Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 4

Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 4
Dæmi um þróun einkunna í HÍ Heimild: Háskóli Íslands 19 71 –’ 75 19 76 –’ 80 19 81 –’ 85 19 86 –’ 90 19 91 –’ 95 19 96 –’ 00 20 01 –’ 05 20 06 –’ 10 20 11 –’ 15 BS í líffræði Meðaleinkunn Fjöldi nemenda 26 7,0 7 154 7,0 4 203 7, 16 161 7, 15 138 6, 98 99 7,0 2 95 6, 97 113 6, 91 97 7,0 2 19 71 –’ 75 19 76 –’ 80 19 81 –’ 85 19 86 –’ 90 19 91 –’ 95 19 96 –’ 00 20 01 –’ 05 20 06 –’ 10 20 11 –’ 15 BS í jarðfræði Meðaleinkunn Fjöldi nemenda 40 6, 62 43 39 25 30 39 47 48 12 6, 82 6, 97 6, 96 7, 57 7, 33 7,6 3 7,7 3 7, 52 19 71 –’ 75 19 76 –’ 80 19 81 –’ 85 19 86 –’ 90 19 91 –’ 95 19 96 –’ 00 20 01 –’ 05 20 06 –’ 10 20 11 –’ 15 BS í eðlisfræði Meðaleinkunn Fjöldi nemenda 69 48 302626 201117 8, 0 5 7, 187, 27 7,0 7 6, 566, 75 6, 71 19 71 –’ 75 19 76 –’ 80 19 81 –’ 85 19 86 –’ 90 19 91 –’ 95 19 96 –’ 00 20 01 –’ 05 20 06 –’ 10 20 11 –’ 15 BS í efnafræði Meðaleinkunn Fjöldi nemenda 6, 59 6, 46 6, 91 6, 68 6, 79 7, 34 7, 34 7, 47 7, 57 15 21 16 41 25 27 19 25 13 BAKSVIÐ Rúnar Pálmason runarp@mbl.is „Það sem fyrst og fremst má lesa út úr þessum tölum er hvað fjárfesting í menntun hefur skilað sér vel,“ seg- ir dr. Hilmar Bragi Janusson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, um samantekt á einkunnum í greinum sem falla und- ir sviðið. Samantektin nær aftur til ársins 1971. Í flestum greinum hefur meðaleinkunn hækkað mark- tækt en það er þó ekki alveg ein- hlítt. Verfræði- og náttúruvís- indasvið Háskóla Íslands er eina svið háskólans sem hefur birt upplýsingar um dreifingu einkunna, meðaleinkunn, fjölda og kynjahlutföll þeirra sem hafa lokið BS-prófum við sviðið. Upplýsingarnar eru birtar á vef sviðsins. Í ljós kemur að undanfarna fjóra áratugi hefur meðaleinkunn í flestum tilfellum hækkað, oft um einn heilan og stundum meira. Um leið hefur þeim sem ljúka BS-prófi fjölgað og konur eru nú mun hærra hlutfall brautskráðra. Færni og geta aukist Hilmar Bragi segir að forðast beri að draga of víðtækar ályktanir af niðurstöðum samantektarinnar Sér- staklega verði menn að passa sig á að falla ekki í þann fúla pytt að halda að óeðlileg einkunnaverðbólga skýri hækkunina. Nærtækasta skýringin sé sú að þeir fjármunir sem hefur verið varið í menntun hafi skilað sér í betra menntakerfi og betri nem- endum. Hilmar Bragi er verkfræði- menntaður og hann var áður fram- kvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknarstarfs hjá Össuri hf. „Í mínu fyrra starfi tók ég við nokkrum kynslóðum af verkfræðingum frá HÍ. Og ég get staðfest að færni þeirra og geta hefur aukist með hverju einasta ári sem hefur liðið.“ En telur hann að meðaleinkunnir muni halda áfram að hækka? „Ja, þær fara að minnsta kosti ekki yfir 10, það gefur augaleið,“ segir Hilm- ar Bragi og hlær en er fljótur að bæta við að hækkun meðaleinkunna hafi í flestum tilfellum orðið fyrir nokkrum árum þegar ákveðin eðl- isbreyting hafi orðið á starfsemi há- skólans. Samanburður yfir löng tímabil sé varasamur og kerfi eins og námsmatskerfi hafi tilhneigingu til að ná jafnvægi. Í samantektinni sést vel hversu mikið nemendum hefur fjölgað. Á árunum 1971-1975 luku 192 BS-prófi úr greinum sem falla undir sviðið en á árunum 2006-2011 luku 1.214 prófi. Þá kemur fram að á árunum 1971- 1975 var hlutfall kvenna í deildinni 23% en karla 77%. Hlutfallið á ára- bilinu 2011-1015 er 40% á móti 60%, körlum í vil. Hlutfallið var jafnara 2006-2010, 46% á móti 54%. Það vekur nokkra athygli að í meirihluta tilfella er meðaleinkunn kvenna hærri en karla. Hilmar Bragi varar við því að draga of víð- tækar ályktanir af því sem kemur fram um frammistöðu kynjanna. „En ein af ástæðum þess að