Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Fjárréttir fara víða fram í Árnes-
sýslu um helgina. Vegna afleits veð-
urs í byrjun vikunnar hefur
Tungnaréttum í Bláskógabyggð
verið frestað um einn dag, frá laug-
ardeginum 15. september til sunnu-
dagsins 16. september. Aðrar rétt-
ardagsetningar haldast óbreyttar;
Hrunaréttir í Hrunamannahreppi
og Skaftholtsréttir í Gnúpverja-
hreppi fara fram á morgun, föstu-
dag, og Reykjaréttir á Skeiðum á
laugardaginn.
Haft var eftir Lofti Jónssyni,
fjallkóngi Tungnamanna, á sunn-
lenska fréttavefnum dfs.is í gær að
ástæðan fyrir því að réttum í Bisk-
upstungum væri frestað um einn
dag væri illviðri á fjöllum á mánu-
daginn sem hefði tafið fjallmenn.
Þá gengi illa að koma fénu fram,
það væri þungt af klakakleprum og
erfitt í rekstri.
Miklir jaxlar á fjalli
Aðalsteinn Guðmundsson, fjall-
kóngur Flóa- og Skeiðamanna, var
staddur í Fossöldu á afréttinum um
hádegi í gær. Hann sagði veðrið
gott og smölun ganga vel. „Það var
kalt og rok í gær en þetta eru mikl-
ir jaxlar sem ég er með, allt vanir
fjallmenn. Við höldum okkar striki
og það verður réttað á laugardag-
inn,“ sagði Aðalsteinn.
Þeir sem fóru í lengri leit, svo-
kallaða norðurleit, þurftu að bíða
einn dag af sér í leitarmannakof-
anum í Bjarnalækjabotnum á
mánudaginn vegna veðurs. Aðal-
steinn segir smölun í norðurleit
hafa gengið illa og ekki margt fé
sem hafi komið þaðan inn úr. ingv-
eldur@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fé Réttað verður víða um helgina.
Tungnarétt
frestað um
einn dag
Aðrar réttar-
dagsetningar í Ár-
nessýslu óbreyttar
Toyota rafmagns- og dísellyftarar
Dalvegi 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Gerðu verðsam
anburð
Eigum til nýja rafmagns- og dísellyftara á lager,
tilbúna til afhendingar.
Vertu í sambandi við sölumenn okkar og fáðu tilboð í tæki sem hentar
þínu fyrirtæki. Nánari upplýsingar má finna á www.kraftvelar.is.
Þýska tímaritið „DHF Intralogistik“ hefur mælt veltu allra lyftaraframleiðanda heims um árabil, og
samkvæmt þeim mælingum hefur Toyota Industrial verið stærsti lyftaraframleiðandi heims undanfarin 9 ár.
Verðdæmi 2
Toyota rafmagnslyftari - Gámagengur
með 2.500 kg. lyftigetu - 2012 árgerð
Tvöfalt mastur, strikfrí dekk, vökvaúttak
fyrir snúning, fingurstýrð stjórntæki,
viðhaldslausar bremsur í olíubaði og
greiningartölva.
Verð: 4.830.000.- kr. án vsk.*
* Gengi EUR 155.
Verðdæmi 1
Toyota dísellyftari - Gámagengur með
2.500 kg. lyftigetu - 2012 árgerð
Tvöfalt mastur, ökumannshús með
tvöfaldri miðstöð, vökvaúttak fyrir snúning,
innbyggð vog, fingurstýrð stjórntæki og
greiningartölva.
Verð: 4.350.000.- kr. án vsk.*
* Gengi EUR 155.
Árin segja sitt1979-2012
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is