Morgunblaðið - 13.09.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
SVIÐSLJÓS
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturj@mbl.is
Hamfarirnar á Norðurlandi fyrr í
vikunni voru ræðumönnum á Al-
þingi ofarlega í huga í gærkvöldi
þegar Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra flutti stefnuræðu rík-
isstjórnar sinnar. Sagðist Jóhanna
vilja fullvissa heimamenn um að rík-
isstjórnin myndi tryggja að allur
nauðsynlegur stuðningur yrði veitt-
ur vegna þeirra.
Ræða Jóhönnu snerist að öðru
leyti fyrst og fremst um þann ár-
angur sem hún sagði að hefði náðst í
efnahagsmálum þjóðarinnar undir
forystu ríkisstjórnar hennar. „Á
liðnum mánuðum og misserum hafa
Íslendingar í æ ríkari mæli fundið
fyrir batnandi hag eftir þrengingar
áranna eftir hrun. Aukin þjóðar-
framleiðsla, fjölgun starfa, vaxandi
kaupmáttur launa og jafnari lífskjör
hafa gert það að verkum að sífellt
fleiri hafa sannfærst um að sam-
félag okkar sé nú á réttri leið og
bjartari tíð sé í vændum.“
Jóhanna sagði ennfremur að fá
lönd innan OECD byggju við minna
atvinnuleysi í dag en Ísland og að
engu ríki hefði tekist að minnka at-
vinnuleysi eins hratt og eins mikið á
undanförnum árum. „Á þessu ári
hafa orðið til um 4.600 ný störf og
ekkert bendir til annars en að fram-
hald verði á lífskjarasókn Íslendinga
á komandi árum, ef áfram verður
haldið á sömu braut,“ sagði hún og
bætti við að fyrir vikið væri fullt til-
efni til bjartsýni og sóknar í íslensku
samfélagi. Vísaði hún í nýlega sam-
evrópska könnun sem sýndi að
hvergi teldi jafn stór hluti þjóðar, að
Svíþjóð undanskilinni, að land sitt
væri á réttri leið og hér á landi.
Náðst hefði mikill árangur
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra sagði í ræðu sinni á
Alþingi í kjölfar stefnuræðu for-
sætisráðherra að tekist hefði að
endurheimta efnahagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar í kjölfar banka-
hrunsins og hún stæði nú á eigin fót-
um. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
væri farinn af landi brott, Ísland
hefði aftur aðgang að alþjóðlegum
fjármálamörkuðum og nyti nú virð-
ingar út á þann árangur sem náðst
hefði.
Þetta hefði þó ekki tekist án fórna
og það hefði reynt á þanþolið. Geng-
ið hefði mun betur hér að koma
böndum á hallarekstur ríkisins og
auka hagvöxt en í öðrum ríkjum
sem glímdu við efnahagserfiðleika.
Við lok ræðu sinnar kallaði hann eft-
ir því að aðrir flokkar sameinuðust
um að gefa Sjálfstæðisflokknum frí
frá landstjórninni í það minnsta eitt
kjörtímabil í viðbót.
„Enginn efast um að það hafi ver-
ið markmið ríkisstjórnar Jóhönnu
Sigurðardóttur að skapa störf og
vinna vel í þágu þjóðarinnar, finna
leiðir út úr vandanum og hefja nýtt
endurreisnartímabil. Án vafa hafa
þau ætlað að gera sitt besta. Gallinn
er bara sá að það dugar ekki til og
hvorki leikur að tölum né orðum
brauðfæðir nokkurn mann,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, í ræðu sinni í
gærkvöldi. Hann sagði þess beðið að
Alþingi setti stefnuna á mál sem
skiptu sköpum fyrir almenning og
að blásið yrði lífi í vinnumarkaðinn.