nem- endum hefur fjölgað í háskólum er að þátttaka kvenna hefur aukist. Og því fleiri, því betra. Þetta sýnir bara hversu skynsamleg jafnréttissjón- armið eru. Þarna fáum við upp- sprettu af góðu fólki,“ segir hann. Fylgjast með hjá HR Hjá Háskólanum í Reykjavík hafa upplýsingar um þróun einkunna á síðustu árum ekki verið teknar sam- an fyrir skólann í heild og ekki reyndist unnt að gera það vegna fyr- irspurnar Morgunblaðsins þess efn- is. Rósa Gunnarsdóttir, for- stöðumaður kennslusviðs HR, bend- ir á að þótt gögn um einkunnir séu að sjálfsögðu varðveittar hjá skól- anum, taki töluverðan tíma að safna þeim saman þannig að þær séu birt- ingarhæfar, m.a. með tilliti til per- sónuverndarsjónarmiða. Rósa segir að stjórnendur skólans ræði reglu- lega um einkunnagjöf og einkunnir séu í jafnvægi í skólanum. Deild- arforsetar fylgist með þróun ein- kunna í sínum deildum og þeir gæti að því að ekki hlaupi í þær óeðlileg verðbólga. Rósa bendir einnig á að farið sé eftir lærdómsviðmiðunum í hverju námskeiði fyrir sig og mikil vinna lögð í að samræma námsmatið við þau viðmið. Einkunnir þokast oftast upp á við  Meðaleinkunn þeirra sem útskrifast með BS-próf frá verkfræði- og náttúruvísindasviði hækkar  Forseti sviðsins segir nærtækast að álykta að menntakerfið hafi batnað  Færni og geta aukist Hilmar Bragi Janusson Á undanförnum fimm árum hafa um 40% af vegnum meðaleinkunnum við HÍ verið yfir 8 og einkunnagjöf virðist hafa verið í jafnvægi á þessu tímabili. Meðaleinkunnir eru þó afar mismunandi milli deilda, meðal- einkunn í lagadeild hefur t.d. ekki farið upp fyrir 5,9 frá árinu 2008 og í mesta lagi 17,9% einkunna við deildina eru yfir 8. Til samanburðar hefur meðaleinkunn í læknadeild verið bilinu 7,5-7,7 og hátt í 60% einkunna eru á bilinu 8 og yfir. „Það eru ólíkar hefðir milli fræði- greina og vísindasviða um ein- kunnagjöf,“ segir Hreinn Pálsson, prófstjóri Háskóla Íslands. Meðaleinkunn er reiknuð út frá lokaeinkunnum sem nemendur hafa fengið fyrir námskeið, lokaritgerðir og verkefni. Upplýsingarnar ná að- eins til ársins 2008. Það ár var skipulagi háskólans umbylt og dýpra á upplýsingum um einkunnir fyrir þann tíma. kunnir hafa hækkað frá því sem var,“ segir hann. Hreinn bendir einnig á að reglu- lega séu námsbrautir metnar af er- lendum aðilum. Þá skipti verulegu máli að í erlendum háskólum fari það orð af HÍ að nemendur þaðan standi afar vel að vígi. Hreinn segir að farið sé yfir ein- kunnagjöf á hverju misseri innan deilda og sviða. Þá veiti nemendur aðhald og láti vita ef einkunnir í til- teknum námskeiðum eru lægri en árið áður. „Svo er það svo merkilegt með nemendur, ég minnist þess ekki að þeir hafi kvartað ef ein- Ólíkar hefðir milli fræðigreina um einkunnagjöf VEGNAR MEÐALEINKUNNIR GRUNNNEMA VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS 5, 8 8 5, 6 6 5, 79 5, 9 0 7 ,5 4 7, 70 7, 6 5 7, 52 6, 9 4 6, 76 6, 8 6 6, 67 7, 6 0 7, 70 7, 78 7, 8 2 Heimild: Háskóli Íslands Vegin meðaleinkunn grunnnema í HÍ 2008-2012 Lagadeild Læknadeild Sagnfræði- og heimspekideild Kennaradeild ‘0 8- ’0 9 ‘0 9- ’10 ‘10 -’1 1 ‘11 -’1 2 ‘0 8- ’0 9 ‘0 9- ’10 ‘10 -’1 1 ‘11 -’1 2 ‘0 8- ’0 9 ‘0 9- ’10 ‘10 -’1 1 ‘11 -’1 2 ‘0 8- ’0 9 ‘0 9- ’10 ‘10 -’1 1 ‘11 -’1 2 Hlutfall einkunna yfir 8 15,5% 17,9% 56,3% 55,7% 36,7% 37,9% 57,1% 62,6% 2. 57 7 2. 75 6 2. 74 4 2. 76 5 3. 0 56 3. 0 42 3. 11 9 2. 98 2 1. 54 3 1. 76 1 1. 85 7 1. 96 9 5. 90 9 5. 68 4 4. 47 0 3. 46 6 Fjöldi einkunna 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, seg- ir ýmislegt jákvætt við fjárlagafrum- varpið fyrir árið 2013 en margt í frumvarpinu sé líka mikið áhyggju- efni. Það sé fagnaðarefni að nú virðist jöfnuður í ríkisfjármálum vera í aug- sýn og ávinningur þess sé mikill og ætti m.a. að geta stuðlaðað að vaxta- lækkunum á markaði. Gagnrýnir hækkun skatta og álögur á atvinnulífið Gylfa fagnar einnig áformum um hækkun fæðingarorlofsgreiðslna og barnabóta og húsnæðisbóta. Þá séu aukin framlög til framkvæmda og nýsköpunar mikilvæg fyrir atvinnu- uppbygginguna, sem byggist ekki síst á álagningu auðlegðarskattsins á sjávarútveginn, svo þjóðin fái notið afrakstursins af henni. „En það er líka margt í þessu frumvarpi sem er mikið áhyggjuefni. fella niður fjórða árið til greiðslu at- vinnuleysisbóta og fella eigi niður heimild til að greiða fiskvinnslufyr- irtækjum styrki vegna hráefnis- skorts en spara eigi með síðar nefndu tillögunni 350 milljónir. Þá segir Gylfi að í frumvarpinu séu óvissuatriði um mjög mikilvæga málaflokka, s.s. um almannatrygg- ingarnar. ,,Það er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að hækkun bóta al- mannatrygginga verði á grundvelli lágmarksákvæðisins, þ.e.a.s. verð- lags. Við erum með samkomulag við stjórnvöld um að þær hækki með sambærilegum hætti og hjá sambærilegum hópum,“ segir hann. Þetta var mikið deiluefni um seinustu áramót og var starfshópur skipaður en Gylfi segir að nú sé óvissa um með hvaða hætti tillögur hóps- ins um endurskoðun almannatrygginga- kerfisins komi fram. „Jafnframt var samkomulag um að lækkun atvinnuleysis myndi skila sér í lækkun atvinnutryggingagjalds og tryggingagjalds. Þess vegna er ekki hægt annað en að taka undir með [SA] um að þetta kemur alger- lega í bakið á því sem við vorum að gera.“ Gylfi segir að það sé líka verulegt áhyggjuefni að boðaðar séu veru- legar skerðingar í atvinnubótakerf- inu í frumvarpinu. Þar eigi bæði að Það er verið að hækka skatta og álögur á atvinnulífið og auðvitað hef- ur það áhrif á okkur. Að hækka tryggingagjöld hefur áhrif á atvinnu- stigið og á getu fyrirtækjanna til að standa undir skuldbindingum sínum gagnvart okkar fólki,“ segir Gylfi. Hann tekur undir gagnrýni Sam- taka atvinnulífsins á boðaða hækkun tryggingagjalds í fjárlagafrumvarp- inu. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær hafa forsvarsmenn SA staðið í þeirri trú að gjaldið myndi lækka í takt við minna atvinnuleysi. Ein veigamesta forsenda kjara- samninganna sé því beinlínis brotin með þessari hækkun. Gylfi segir að tekist hafi verið á um þetta í aðdraganda að gerð kjara- samninganna. „Þá var boðað í rík- isfjármálaáætluninni og það var vilji ráðherrans sem þá var, að hækka al- menna gjaldið á móti lækkun þessa gjalds. Í þeirri rimmu náðist sam- komulag um að atvinnulífið hækkaði greiðslur sínar í Fæðingarorlofssjóð og í Ábyrgðasjóð launa,“ segir Gylfi. Hækkunin kemur í bakið  Forseti ASÍ tekur undir gagnrýni SA á hækkun tryggingagjalds þvert á sam- komulag  Segir jákvætt í frumvarpinu að jöfnuður sé í augsýn og bætur hækka Tillaga í fjárlagafrumvarpinuum að hætt verði að greiða styrki til fiskvinnslunnar vegna vinnslustöðvunar af völdum hráefnisskorts er mjög gagn- rýniverð að mati forseta ASÍ og stangast á við kjarasamn- inga fiskvinnslufólks. Er þetta rökstutt þannig í greinargerð frumvarpsins að ekki þyki lengur vera ástæður til að ríkið veiti slíkan stuðning í einni at- vinnugrein. „Fiskvinnsluákvæðið er ára- tuga gamalt ákvæði, sem teng- ist ráðningaröryggi fisk- vinnslufólks og er hluti af kjarasamningi,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann minnir á að atvinnurek- endum er ennþá heimilt að senda fólk heim þegar hráefn- isskortur er í fiskvinnsl- unni. ,,Það er verið að fella niður bótaréttinn á tímabilinu. Það verð- ur þá að taka upp kjarasamninginn,“ segir Gylfi. Hluti kjara- samnings FISKVINNSLUÁKVÆÐIÐ Gylfi Arnbjörnsson Morgunblaðið/Ernir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.