Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 24

Morgunblaðið - 13.09.2012, Page 24
FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samkeppni makríls og lax umátuna í sjónum gæti átt þáttí því að minna hefur gengiðaf laxi í íslenskar ár í sumar heldur en mörg undanfarin ár. Sig- urður Guðjónsson, forstjóri Veiði- málastofnunar, segist alls ekki úti- loka að vaxandi makrílstofn við landið eigi þarna nokkurn þátt. Brýnt sé að rannsaka nánar hvort samhengi sé þarna á milli og kort- leggja göngur þessara tegunda á hverjum tíma. Sigurður segir að bæði lax og makríll séu uppsjávarfiskar, sem éti svipaða fæðu. Eftir að laxinn gangi út í sjó sé hann fyrst í svifdýrum, krabbadýrum og fisklirfum. Fæðu- valið breytist eftir því sem laxinn stækkar og síðasta sprettinn áður en hann gengur í árnar aftur sé hann í fiski. Makríll éti svipaða fæðu og lax- inn framan af, en útbreiðsla hans hefur aukist ár frá ári og í sumar hef- ur hún ekki áður verið meiri vestur af landinu. Þarf að éta mikið „Auðvitað höfum við á Veiði- málastofnun velt því fyrir okkur hvort samhengi sé á milli stækkandi makrílstofns á norðurslóðum á sama tíma og minna hefur gengið af laxi í íslenskar ár heldur en síðustu ár,“ segir Sigurður. „Makrílstofninn er margfalt stærri en laxastofninn og þessi massi af fiski þarf að éta mikið. Við sjáum líka að laxinn, sem þó hef- ur gengið í árnar er rýrari en áður. Við höfum því áhuga á að afla upplýs- inga um hvenær meðan á sjávardvöl- inni stóð laxinn hafði það lakast. Hins vegar hefur makríll verið við landið nokkur undanfarin ár og laxveiði hef- ur verið góð þangað til í sumar.“ Vísbendingar séu um að lax frá ám á Vesturlandi gangi vestur og suðvestur frá landinu, en lax úr ám á Norður- og Norðausturlandi gangi norðaustur af landinu. Almennt hafi laxinn haldið sig norðar en áður eftir að hitastig sjávar við landið hækkaði sem nemur 2-3 gráðum. „Eftirlitsmenn Fiskistofu hafa sent okkur laxa sem fengist hafa sem meðafli í makrílveiðum,“ segir Sig- urður. „Fyrstu laxarnir sem við rannsökuðum frá makrílskipunum voru einkum frá Bretlandseyjum, Frakklandi og Noregi. Nú erum við að greina sýni frá því í fyrra og frá þessu sumri, en höfum reyndar feng- ið minna af makríl í ár heldur en síð- ustu ár. Þeir 2-300 laxar sem við höf- um fengið í ár og í fyrra gefa okkur vísbendingar og gefa okkur grunn til að meta hvað við gerum næst. Það er hins vegar alveg ljóst að lífríkið og samspil tegundanna þarf að rann- saka enn betur.“ Sjávarvistin hefur breyst Sigurður segir að sjávarvist lax- ins hafi breyst á síðustu árum og rannsaka þurfi hvar hann haldi sig á hverjum tíma, sömuleiðis fæðuskil- yrði og straumskil svo dæmi séu nefnd. Margt geti haft áhrif á göngur laxins og nefnir Sigurður að lítið vatn í mörgum ám hafi eflaust tafið laxa- göngur og einnig nefnir hann að seiði gengu sums staðar seint út í sjó vegna kulda í fyrravor. Reiknað hafi verið með að laxagöngur myndu minnka í ár, en alls ekki í þeim mæli sem varð. Þá sé hugsanlegt að flundra, sem víða er komin í ósa laxánna, valdi einhverju afráni og hún fúlsi ekki við laxaseiðum. „Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að seiðabú- skapur er góður í flestum ám og ganga seiða til sjávar í vor var eðlileg,“ segir Sigurður. Vilja rannsaka sam- keppni makríls og lax Samhengi Forstjóri Veiðimálastofnunar útilokar ekki að vaxandi makríl- stofn eigi þátt í því að minna hefur gengið af laxi í íslenskar ár í sumar. 24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Steingrímur J.Sigfússon, for- maður VG, segist margsinnis hafa sagt það á fundum við þá sem sam- þykktu heimildir til að beita Ísland refsiaðgerðum vegna makríldeilunnar að það muni „ekki auðvelda lausn þessarar deilu ef menn fara að taka þetta skref,“ eins og fram kom í sjónvarpsviðtali í gær. Hann bætti því við að ESB þekkti „Íslendinga ekki rétt ef það heldur að við bráðnum nið- ur fyrir þessu.“ En til að ESB héldi ekki að refsiaðgerðir hefðu raunveruleg áhrif og að rík- isstjórninni væri alvara með dig- urbarkalegu tali bætti Stein- grímur því við að samþykktin hefði ekki áhrif á aðlög- unarviðræðurnar. Það skyldi þó ekki vera að ESB þekkti suma Íslendinga rétt eftir að hafa fylgst með samningaviðræðum þeirra vegna Icesave og við erlenda kröfuhafa almennt. Sumir bogna alltaf eða brotna þegar þeir mæta óbil- gjörnum útlendingi} Digurbarkinn Margt ermisgott íblogg- heimum og sumt af- spyrnuvont og reynir mjög á þol- inmæði og umburð- arlyndi þeirra sem verða vitni að því. Lægst á plani eru athugasemda- dálkar DV-vefsins en svipaðir dálkar Eyjunnar, sem höll er undir Samfylkinguna, eru ekki langt undan. Á þeim slóðum og víðar eru iðulega stóryrði og skens um kristna trú, þá sem trúa, guð þeirra og meistara. Allt virðist það vera umborið. En ekki verður betur séð en mun varfærnislegar sé gengið í námunda við aðrar útbreiddar trúarhreyfingar, svo sem eins og trú múslíma. Andúð á gyð- ingum fer augljóslega vaxandi og sjónarmiðum þeirra, sem um þá sitja næst Ísrael, er hampað og ekki nokkurs jafnræðis gætt. Hinir sömu reyna þó oftast að bera af sér að gyðingahatur sé undirrót ofsafenginnar afstöðu sinnar í garð Ísraels. Ekki er óhugsandi og jafnvel líklegt að stóryrtir stígi var- legar til jarðar þegar þau öfl sem eru með stystan kveikiþráð og sýna ofsaleg viðbrögð eiga í hlut. Skopmyndateiknari Jótlands- póstsins, sem lét eins og hann hefði teiknað skopmynd af Mú- hameð spámanni, hefur þurft að vera undir lögregluvernd í heimalandi sínu síðan. Hann hefur sætt morðhótunum og morðtilraunum. Mikil reiði braust út þegar þessar myndir, sem áttu að tákna Múhameð, birtust í fyrrnefndu blaði. Hvað ofsafengnust urðu viðbrögðin í borginni Benghazi í Líbíu. Í sömu borg hófst uppreisnin (vorið) í Líbíu sem að lokum leiddi til þess að Gaddafí lá í valnum og valdaklíka hans hrökklaðist frá. Ekki var eft- irsjá að honum. En ekki er enn vitað með fullri vissu hvort mik- ið betra hafi tekið við. NATO ákvað að veita upp- reisnarmönnunum frá Benghazi afl sitt og atbeina og hefur aldrei fengist full- nægjandi skýring á þeirri ákvörðun, sem Bretar og Frakkar réðu mestu um. En fyrir glettni örlaganna voru danskar herþotur með þeim fyrstu á vettvang til að veita Benghazi- mönnum lið úr lofti. Uppreisnin hefði aldrei heppnast án að- gerða NATO sem gengu miklu mun lengra en Öryggisráð S.þ. hafði heimilað. Í fyrradag var bandaríski sendiherrann í Líbíu veginn á ræðisskrifstofu sendiráðsins í Benghazi. Vígamenn voru sagð- ir notfæra sér ólgu og óeirðir sem sprottið höfðu upp vegna frétta um að í Bandaríkjunum hefði verið gerð kvikmynd eða myndband, sem nálgast mætti á netinu, þar sem vikið var að spá- manninum með ósæmilegum hætti. Sendiherrann var veginn 11. september, einmitt þegar Bandaríkjamenn minntust voða- verkanna ellefu árum fyrr. Áður hafði verið ráðist inn í sendiráð Bandaríkjamanna í Kaíró í Egyptalandi og það sagt vera gert af sömu ástæðum. Forseti Líbíu fordæmdi ódæðið í Benghazi, sem hann sagði gert í beinu samhengi við hryðju- verkin sem menn minntust þennan dag. Forsetinn sakaði fylgismenn Gaddafís og liðs- menn al-Qaeda um að hafa stað- ið fyrir því. En eins og kunnugt er hélt Gaddafí því ákaft fram á lokasprettinum að einmitt al- Qaeda stæði á bak við aðförina að sér. BBC hefur eftir Hillary Clin- ton utanríkisráðherra að margir Bandaríkjamenn spyrji sjálfa sig hvernig slíkt gæti gerst í landi sem Bandaríkin hefðu ný- lega hjálpað til að frelsa. Það gæti dregist nokkuð lengi að fá sannfærandi svör við þeirri eðlilegu