Morgunblaðið - 13.09.2012, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.09.2012, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Fyrir nokkrum mánuðum kom maður þar að í mannfagnaði sem Guðni Ágústsson fór mikinn um það sem hann kallaði „að- förina að Gunnari“ – og sagði með þjósti að hún yrði aldrei fyr- irgefin. Þetta var um það leyti sem deil- urnar í Krossinum stóðu sem hæst, en aðkomandi skildi ekki af hverju Guðna var svona heitt í hamsi út af málinu. Vissi ekki til að hann ætti þar neinn hlut að máli. Enda kom á daginn að Guðni var alls ekki að tala um „aðförina“ að Gunnari Þorsteinssyni heldur at- gönguna að Gunnari á Hlíðarenda rúmlega þúsund árum áður. Gissur hvíti er sem sagt ennþá „persona non grata“ hjá Guðna. Svona birtist manni heit og síkvik söguvitund Guðna, þar sem hjarta- blóð hans rennur jafn strítt af sökn- uði og samúð með hetjum, sem voru höggnar fyrir þúsund árum, og sjón- varpsþáttum sem runnu sitt skeið fyrir fimmtán árum. Engum manni er Guðni líkur og hollur vinum sínum, hugsaði ég þakklátur þegar ég sá að þessi góð- vinur minn sagði í leiðaraopnu Moggans á laugardaginn að Rík- isútvarpið væri klaufalegt. Þetta eru hlýlegustu og fallegustu orðin sem notuð hafa verið um RÚV á þeim vettvangi um langt skeið. Allt á sinn tíma – sína stund og sinn stað. Þetta á líka við um sjón- varpsþætti. Form þeirra og fram- setning, efni og innihald, stenst mis- vel tímans tönn. Jafnvel þættir sem hafa notið fádæma vinsælda um ára- tuga skeið komast á leiðarenda. „Hvenær á að hætta með svoleiðis þætti?“ spurði ég einu sinni þaul- reyndan breskan sjónvarpsgúrú. „Ári áður en þeir byrja að tapa vin- sældum,“ svaraði hann sposkur. „En þá veistu aldrei með fullri vissu hvenær rétti tíminn er kominn,“ andmælti ég. „Nei, en það er betra að hætta aðeins of snemma en of seint,“ sagði gúrúinn. „Þetta skiptir minna máli með venjulega eða hversdagslega þætti, en ekki gera ástsælustu þáttunum það að þreyt- ast, lifa sjálfa sig og fjara út. Leyfðu þeim að hætta áður en þeir fella blómin. Það er miklu betra að fólk sakni þeirra – en segi „mikið var!“ þegar þeir hætta. Þannig öðlast þeir líka sinn verðuga sess í sjónvarps- sögunni.“ Þetta var ágæt áminning um að allir verða að þekkja sinn vitjunartíma. Ég get hins vegar full- vissað Guðna um að Jó- hanna Sigurðardóttir hafði ekkert með það að gera að Spaugstofan hætti. Ekki heldur Evr- ópusambandið. Raunar var aðeins einn stjórn- málaforingi á minni vakt sem kveinkaði sér stöðugt undan Spaug- stofunni og taldi hana leggja sig í einelti. Um þá kveinstafi alla fóru fram margir skrýtnir fund- ir og samtöl sem ekki verða rifjuð upp hér. Þessi stjórnmálaforingi stóð Guðna mun nær en Jóhanna. Ekki kann ég nú við að fara að ræða hér mikið við Guðna um vista- skipti nafngreindra einstaklinga. Finnst það frekar ósmekklegt. Þó er það svo að menn geta af ýmsum ástæðum komist á leiðarenda á ein- hverjum vinnustað og hasla sér þá völl á nýjum. Þannig blómstraði Gissur Sigurðsson sem aldrei fyrr eftir að ég réð hann til Stöðvar 2/ Bylgjunnar á sínum tíma – og gerir enn. Og sannarlega vona ég að sú verði líka raunin með Magnús Hlyn enda var ég ábyggilega í hópi þeirra fyrstu sem sendu honum velfarn- aðaróskir um daginn – með hans nýja far og nýja föruneyti. En þetta með að þekkja sinn vitj- unartíma er áhugavert umræðuefni – ekki síst af því að ég á hér orða- stað við fyrrverandi stjórnmála- manninn Guðna Ágústsson. Einmitt stjórnmálamenn