Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 10
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
G
ullsmiðurinn Sveinn
Ottó Sigurðsson sækir
hugmyndir að
skartgripalínu sinni
Freyju í íslenska nátt-
úru. Úr silfri mótar Sveinn Ottó
bláberjalyng, blóðberg og fleiri ís-
lenskar jurtir í hálsmen og eyrna-
lokka.
Margar fallegar jurtir
„Mig hefur lengi langað til að
smíða skartgripi og vorum við kon-
an mín mikið búin að velta fyrir
okkur í sameiningu hvað ég gæti
gert.
Við erum mikið úti í nátt-
úrunni að skoða blóm og jurtir og
þannig kviknaði hugmyndin smám
saman að því að geta borið hluta af
íslenskri náttúru á sér allt árið. Ég
byrjaði fyrst á að búa til skartgripi
sem litu út eins og bláberjalyng,
síðan blóðberg og tók eitt við að af
öðru. Enda er mikið til af fallegum
jurtum og hægt að fá endalausar
hugmyndir út frá þessu. Nú er ég
að vinna með krækilyng í eyrna-
lokkum og hálsmeni,“ segir Sveinn
Ottó. Umbúðirnar utan um skart-
gripina eru einnig íslenskar en þær
eru unnar úr viði sem Sveinn Ottó
sankar að sér. Hugmyndina að
öskjunum átti mágkona Sveins Ott-
ós sem þróað hefur hugmyndina
með henni og eiginkonu sinni.
„Þetta hefur vakið mikla at-
hygli en það er svolítið nostur við
þetta. Það þarf að þurrka viðinn
sem tekur sinn tíma og svo þarf að
Bláberjalyng og
blóðberg um hálsinn
Hugmyndir að skartgripalínu sinni Freyja sækir gullsmiðurinn Sveinn Ottó Sig-
urðsson úr íslenskri náttúru. Hann hannar meðal annars skartgripi sem líta út
eins og bláberjalyng og blóðberg en nóg er til af fallegum jurtum og hugmyndaupp-
sprettan því í raun endalaus. Sveinn Ottó lærði gullsmíði í Danmörku og starfaði
þar um tíma hjá hinu rótgróna hönnunarfyrirtæki Georg Jensen.
Gullbrá Þessir eyrnalokkar eru smíðaðir eftir blóminu gula.
Bláberjalyng Lyngið góða veitti Sveini Ottó innblástur að þessu meni.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Nú þegar haustið færist nær fer fólk
að huga að námi og víst er að hugur
einhverra stendur til háloftanna. Fyr-
ir þá sem langar að starfa á því sviði
sem tengist flugi, er um að gera að
kynna sér námið hjá Flugskóla Ís-
lands á vefsíðunni tskoli.is/flugskoli-
islands. Þar er í boði fjölbreytt nám,
fyrir einkaflugmenn, atvinnu-
flugmenn, réttindanám í blind-
flugsáritun sem það veitir réttindi til
að fljúga við blindflugsskilyrði á þeim
flokki flugvéla sem blindflugprófið
var tekið á. Einnig er í skólanum boð-
ið upp á flugvirkjanám, grunn-
námskeið fyrir flugumferðarstjóra
sem og grunnnám fyrir flugfreyjur og
flugþjóna. Í næsta mánuði, í byrjun
október fer einmitt af stað næsta
grunnnámskeið flugfreyja og flug-
þjóna. Þetta verður kvöldnámskeið
og stendur yfir í sjö vikur. Um að gera
fyrir áhugasama að kynna sér.
Vefsíðan www.tskoli.is/flugskoli-islands
Flugskóli er spennandi kostur
Flug Flugstjóranámið hefur löngum heillað ungt fólk af báðum kynjum.
Dr. Jaqueline Simpson, fræðikona á
sviði þjóðfræði og fornnorrænna
fræða, og Terry Gunnell, prófessor í
þjóðfræði við Háskóla Íslands, munu
eiga samtal á sviði á morgun, föstu-
daginn 14. september kl 17. Þar
munu þau ræða Terry Pratchett og
fantasíubókaseríu hans Discworld
en viðburðurinn er öllum opinn. Dr.
Simpson lagði stund á enskar bók-
menntir og miðaldaíslensku við
Bedford College í Lundúnaháskóla.
Hún hefur komið að fjölda rann-
sókna og útgáfu bóka, bæði sem
sjálfstæð fræðikona og í samstarfi
við aðra fræðimenn.
Endilega...
...hlýðið á
samtal á sviði
Samtal Umræða um verk Pratchett.
Nú gefst tónlistarfólki um allt land
tækifæri á að koma heiminum í lag
með því að semja lag við texta við
Sævars Sigurgeirssonar. En Sævar
hefur samið textana sérstaklega fyrir
kynningarátak um gildi þróunarsam-
vinnu sem hefst formlega 17. sept-
ember næstkomandi. Það eru frjáls
félagasamtök á Íslandi, sem starfa að
alþjóðlegri þróunarsamvinnu, sem
vinna að átakinu í samstarfi við Þró-
unarsamvinnustofnun Íslands. Und-
irtitill átaksins er „Komum heiminum
í lag“ og biðla samtökin til tónlist-
arfólks á öllum aldri um aðstoð við
að koma skilaboðunum á framfæri.
Texta Sævars má finna á Facebook
undir „Þróunarsamvinna ber ávöxt“
en flytjendur taka lagið upp á mynd-
band og setja inn á síðuna. Eitt lag og
flytjandi verða valin til að taka þátt í
tónleikunum á Rósenberg laug-
ardagskvöldið 22. september. Þar
munu einnig flytja sínar útgáfur Jón
Jónsson og Friðrik Dór, Lára Rúnars-
dóttir og hljómsveit, Magni Ásgeirs-
son, Ragnheiður Gröndal og Védís
Hervör og Varsjárbandalagið. Nánari
upplýsingar á www.facebook.com/
throunarsamvinna.ber.avoxt.
Gildi þróunarsamvinnu
Tónlistarfólk á öllum aldri
kemur heiminum í lag
Ljósmynd/Norden.org
Tónsmíðar Tónlistarfólk á öllum aldri er hvatt til að leggja sitt af mörkum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Opnir tímar:
4 flottir skvass salir
Körfuboltasalur
Einn besti golfhermir landsins
Velbúinn tækjasalur
Gufubað
7 Cross bells tímar á viku
6 Spinning tímar á viku
Einkaþjálfarar
Skvass kennsla
Persónuleg þjónusta
Spinning
mán., mið. og fös., kl 12.00 og 17.15
Mikill hraði og brennsla.
Ko
m
du
m
eð
íg
ot
t
fo
rm
!
Cross bells
þri. og fim., kl 12.00 og 17.15
lau., kl. 10.00
Styrkir alla vöðva líkamans.
Árskort á tilboði til 15 september
Aðeins 49.900 kr.
Áður 59.900 kr