Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 3. S E P T E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 214. tölublað 100. árgangur
AUKIN GÖGN
UM STARFSEMI
KOMMÚNISTA
VIÐSKIPTABLAÐ
Selur öll ríkisskuldabréf
á Spán og Ítalíu
SÖNGVARINN
THOMAS HAMPSON
TIL LANDSINS FINNUR.IS
Húsin byggð yfir
hamingjuna í Eyjum TÓNLEIKAR 42GRIMMUR HEIMUR 16
Morgunblaðið/Einar Falur
Kröftugur Nýgenginn lax berst hraustlega
eftir að veiðimaður setti í hann í Grímsá.
„Auðvitað höfum við á Veiði-
málastofnun velt því fyrir okkur
hvort samhengi sé á milli stækk-
andi makrílstofns á norðurslóðum á
sama tíma og minna hefur gengið
af laxi í íslenskar ár en síðustu ár,“
segir Sigurður Guðjónsson, for-
stjóri Veiðimálastofnunar. „Makríl-
stofninn er margfalt stærri en laxa-
stofninn og þessi massi af fiski þarf
að éta mikið. Við sjáum líka að lax-
inn sem þó hefur gengið í árnar er
rýrari en áður.“
Sigurður segir brýnt að rann-
saka nánar hvort samhengi sé
þarna á milli og kortleggja göngur
tegundanna á hverjum tíma. »24
Vilja rannsaka áhrif
stækkandi makríl-
stofns á laxagengd
„Það er að
vissu leyti léttir
og það fylgir því
að vissu leyti
kvíði,“ sagði Hel-
ena Albertsdóttir
Mawby um að
meintur bana-
maður dótt-
ursonar hennar,
Kristjáns Hinriks
Þórssonar, hefur verið handtekinn.
„Það verða löng réttarhöld og ég
hlakka ekki til að sjá þetta skrímsli.
Við erum í svo miklu áfalli.“ Útför
Kristjáns fer fram á morgun. »14
Meintur morðingi
tekinn og ákærður
Kristján Hinrik
Þórsson
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mótmæli Fámennur hópur fólks mætti á Austurvöll á meðan forsætisráð-
herra flutti stefnuræðu sína og barði m.a. á tunnur í mótmælaskyni.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturj@mbl.is
Hart var tekist á um stöðu efnahags-
mála í landinu í umræðum á Alþingi í
gærkvöldi í kjölfar stefnuræðu for-
sætisráðherra. Jóhanna Sigurðar-
dóttir lagði höfuðáherslu á þann ár-
angur sem hún sagði að hefði náðst í
efnahagsmálum. Þjóðin hefði að und-
anförnu fundið fyrir batnandi hag
eftir bankahrunið. Hamfarirnar á
Norðurlandi síðustu daga voru einn-
ig ræðumönnum ofarlega í huga.
Jóhanna sagði þjóðarframleiðslu
hafa aukist hér á landi, störfum
fjölgað, kaupmáttur farið vaxandi og
lífskjör landsmanna orðið jafnari.
Sagði hún fá lönd innan OECD búa
við minna atvinnuleysi en Ísland og
að engu ríki hefði tekist að minnka
atvinnuleysi eins hratt og eins mikið
á undanförnum árum.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, vakti í ræðu
sinni m.a. athygli á því að þau ríki
sem Ísland væri borið saman við í
efnahagsmálum, til þess að sýna
fram á meinta góða stöðu, væru flest
í Evrópusambandinu. Þrátt fyrir það
væri það stefna ríkisstjórnarinnar að
ganga í sambandið. Í ræðu sinni vildi
Steingrímur J. Sigfússon umræðu
um erfiðleikana innan ESB. »2
Deilt um stöðu efnahagsmála
Fámenn mótmæli á Austurvelli
Mikið rætt um hamfarirnar nyrðra
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Leit að fé í fönn á Norðurlandi hefst aftur í birt-
ingu í dag. Leitin stóð fram í myrkur í gær á
Þeistareykjasvæðinu og víðar.
„Það hefur verið lögð mest áhersla á Þeista-
reykjasvæðið. Þar hafa verið um 80 leitarmenn
með sín tæki og tól. Þeir fundu allnokkuð af fé og
mest á lífi,“ sagði Svavar Pálsson, sýslumaður á
Húsavík og yfirmaður almannavarna í Þingeyj-
arsýslu í gær. Hann sagði að 140-150 manns hefðu
mætt til leitar í gærmorgun og átti hann von á að
yfir 200 manns yrðu við leitir í dag. Neyðarstig al-
mannavarna er enn í gildi.
Nokkrum vandkvæðum var bundið að koma fé
af Þeistareykjavæðinu í gær vegna ófærðar, að
sögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Um 200
kindur voru fluttar niður af Reykjaheiði í gær og
þá var lokið við að leita Vaðlaheiði og Bárðardal.
Meginþungi leitarinnar í dag verður á Þeista-
reykjasvæðinu, í Fnjóskadal og á Flateyjardal.
Eins verður leitað í Skarðsdal og bændur aðstoð-
aðir við leit í Kelduhverfi. Um 250 björgunarsveit-
armenn víða að af landinu verða við leitarstörf í
dag, auk bænda og búaliðs og fleiri.
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra
gerir ráð fyrir að hamfarirnar á Norðurlandi verði
ræddar í ríkisstjórn á morgun. Hann segir að ekki
sé víst að ríkið þurfi að leggja meira fé í Bjarg-
ráðasjóð vegna þeirra búsifja sem bændur á Norð-
austurlandi hafa orðið fyrir. Steingrímur útilokar
ekki að afurðatjón bænda mælist frekar í tugum
milljóna en milljónum.
MNeyðarástand í kjölfar óveðurs »12 og 18-21
Neyðarstig áfram í gildi
Hundruð leitarmanna víða að af landinu halda áfram leit að fé í fönn á Norður-
landi í dag Allnokkuð af fé fannst á Þeistareykjasvæðinu í gær og mest á lífi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjármunir Kolbeinn Kjartansson, bóndi í Hraunkoti, brunaði um Þeistareykjasvæðið á vélsleða í gær og flutti fé úr auðninni til móts við bíla með vagna.
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG