Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 22

Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Að minnsta kosti 310 manns fórust í stórbrunum í tveimur verksmiðjum í Pakistan, að sögn yfirvalda í gær. Eldvörnum var mjög ábótavant í verkmiðjunum og eldsvoðarnir kyntu undir kröfum um hert eld- varnaeftirlit í landinu. Að minnsta kosti 289 manns fórust í fataverksmiðju í Karachi, fjölmennustu borg Pakistans, nokkrum klukkustundum eftir að 21 brann inni í skóverksmiðju í borg- inni Lahore. Óttast var að tala lát- inna myndi hækka. Um 600-700 manns voru í fata- verksmiðjunni sem var án neyðar- útganga. Starfsmennirnir þurftu að losa járnrimla af gluggum og brjóta rúður til að komast út. Að minnsta kosti 65 starfsmenn verksmiðjunnar fótbrotnuðu þegar þeir stukku út um glugga á byggingunni sem var fjög- urra hæða. Flestir þeirra sem fórust voru á jarðhæðinni og í kjallara byggingarinnar. Eldurinn logaði í fimmtán klukkustundir. Í verksmiðjunni var mikið af eldfimum efnum, svo sem fatastöflum sem fuðruðu upp. Ekki var vitað um eldsupptökin en haft var eftir starfsmönnum verksmiðj- unnar að eldurinn hefði líklega kviknað vegna rafalbilunar. Fata- verksmiðjur í Pakistan þurfa að nota rafala vegna þess að rafveitukerfi landsins annar ekki eftirspurn. Hætta á enn skæðari brunum Eigendur verksmiðjunnar, tveir bræður, voru settir í farbann og eiga yfir höfði sér ákærur. Noman Ahmed, prófessor við verkfræði- og tækniháskóla í Kar- achi, segir að fáar verksmiðjur í Pakistan fari eftir lagaákvæðum um eldvarnir og neyðarútganga, enda sé auðvelt að komast hjá því vegna skorts á eftirliti. „Flestar versl- anamiðstöðvar okkar eru líka án nauðsynlegra eldvarna og yfirvöldin þurfa að fara í saumana á þessu, annars geta orðið enn mannskæðari brunar,“ hefur fréttaveitan AFP eft- ir Ahmed. AFP Stórbruni Kona grætur ástvini sína sem fórust í eldsvoða í fataverksmiðju í borginni Karachi í Pakistan. Minnst 310 brunnu inni  Hundruð manna urðu innlyksa í verksmiðju sem var án neyðarútganga  Eldvörnum mjög ábótavant í Pakistan 200 km Mannskæður stórbruni í fataverksmiðju Mannskæðir eldar í verksmiðjum AFGANISTAN ARABÍUHAF ÍSLAMABAD PAKISTAN INDLAND Karachi Lahore Mikið manntjón í eldi í skóverksmiðju Eldarnir kviknuðu í tveimur borgum í Pakistan Stjórnvöld í Þýskalandi og leiðtogar Evrópusambandsins fögnuðu í gær ákvörðun stjórnlagadómstóls Þýska- lands sem hafnaði kröfu um að banna forseta landsins að undirrita sáttmála um varanlegan björgunar- sjóð evrusamstarfsins, ESM, og fjár- málasáttmála ESB-ríkja. Dómstóllinn setti þó skilyrði fyrir staðfestingu sáttmálanna og sagði að fjárskuldbindingar Þýskalands gagnvart sjóðnum einskorðuðust við 27% hlut landsins í stofnfénu, eða 190 milljarða evra. Ef auka ætti fjár- hagslegar byrðar Þýskalands vegna sjóðsins þyrfti þýska þingið að sam- þykkja það. Gengi evrunnar og hlutabréfavísi- tölur í Þýskalandi, á Ítalíu og Spáni hækkuðu þegar skýrt var frá ákvörðun dómstólsins. Þýska stjórn- in sagði að ekkert væri því til fyrir- stöðu að björgunarsjóðurinn yrði að veruleika. Vefútgáfa þýska vikurits- ins Der Spiegel lýsti ákvörðuninni sem „sögulega mikilvægu merki“ um að evrunni yrði bjargað. bogi@mbl.is Ákvörðun þýska stjórn- lagadómstólsins fagnað  Hafnaði kröfu um að banna staðfestingu fjármálasáttmála AFP Stefnuræða Jose Manuel Barroso ávarpar Evrópuþingið. Vill sambandsríki » Jose Manuel Barroso, for- seti framkvæmdastjórnar ESB, sagði í ræðu á Evrópuþinginu í gær að koma þyrfti á „lýð- ræðislegu sambandsríki þjóð- ríkja sem getur tekist á við sameiginleg vandamál okkar, með því að deila fullveldi“. » Barroso sagði að til að hægt yrði að stofna sambandsríki þyrfti nýjan sáttmála. Sendiherra Bandaríkjanna í Líbíu, Chris Stevens, og þrír aðrir Banda- ríkjamenn biðu bana þegar æstur múgur réðst á aðsetur bandaríska ræðismannsins í borginni Benghazi í fyrrakvöld. Barack Obama, forseti Bandaríkj- anna, og leiðtogar fleiri ríkja for- dæmdu árásina. Obama kvaðst hafa fyrirskipað herta öryggisgæslu við bandarísk sendiráð vegna árásarinn- ar. Fréttaveitan AFP hafði eftir embættismanni í bandaríska varnar- málaráðuneytinu að 50 manna sér- sveit landgönguliða sjóhersins hefði verið send til Líbíu til að tryggja ör- yggi Bandaríkjamanna. Stevens var skipaður sendiherra í Trípólí í maí sl. og hafði stutt upp- reisnina gegn einræðisstjórn Muammars Gaddafis. Á meðal upp- reisnarmannanna voru íslamistar sem eru nú áhrifamiklir í Benghazi. Árásarmennirnir hleyptu af byssum og skutu flugskeytum á að- setur ræðismannsins, fóru ránshendi um bygginguna og kveiktu í henni. Reiði vegna kvikmyndar um Múhameð spámann Árásin er rakin til kvikmyndar sem gerð var í Bandaríkjunum og hefur vakið reiði meðal múslíma. Í myndinni er Múhameð spámanni lýst sem siðlausum ofbeldissegg, barnaníðingi sem hafi talað um að drepa börn og lýst asnanum sem „fyrsta múslímska dýrinu“. The Wall Street Journal segir að ísraelskur Bandaríkjamaður, Sam Bacile, hafi gert kvikmyndina, en fjölmiðlar í Egyptalandi segja að egypskir Koptar, sem búa í Banda- ríkjunum, standi á bak við hana. Um- deildur prestur í Flórída, Terry Jon- es, hefur auglýst myndina, en hann hafði áður vakið reiði meðal múslíma með því að brenna eintök af Kóran- inum. bogi@mbl.is Dráp á sendi- herra fordæmt AFP Árás Vopnaður maður við aðsetur ræðismannsins í Benghazi. ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar Þrír Frakkar Café & Restaurant Steiktar gratineraðar Gellur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.