spurningu. En hitt er vitað að vorverkin skila ekki alltaf því sem ætlast var til. Óeirðir í Egyptalandi og morð á sendi- herra Bandaríkjanna í Líbíu vekja spurningar} Óskiljanlegt ódæði? A lþingi Íslendinga, sem þjóðin tek- ur lítið sem ekkert mark á, er komið saman á ný. Landsmenn eru reyndar orðnir svo áhugalitlir um störf þingsins að þeir nenntu ekki einu sinni að mæta niður á Austurvöll til að mótmæla tilvist þingmanna, eins og var nánast þjóðaríþrótt á tímabili. Við þingsetningu las ábúðarmikill forseti lýðveldisins yfir þingheimi og minnti sumpart á skólastjóra í gagnfræðaskóla sem hótar auknum inngripum og refsingum taki vand- ræðanemendurnir sig ekki á. Þeir þingmenn sem helst tóku orð forsetans til sín sátu svo brúnaþungir og ólundarlegir á bekkjum sínum. Ekkert bendir til að virðing þjóðarinnar fyr- ir þingmönnum fari vaxandi og þótt forseti lýð- veldisins sé afar umdeildur og geti ekki státað af stórkostlegum vinsældum þá nýtur hann þó umtals- vert meiri virðingar en stjórnmálamenn landsins. Þetta nýtir forsetinn sér út í ystu æsar, enda er hann enginn kjáni og kann ýmislegt fyrir sér í klækjapólitík. Hann veit að hann getur bara grætt á því að skamma þingmenn fyrir óknytti og ábyrgðarlausa framkomu. Forsetinn skammar þingið á sama tíma og þjóðin hef- ur sáralitla trú á stjórnmálaflokkum, ekki bara þeim hefðbundnu heldur einnig nýjum stjórnmálaflokkum. Þegar ríkjandi er jafn megn óánægja með stjórn- málamenn og nú er hefði mátt búast við því að ný fram- boð fengju ríkan meðbyr. Svo er hins vegar ekki. Ástæð- an er einföld. Nýju framboðin eru áberandi máttlaus, áherslumál þeirra eru afar óljós og þeir sem leiða þessar hreyfingar hafa ekki til að bera vott af kjörþokka. Guðmundur Stein- grímsson hefur reyndar áberandi kjaftavit sem gæti skilað sér í auknu fylgi þegar komið er út í kappræður í sjónvarpssal. Vandi Guð- mundar er hins vegar að fæstir skilja af hverju hann er ekki bara í Samfylkingunni þegar hann talar nákvæmlega eins og sam- fylkingarmaður. Nýju framboðin skortir leiðtogaefni, ein- staklinga sem hafa skarpa og skýra sýn og geta miðlað henni til kjósenda. Vandi gömlu flokkanna er að þeir bjóða ekki heldur upp á sterka og trúverðuga leiðtoga. Forseti Íslands er með næmt pólitískt þef- skyn og hefur stokkið inn í pólitískt tómarúm og tekið sér stöðu sem sterki maðurinn. Hvað sem mönn- um finnst um Ólaf Ragnar Grímsson þá verður því ekki neitað að hann blómstrar í því hlutverki og kann að stela senunni. Ítrekað sýnir hann þingi og stjórnmálamönnum yfirgang og ósvífni en í hvert sinn veit hann mætavel að hann mun komast upp með það. Tími sterkra leiðtoga er ekki liðinn, eins og sumir vilja vera láta. Vandi stjórnmálaflokkanna er að sterkur leið- togi er ekki innan þeirra raða. Það er þó einn slíkur á Bessastöðum. Hann veit vel af sér og er meir en til í slag- inn við stjórnmálamennina. Hann veit að hann getur ekki annað en unnið. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Stjórnmálin til Bessastaða STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Sigurður segir að upplýsingar um laxinn komi úr ýmsum átt- um og miklar rannsóknir hafi verið gerðar á sjávardvöl lax á síðustu árum. Meðal annars hafi stofnunin tekið þátt í stóru evrópsku rannsóknarverkefni og einnig hafi verið sleppt gönguseiðum merktum með rafeindamerkjum. Laxar sem hafa skilað sér sem meðafli á makrílveiðum gefa ákveðnar upplýsingar. Samstarf er við Fiskistofu og Hafrannsókna- stofnun í þeim efn- um. Veiðimálastofn- un er nú að undir- búa ráðstefnu sem haldin verður síðar í haust. Þar verður fjallað um laxveiði sumarsins og ástæður þess að verr veiddist en síðustu ár. Upplýsingar úr ýmsum áttum RÁÐSTEFNA UM VEIÐINA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.