Sömuleiðis að stjórnvöld létu af
skattpíningarstefnu sinni og eltu
ekki uppi þær atvinnugreinar sem
fælu í sér vaxtarbrodd og legðu á
þær þungar byrðar. Þá væri þess
líka beðið að fá að gera upp reikn-
inginn við ríkisstjórnina í kosning-
unum næsta vor.
Leitað skynsamlegra lausna
„Vandi okkar hverfur ekki bara
við að nokkrir hagfræðingar ríkis-
stjórnarinnar segi efnahagstölur
hafa batnað. Vandi íslensku þjóð-
arinnar er ekki leystur fyrr en al-
menningur finnur það í sínu daglega
lífi, heimili geta náð endum saman
um mánaðamót, og aldraðir og ör-
yrkjar geta lifað mannsæmandi og
áhyggjulausu lífi,“ sagði Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, í ræðu sinni.
Þá hafnaði hann því að einhver
ein hugmyndafræði byggi yfir öllum
svörunum í ljósi umræðu undanfarið
um það hvort frjálshyggjan eða sósí-
alisminn væru betur til þess fallin að
bæta hag landsmanna. Þess í stað
ætti að leita skynsamlegustu lausn-
arinnar hverju sinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Stefnuræða Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í ræðustól.
Hamfarir ofarlega í huga
Forsætisráðherra lagði áherslu á árangur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum
Stjórnin reynt sitt besta en það hefur ekki verið nóg, segir Bjarni Benediktsson
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Dregist hefur að ljúka lánasamningi
vegna gerðar Vaðlaheiðarganga.
Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, stjórn-
arformaður Vaðlaheiðarganga hf.,
segir að það sem standi út af sé að
ganga frá hlutafjáraukningu í Vaðla-
heiðargöngum hf.
Í viðtali við Morgunblaðið 9. ágúst
sagðist Kristín vonast til að gengið
yrði frá hlutafjáraukningunni um
miðjan ágústmánuð og að samið yrði
um lán í sama mánuði.
Kristín sagði í gær að flest væri
komið á hreint varðandi lánasamning-
inn en eftir væri að ganga frá hluta-
fjáraukningunni. Meiningarmunur
væri á milli Greiðrar leiðar ehf. sem á
49% hlut í Vaðlaheiðargöngum hf. og
fjármálaráðuneytisins.
Greið leið hefði samþykkt að leggja
200 milljónir til viðbótar inn í félagið.
Af hálfu Greiðrar leiðar væri litið svo
á að hlutaféð þyrfti að leggja fram áð-
ur en sjö ára skammtímalán fyrir
stofnkostnaðinum og fyrstu þremur
rekstrarárunum yrði endurfjármagn-
að. Í fjármálaráðuneytinu væri á hinn
bóginn litið svo á að ganga þyrfti frá
hlutafjáraukningunni áður en skrifað
væri undir lánasamninginn.
Kristín sagði að á meðan lánasamn-
ingur lægi ekki fyrir yrði ekki samið
við stærri verktaka um gerð jarð-
ganganna. Hún telur að stutt sé í að
samningar takist en of snemmt sé að
ræða um dagsetningar í því sam-
bandi. „En það má ekki tefjast mikið
lengur með þennan lánasamning,“
bætti hún við.
Lánasamningur jarð-
ganganna dregst enn
Ljósmynd/Vegagerðin
Göng Undirbúningsframkvæmdir
eru hafnar við Vaðlaheiðina.
Miklu skiptir fyrir Ísland hvernig
vinnst úr efnahagserfiðleikum inn-
an Evrópusambandsins og mik-
ilvægt er að fram fari málefnaleg
og uppbyggileg umræða í þeim
efnum. Þetta kom meðal annars
fram í ræðu Steingríms J. Sigfús-
sonar atvinnuvegaráðherra á Al-
þingi í gærkvöld í kjölfar stefnu-
ræðu forsætisráðherra.
Þá væri einnig mikilvægt að
slíkt umræða færi fram um
stöðu viðræðnanna um inn-
göngu í Evrópusambandið líkt
og Vinstrihreyfingin – grænt
framboð hefði kallað eftir.
