Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra fylgist grannt með
framgangi mála á Norðurlandi og
segir ýmsa vinnu hafa verið unna í
ráðuneytinu sem tengist hamförun-
um, bæði í gegnum raforkumálin og
landbúnaðinn. „Við erum að undirbúa
það að geta tekist á við þetta og gert
það sem stjórnvöldum ber að gera við
þessar aðstæður. Ég geri ráð fyrir því
að það verði farið yfir stöðuna á þessu
máli í ríkisstjórn á föstudaginn,“ segir
Steingrímur. Hann útilokar ekki að
það afurðatjón sem bændur verða
fyrir á svæðinu mælist frekar í tugum
milljóna en milljónum.
Tryggingafélög bæta ekki tjón af
völdum náttúruhamfara en bændur
geta sótt um bætur í Bjargráðasjóð
sem bætir til að mynda tjón af völdum
náttúruhamfara og tjón á búfé. Greitt
hefur verið mikið úr sjóðnum undan-
farið vegna eldgosanna í Eyjafjalla-
jökli 2010 og Grímsvötnum 2011.
Tekjur Bjargráðasjóðs koma af bún-
aðargjaldi og úr ríkissjóði.
Steingrímur segir að farið hafi ver-
ið yfir stöðu sjóðsins og ekki sé víst að
ríkið þurfi að leggja meira fé í hann
vegna þeirra búsifja sem bændur á
Norðausturlandi hafa orðið fyrir.
„Ríkið hefur lagt til fé í þau verkefni
sem sjóðurinn hefur þurft að greiða
út til en hann hefur tekjur sjálfur og á
smá sjóði. Bjargráðasjóður er ekki al-
veg auralaus en það er verið að fara
yfir stöðuna og því erfitt að svara því
til fulls fyrr en það liggur fyrir hvað
tjónið er mikið hvort ríkið þarf að
leggja meira fé til hans,“ segir Stein-
grímur.
Árni Snæbjörnsson, framkvæmda-
stjóri Bjargráðasjóðs, segir að sam-
kvæmt lögum og reglum sjóðsins beri
hann skyldur í svona tilvikum.
Hann býst við því að vegna þess að
lýst var yfir neyðarstigi sé líklegra að
gripið verði til sértækra aðgerða eins
og varðandi eldgosin á Suðurlandi en
eftir sé að vinna úr því hvað verður
gert.
Skoða stöðu
Bjargráðasjóðs
Hamfarirnar ræddar í ríkisstjórn
Steingrímur J.
Sigfússon
Árni
Snæbjörnsson
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
SVIÐSLJÓS
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Bjart var yfir Þeistareykjasvæðinu í
gær; bæði var ljómandi gott veður, sól
og logn, auk þess sem bændur og
björgunarsveitamenn sem leituðu fjár
voru ánægðir því nánast allt fé sem
fannst var á lífi. Enginn veit með vissu
hve margt fé kom í leitirnar í gær, en
einn leitarmanna tjáði Morgunblaðinu
að líklega væru það hátt í þúsund
skepnur. Það er um fjórðungur þess
sem talinn er hafa verið á svæðinu.
Aðaláhersla var lögð á að leita í
landi Þeistareykja í gær. Leitarfólk
hafði ekki farið þangað fyrr eftir
vonskuveðrið á mánudaginn en göng-
ur voru fyrirhugaðar á svæðinu núna
fyrir helgina.
Gífurlegt fannfergi er á svæðinu og
segjast heimamenn, sem Morgun-
blaðið ræddi við, aldrei hafa séð annað
eins á þessum árstíma og varla í jan-
úar þegar snjór er jafnan mestur.
Leitarmenn komust upp að Þeista-
reykjaskála strax í bítið að norðan,
frá Húsavík. Þaðan var aðgerðum
stjórnað og leitarmenn héldu frá skál-
anum á vélsleðum, jeppum og snjóbíl.
Hægt gekk að moka veginn inn á
svæðið að sunnan – af Kísilveginum,
sem liggur upp í Mývatnssveit. Í
fyrsta lagi vegna þess hve snjórinn
var mikill og ekki bætti úr skák að
moksturstækin biluðu og ekki tókst
að opna þá leið fyrr en undir kvöld.
Það tafði reyndar ekki leit, en þegar
leiðin var opnuð komst bíll með hey
handa fé sem smalað hafði verið í
girðingu syðst í Þeistareykjalandinu.
Gott hljóð var í bændum og öðrum
björgunarmönnum í gær enda heimt-
ur góðar og líklega betri en margir
þorðu að vona. Þótt svitinn bogaði af
sumum viðmælendum blaðamanns
brostu menn breitt. Enda mikið fé í
húfi.
Leitir gengu
vonum framar
í fannferginu
Kræsingar Guðmundur Jónsson frá Fagraneskoti, Hrannar sonur hans og Jón Ingi Björnsson, bílstjóri frá Laugum,
færa fé syðst í landi Þeistareykja hey að éta undir kvöld í gær. Ekið var þangað við heldur illan leik.
Bjart yfir Þeistareykjasvæðinu í gær
enda var nánast allt fé sem fannst á lífi
Leitað að fé
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Flateyjardalur
Öxarfjarðarheiði
Reykjaheiði
Þeistareykjasvæði
Nes
Grænavatn
Bjarnastaðir
Björgunarsveitir
leita
Bændur leita
Akureyri
Öxnadalsheiði
Húsavík
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Á réttri leið Sigrún Óladóttir bóndi í Brúnahlíð í Aðaldal rekur fé í átt að hólfi við Þeistareykjaskála síðdegis í gær.
Neyðarástand í kjölfar óveðurs18