
þeim spurningum sem
hún var spurð. Ég upp-
lifði traust í hennar
garð og fannst ég geta
treyst henni fyrir landi
voru og þjóð. Ég var og
er ennþá þess viss að
hún hefði orðið landi og
þjóð til sóma og staðið
sig með prýði. Herdís
var heiðarleg alla sína
baráttu. Hún til dæmis
opnaði bókhald sitt áð-
ur en kosningabaráttunni lauk. Það
fannst mér merki um mikinn heið-
arleika því það skiptir alltaf máli að
vita hvaðan peningarnir koma;
sérstaklega á tímum sem þessum
þar sem ekki er of mikið af fjármagni
til hjá þjóðinni. Hún var líka ut-
anflokks, sem er enn stærri kostur
að mér fannst. Hún kom einnig inn á
það að forseti ætti ekki að sitja leng-
ur en tvö kjörtímabil, eða átta ár.
Forsetaembættið er eitt valda-
mesta embætti Íslands. Forseti vor
er þjóðkjörinn af öllum Íslendingum
sem náð hafa 18 ára aldri og þar með
fengið kosningarétt. Okkur ber að
vanda valið og kjósa þann ein-
stakling í embætti sem við treystum.
Ekki þann sem aðrir í kringum okk-
ur vilja að við kjósum. Það skiptir
máli hver er forseti, landið okkar
skiptir máli, við skiptum máli og okk-
ar framtíð. Við unga fólkið verðum
að opna augun og kynna okkur for-
setaframbjóðendur þegar kosningar
eru annars vegar, við megum ekki
kjósa bara það sem við þekkjum, við
verðum að kynna okkur alla mögu-
leika og kjósa eftir okkar bestu sann-
færingu. Kjósa þann einstakling sem
við viljum og treystum fyrir okkar
framtíð.
Með þessum orðum vil ég þakka
öllum frambjóðendum síðustu kosn-
inga fyrir að hafa gefið kost á sér. Ég
óska þeim öllum alls hins besta og
bjartrar framtíðar.
Okkar framtíð skiptir máli
Eftir Olgu
Helgadóttur »Nýafstaðnar forseta-
kosningar. Ágæti
þeirra, kostir og gallar.
Olga Helgadóttir
Höfundur er förðunarfræðingur.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is