Morgunblaðið - 13.09.2012, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Búrmakettir voru lengi hafðir í há-
vegum hjá hofvörðum og kóngafólki
í Búrma en hafa verið nánast
óþekktir í landinu síðustu áratugi –
þar til nú. Kattavinur í Búrma,
hóteleigandinn Yin Myo Su, ræktar
nú ketti af þessu fallega kyni í húsi
við strönd Inle-vatns í austanverðu
landinu með það fyrir augum að
hefja Búrmaketti aftur til vegs og
virðingar í heimalandinu. Hann
flutti inn sjö Búrmaketti árið 2008
og þeim hefur nú fjölgað í 50 í
grennd við Inle, auk þess sem
sautján kettir hafa verið gefnir
kattavinum á öðrum stöðum í land-
inu.
Yin Myo Su reyndi að vekja at-
hygli fjölmiðla á ræktuninni með því
að gefa lýðræðishetjunni Aung San
Suu Kyi einn kattanna. Hermt er að
hundur hennar hafi orðið svo „af-
brýðisamur“ út í köttinn að Suu Kyi
hafi þurft að skila honum.
Búrmakettir eru skyldir síams-
köttum og fleiri ræktunarafbrigðum
og talið er að þeir hafi verið ræktaðir
í Suðaustur-Asíu í rúm þúsund ár.
Þeir hurfu smám saman á svæðinu
þegar þeir blönduðust öðrum teg-
undum katta á 19. og 20. öld. Aðeins
örfáir hreinræktaðir Búrmakettir
voru fluttir til Bretlands þegar
Búrma var nýlenda.
Margir Búrmakattanna sem nú
eru ræktaðir eru afkomendur einnar
læðu, Wong Mau, sem flutt var til
Bandaríkjanna árið 1930, að sögn
heimssamtaka kattaræktenda.
bogi@mbl.is
AFP
Búrmaköttur Einn kattanna sem ræktaðir eru við Inle-vatn í Búrma.
Komnir heim á ný
Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000
husgogn.is
Heill heimur
af ævintýrum
FÆST Á REDKEN HÁRGREIÐSLUSTOFUM
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.
Dreifing:
HÁR EHF
s. 568 8305
har@har.is
REDKEN Iceland á
REDKEN býður upp á fullkomna línu fyrir hárgerð þína í sjampói, næringu og djúpnæringu.
Interlock Protein Network tækni REDKEN er hönnuð sérstaklega til að byggja hárið upp, gefa því raka og styrkja kjarnann.
Útkoman er heilbrigt og fallegt hár með náttúrulegum glans og mýkt.
SÉRSTAKAR ÞARFIR. EINFALDAR LAUSNIR
HVERS ÞARFNAST ÞITT HÁR?
FYRIR LIÐAÐ HÁR FYRIR HÁRLOSFYRIR ALDRAÐ HÁRFYRIR ÚFIÐ HÁR
FYRIR SKEMMT HÁR FYRIR HÁR Í SÓL OG SJÓ
FYRIR LJÓST HÁR
FYRIR ÓLITAÐ HÁR FYRIR LITAÐ HÁR
FYRIR ÞURRT HÁR
FYRIR ÓRÓLEGT HÁRFYRIR FÍNGERT HÁR