þekkja sjaldnast sinn vitjunartíma. Um marga þeirra mætti segja að þeir hefðu átt að hætta einu kjörtímabili fyrr en þeir gerðu. Það gildir reyndar líka um ýmsa þá sem þó sátu bara eitt kjör- tímabil. Guðni sker sig þó úr að þessu leyti – eins og ýmsu öðru – enda engum manni líkur. Hann þekkti að vísu heldur ekki sinn vitjunartíma, en það var þó með öðrum formerkj- um en flestir hinir: Guðni hætti nefnilega of snemma. Og betur en þetta get ég ekki launað Guðna þau hlutfallslega hlýju orð sem hann lét falla um RÚV í Mogganum um dag- inn. Svar við bréfi Guðna Eftir Pál Magnússon Páll Magnússon » Allt á sinn tíma – sína stund og sinn stað. Þetta á líka við um sjónvarpsþætti. Höfundur er útvarpsstjóri og vinur Guðna Ágústssonar. Fróðlegt er að horfa almennt til núverandi stöðu fiskeldismála hér á landi hvað varðar vatnafiska og sjáv- arfiska og önnur dýr í sjó sem eru í eldi og ræktun. Samkvæmt skrá Fiskistofu eru 66 fiskeldisfyrirtæki með rekstrarleyfi. Hins veg- ar er afar upplýsandi skrá sem dýralæknir fisksjúkdóma birtir á heimasíðu sinni. Þar er skrá um fyrirtæki með rekstur. Hvert þeirra sinnir eldi á laxi, bleikju, regn- bogasilungi eða fleiri en einni tegund þessara fiska. Þá eru fyrirtæki með þorsk, krækling, lúðu, sæeyra, sæ- bjúgu, sandhverfu og tilapia/ beitufisk/ Hekluborra. Rannsóknir Þrír aðilar hafa sérstöðu, starfa að rannsóknum m.a. á laxakynbótum. En þeir eru Stofnfiskur sem er reyndar í senn rannsóknar-, fram- leiðslu- og sölufyrirtæki með aðstöðu á einum fimm stöðum, m.a. í Kolla- firði og á Kalmanstjörn á Suðurnesjum, Há- skólinn á Hólum með aðstöðu á Hólum og Sauðárkróki, stundar mikilvægar bleikju- rannsóknir. Hafrann- sóknastofnun er með stöð í Grindavík og sinnir sjávarfiski. Fiskeldi vatnafiska Núna eru 30 fyr- irtæki með vatnafisk víðsvegar um land sem stunda fiskeldi, sum með klak, en önnur með klak og áframhaldandi eldi í kerum, tjörnum og kvíum á landi eða í sjó. Sum fyrirtæki eru með starfsstöðvar víðar en á einum stað og nýta aðstöðu eins og hún ger- ist best. Margar stöðvarnar eiga að baki langan feril eða starfa við eldri aðstöðu þar sem áður var rekstur, þegar laxeldisbylgjan reis hátt á seinustu tveimur áratugum síðustu aldar. Sú bylgja hneig og sum fyr- irtækin lentu í hremmingum, m.a. vegna verðfalls á eldislaxi og að sala á gönguseiðum til Noregs lokaðist. Víst er það hagstætt að fjárfesting fyrri ára kemur nú að góðum notum. Nefna má stöðvar sem eru í góðum rekstri og í tengslum við laxveiðiár og vötn. Elliðaárstöðin, Laxalón með regnbogaeldi en fiskinum sleppt lif- andi í Reynisvatn til stangaveiði, Laxeyrarstöðin í Borgarfirði sem sinnir seiðaþörfum fyrir Ytri-Rangá, Norðurlax á Laxamýri sem sinnir gönguseiðaþörfum á sínu svæði og víðar. Á Suðurlandi eru framleidd gönguseiði fyrir Eystri-Rangá að Laugum í Rangárvallasýslu og er hún á vegum Veiðifélags Eystri- Rangár, Klak og eldi á Spóastöðum, stöð á Tungufelli og klakhús VÁ und- ir Ingólfsfjalli. Víðtækt matfiskaeldi með bleikju Það sem vekur sérstaka athygli er hversu bleikjueldi er orðið útbreitt. Nefna má Hólalaxstöðina sem hefur langa reynslu í bleikjueldi. Það er 21 aðili með slíkt eldi en það eru annars vegar bændur með eldistjarnir á landi sínu og hins vegar eldisfyr- irtæki með eldi í kerum og kvíum og önnur með kvíar í sjó. Vaxandi kvíaeldi í sjó Laxeldi í kvíum í sjó er vaxandi og ljóst að nú stefnir í aukna samkeppni um rými fyrir slíka starfsemi í fjörð- um landsins, eins og