Það þýddi þó ekki að ekki yrði
staðið á rétti Íslands til að
mynda varðandi fiskveiðihags-
muni.
Vill umræðu um erfiðleika ESB
RÆÐA ATVINNUVEGARÁÐHERRA OG FORMANNS VG
Morgunblaðið/Kristinn
Viðbrögð Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
’Óskapleg gæfaværi að bjóða Sjálf-stæðisflokknum upp áað minnsta kosti fjögurár í viðbót til endurhæf-
ingar og sjálfsskoðunar
sem enn virðist ekki hafa farið fram. Ég
mæli með því að við veitum Sjálfstæð-
isflokknum skjól til að finna fjölina sína,
einhvern tímann verður hann þá aftur
stjórntækur flokkur og meira að segja
hugsanlega aftur fær um að bera
ábyrgð á efnahagsmálum án þess að
stofna okkur í stórhættu.
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður VG
’Hvorki sósíalisminé frjálshyggja hef-ur lausn á öllum vanda.Og því fyrr sem stjórn-málamenn átta sig á
þessari staðreynd, því
fyrr mun rökhyggja og skynsemi þoka
okkur nokkuð á leið. Til að ná raunveru-
legum árangri verðum við að leita skyn-
samlegustu lausnarinnar á hverjum
vanda.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins
’Forsætisráðherrahreykir sér af ár-angri í skuldamálumheimilanna. Á samatíma og yfirdráttarlán
heimilanna eru hærri en
nokkru sinni fyrr í sögu íslenskrar þjóð-
ar. Forsætisráðherra bætir um betur og
segir að skuldir heimilanna hafi orðið til
fyrir bankahrun. Fólk sem tók sín lán á
árinu 2008 er í langmestum erf-
iðleikum. Og hver lánaði til húsnæðis-
kaupa árið 2008? Jú, það var Íbúða-
lánasjóður.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
’Okkur má aldreiaftur vera sama.Við megum aldrei afturláta stjórnvöld komastupp með að ljúga að
okkur, þess vegna verð-
um við að mæta í þjóðaratkvæða-
greiðsluna 20. október.
Margrét Tryggvadóttir,
þingmaður Hreyfingarinnar
’Uppgangur er aðhefjast en brestir ísamfélaginu gera aðverkum að uppgang-urinn gæti orðið okkur
miklu erfiðari en krepp-
an. Byggjum upp traust í samfélaginu,
þá getum við vonandi fjarlægt var-
anlega járngirðinguna á Austurvelli,
sett hana á safn eða notað hana sem
þvottagrind.
Guðmundur Steingrímsson,
óháður þingmaður
Orðrétt
af Alþingi
Evrópuþingið samþykkti á fundi sín-
um í gær, með 659 atkvæðum gegn
11, tillögur um að Evrópusamband-
inu (ESB) verði heimilað að grípa til
refsiaðgerða gegn ríkjum utan sam-
bandsins sem það telur stunda
ósjálfbærar fiskveiðar.
Samkvæmt tillögunum getur ESB
bannað innflutning á fiski frá þeim
ríkjum, sem talin eru stunda ofveiði
á fiskistofnum. Sjávarútvegsnefnd
Evrópuþingsins hafði áður sam-
þykkt tillögurnar sem fara nú fyrir
framkvæmdastjórn sambandsins til
staðfestingar.
Á vef Evrópuþingsins er haft eftir
Pat the Cope Gallagher, Evrópu-
þingmanni frá Írlandi, að bregðast
þurfi strax við ástandinu í Norður-
Atlantshafi í ljósi þess að Íslending-
ar hafi einhliða aukið við makríl-
kvóta sinn úr 363 tonnum árið 2005 í
147 þúsund tonn í ár.
Samþykktu heimild
til refsiaðgerða
ESB Hús Evrópuþingsins í Brussel.