Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 16

Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 16
VIÐTAL Kristján Jónsson kjon@mbl.is Jósef Stalín, einræðisherra í Sovét- ríkjunum gömlu í áratugi, lét koma á fót geysimiklu, leynilegu njósna- og áróðursneti á vegum Alþjóða- sambands kommúnistaflokka, Kom- intern, að sögn danska sagnfræðipró- fessorsins Niels Eriks Rosenfeldts. Einnig fengu allir flokkarnir skipun frá Moskvu árið 1930 um að setja upp umfangsmikið neðanjarðarkerfi sem gæti starfað áfram þótt þeir yrðu bannaðir. „Svo öflugt var þetta neðanjarðar- stjórnkerfi og njósnanet að einn af leiðtogum bandarískra kommúnista, Jozsef Peters, sem reyndar gekk undir ýmsum öðrum dulnefnum, sagði í æviminningum sínum að op- inbera flokknum mætti líkja við sjón- pípu kafbáts. Hún væri það eina sem almenningur sæi en undir væri marg- falt stærra apparat, sjálfur kafbát- urinn!“ segir Rosenfeldt. Hann er þekktur sérfræðingur í sögu Komintern og flutti á mánudag fyrirlestur í Odda í boði Rannsókn- arseturs um nýsköpun og hagvöxt, Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands og Varðbergs. Óþægilegar staðreyndir og fótgönguliðið Rosenfeldt segir aðspurður að fjöl- margir almennir liðsmenn komm- únistaflokka, í Danmörku, á Íslandi og víðar, hafi annaðhvort ekki gert sé grein fyrir raunverulegu eðli starfs- ins, þ. á m. þjálfun sem menn fengu í hermennsku í Moskvu, eða kosið að vilja ekki vita, þaggað niður efa- semdaraddirnar í eigin sinni. „Ég held að margir hafi ýtt þessum óþægilegu staðreyndum frá sér,“ seg- ir Rosenfeldt. „Þetta var svolítið erf- itt mál, þetta með hlýðnina. Komm- únistar vildu gjarnan láta líta út fyrir að þeir væru ekki bara að hlýða fyr- irmælum frá Moskvu. En nú er búið að lyfta hulunni af mörgum gögnum og við vitum tals- vert, þó ekki nærri nóg. En fyrir fræðimenn er eðlilegast að reikna með því að hafi starfsemi Komintern farið fram með ákveðnum hætti í þrem eða fjórum löndum sé nær öruggt að hún hafi verið svipuð ann- ars staðar. Mér finnst t.d. barnalegt að halda að íslenskir flokksmenn hafi ekki eins og aðrir fengið hernaðar- þjálfun í skól- unum í Sovétríkj- unum þótt erfitt geti verið að finna gögn sem sanna það með ótvíræð- um hætti. Hvers vegna hefðu ís- lenskir komm- únistar átt að vera eina undantekn- ingin í öllum heiminum? Það virkar ekki sennilegt. Því miður er ekki lengur aðgangur að leynilegasta hluta Komintern, njósnanetinu sem yfirleitt var kallað OMS í samskiptum þeirra tiltölulega fáu flokksmanna sem vissu um tilveru þess. En almennt er nú hægt að fá að skoða aðra hluta skjalasafns Kom- intern.“ Erindrekar Komintern oft áberandi leiðtogar -Þór Whitehead hefur leitt sterkar líkur að því að einn af frammámönn- um kommúnista hérlendis, Eggert Þorbjarnarson, hafi verið launaður erindreki Komintern. En hann var vel þekktur, er ekki líklegra að þeir hafi notað einhvern minna áberandi? „Alls ekki, ég minni á að Peters var mjög áberandi í flokknum vestanhafs, dæmin eru fleiri. Komintern þurfti fólk sem var í traustum tengslum við flokksforystuna á sínu svæði. Og svo gat þetta líka blekkt óvini, þeir myndu efast um að þekktir leiðtogar væru líka að njósna.“ -Þú hefur sagt að Stalín hafi látið safna upplýsingum um ýmis einkamál leiðtoga í flokkum utan Sovétríkj- anna, mál sem þeir vildu ekki að kæmu fyrir almenningsaugu. Hvern- ig var þetta efni notað? „Frá því um 1930 fara þeir að safna efni um feril leiðtoganna sem fengu skipun um að senda yfirstjórninni sjálfsævisögur, eins konar ferilskrár um sig. Einnig áttu þeir að senda mat á persónuleika þeirra sem einhver annar átti að skrifa. Ef apparatið í Moskvu sá að einhver þeirra hefði t.d. haft tengsl við Trotskí var það eins og svartur blettur á ferlinum. Og ef hann hafði beinlínis verið trotskíisti en ekki nefnt það, þagað yfir því, var málið mjög alvarlegt. Morðið í Kongelunden Þessar upplýsingar í Moskvu höfðu fælandi áhrif, tryggðu góðan aga. Menn vissu að þær voru til og alltaf hægt að nota þær. Ógnin, Damokles- arsverðið, vofði yfir þeim, menn gátu aldrei verið öruggir.“ Sumt af því sem gerðist hjá flokkn- um á Norðurlöndum er svo hrikalegt að minnir á glæpasögur. Richard Jensen, háttsettur Komintern- njósnari og einn af leiðtogum Alþjóð- sambands sjómanna og hafnarverka- manna, er í bók Eriks Nørgaards, Mordet i Kongelunden, sagður hafa tekið þátt í að myrða svikulan flokks- mann, Eistlending, og líkið var falið í húsagarði. Síðar hafi Búlgarinn Dí- mítroff, einn af þekktustu frammá- mönnum Komintern, látið Danina grafa líkið upp og eyða því með sýru til að engin sönnunargögn fyndust! -Er þetta sönn saga? „Nørgaard byggir bók sína að miklu leyti á viðtölum við Jensen sem var kannski ekki öruggt vitni en var kommúnisti til dauðadags. Hann staðfesti í megindráttum þessa frá- sögn. Almennt má segja að mikið hafi gengið á í samsæris- og leynimakks- umhverfi Komintern-liða í Kaup- mannahöfn fyrri hluta fjórða áratug- arins, það vitum við.“ Grimmur heimur samsæranna  Stöðugt er aflað betri gagna um alþjóðlega starfsemi kommúnistaflokkanna á 20. öld  Tortryggni í anda Stalíns réð ríkjum og eitt sinn myrtu danskir Komintern-liðar ótryggan félaga Öruggur Jósef Stalín var einræð- isherra í nær þrjá áratugi. Jozsef Peters Morgunblaðið/Styrmir Kári Fræðimaður Niels Erik Rosenfeldt: „Mér finnst t.d. barnalegt að halda að íslenskir flokksmenn hafi ekki eins og aðrir fengið hernaðarþjálfun í skól- unum í Sovétríkjunum þótt erfitt geti verið að finna gögn sem sanna það með ótvíræðum hætti.“ 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Komintern var stofnað 1919 en lagt niður í miðri seinni heims- styrjöld, árið 1943. Stalín er sagður hafa með þessari breyt- ingu viljað milda ímynd og yf- irbragð Sovétríkjanna gagnvart Vesturlöndum með því að slá striki yfir þennan þátt sög- unnar. En aðrir segja að fyrst og fremst hafi verið um nafn- breytingu að ræða, eftir sem áður hafi kommúnistaflokk- unum verið stýrt frá Moskvu. En eftir stríð var flokkunum beitt eftir megni í „friðarbar- áttunni“ sem að sjálfsögðu var ávallt beint gegn vopnabúnaði vestrænna ríkja, ekki komm- únistalanda. Rosenfeldt segir að algengasta aðferðin hafi verið að stofna samtök með fallega hljómandi heitum og fá til liðs við þau fólk sem engin tengsl hafði við komm- únistaflokka. Íslenskir kommúnistar höfðu að sögn Rosenfeldts frá upp- hafi náið samband við félaga sína í Danmörku og Svíþjóð en þessi tvö lönd voru afar þýð- ingarmikil í starfi Komintern. Ástæðan var nálægðin við Pól- land og Eystrasaltsríkin en einkum nálægðin við Þýskaland eftir valdatöku Hitlers 1933. Einn mikilvægasti þátturinn í starfinu var að annast sendi- menn sem fluttu boð, peninga, vegabréf og fleira til komm- únista utan Sovétríkjanna. Kommúnismi fyrir alla HNATTVÆÐINGIN Hátíð Rauði herinn fagnar þriðja fundi Komintern í Moskvu 1921. Réttlæti Jafnrétti Réttlæti Mætum öll í Ráðhús Reykjavíkur í dag kl. 16.00 til 18.00 Baráttumál ÖBÍ – kynningarfundur Ekkert um okkur án okkar Jafnrétti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.