fram hefur kom- ið í fréttum fjölmiðla undanfrið. Á sínum tíma setti Landbúnaðarráðu- neyti, á grundvelli laga, reglur er lok- uðu vissum flóum og fjörðum við landið fyrir kvíaeldisrekstri í sjó. Þetta tengist svæðum þar sem helstu laxveiðiár landsins falla til sjávar og gert til að vernda villta laxinn. Landssamband veiðifélaga hefur lýst andstöðu við kvíaeldi í Ísafjarð- ardjúpi þar sem fyrrnefnt bann gildir ekki, og jafnframt mótmælt því að norskur lax verði settur í kvíaeldi hérlendis. Landssambandið bendir á að fyrri reynsla af laxeldi í kvíum í sjó hafi sýnt fram á að ekki sé hægt að byggja atvinnugrein á slíkum rekstri. Fiskeldi og ræktun sjávardýra fjölbreytt Eftir Einar Hannesson » Skrá Fiskistofu yfir 66 fiskeldisfyrir- tæki. Það sem vekur sérstaka athygli er hversu bleikjueldi er orðið útbreitt. 21 aðili í bleikjueldi. Einar Hannesson Höfundur starfaði að veiðimálum í áratugi. Það var merki- legt að hlusta á fjár- málaráðherrann, Oddnýju G. Harð- ardóttur, í Morg- unútvarpi Rásar 2 í gær ræða um fjár- lagafrumvarp árs- ins 2013 sem mælt verður fyrir í dag. Frumvarpið gerir ráð fyrir 2,8 millj- arða kr. halla sem fjármálaráðherrann var greinilega frekar kátur með. En ráðherrann var einnig spurð- ur út í stærstu óvissuþættina í frumvarpinu og hvort það hefði ekki gefið réttari mynd af stöðu ríkissjóðs ef gert væri t.d. ráð fyrir þeim fjármunum sem ljóst er að ríkissjóður þarf að greiða inn í Íbúðalánasjóð til þess að mæta kröfum um 5% eiginfjárhlutfall? Nei, það þótti ráðherranum ekki. Öllum tölum í frumvarp- inu hefði nefnilega verið lokað í júní og þá hefði ekki legið fyrir síðasta matið á stöðu sjóðsins. Við giskum ekki á tölur í frumvarpinu, sagði ráð- herrann. Aðspurð sagði hún að verið væri að vinna að mati á hversu hár reikningur ríkissjóðs gæti orðið, en að það stefndi í um 14 milljarða. Forstjóri Íbúðalánasjóðs var á svipuðum slóðum á fundi velferðarnefndar Alþingis í gærmorgun og áætlaði að framlagið gæti orðið á bilinu 10- 14 milljarðar króna. Þá vaknar sú spurning hvort það hefði verið þörf á mikilli getspeki í júní þegar tölunum var lokað – er þetta ekki einfaldlega staðreynd sem legið hefur fyrir í marga mán- uði? Er ráðherrann nokkuð vísvit- andi að fegra niðurstöðutölu fjár- lagafrumvarpsins? Fréttablaðið spurði fjár- málaráðuneytið að þessu 16. apríl sl. og í svari við fyrirspurn blaðsins áætlaði fjármálaráðuneytið að sjóðurinn þyrfti á u.þ.b. 10 millj- örðum að halda til að rétta eig- infjárhlutfallið af. Nú í september er talað um 10-14 milljarða. Af hverju var ekki hægt að loka töl- unum, eins og ráðherra orðaði það, í júní? Ætli einstaklingur sem sækist eftir láni hjá Íbúðalánasjóði kæm- ist upp með það við greiðslumat að sleppa að nefna stóran kostn- aðarlið sem fyrirséð væri að félli á hann, bara vegna þess að end- anlega upphæðin lægi ekki fyrir? Nei, ég held ekki. Og fjár- málaráðherra á ekki heldur að komast upp með slíkar brellur. Þetta er aðeins eitt dæmi, en það sýnir að fjárlagafrumvarpið er sjónarspil, blekkingarleikur á kosningavetri. Eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur » „Þetta er aðeins eitt dæmi, en það sýnir að fjárlagafrum- varpið er sjónarspil, blekkingarleikur á kosningavetri.“ Ragnheiður Elín Árnadóttir Höfundur er alþingismaður Fegrunaraðgerð fjármálaráðherra SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 LAGER SALA Síðustu dagar Lýkur 15. september

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.