Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 27

Morgunblaðið - 13.09.2012, Side 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012 Mikið má maður vel við una þau gæði sem skaparinn veitti okkur með að búsetja okkur á eyju gnægta orkuauð- linda nyrst í ballarhafi með gnótt fiskjar en þó furðu mannvera á þurra partinum, sem aldrei hafa getað stýrt varanlega sinni velferð eða kunnað að þakka með auðmýkt fyrir skaparans góðu gjafir, Jóhannes úr Kötlum orti um vegferð slíka. Verklaus – félaus örðugt er að hjara. Ölmusurnar lítt þó betur fara. Ströng og Guðhrædd leiðsögn lýðsins kjara lögmál hinnar réttu trúar kann. Fyrsta boðorð; þegar þarf að spara, þá skal ráðist fyrst á öreigann. Sunnudaginn 28. september, 2008 var grein Mbl. þar sem Ellert B. Schram fjallar um lífeyri eldri borg- ara: „Það fór ekki mikið fyrir frétta- tilkynningu félagsmálaráðherra í síð- ustu viku. Þar segir að ráðherrann hafi undirritað reglugerð sem tryggir lífeyrisþegum lágmarksframfærslu, samtals 150 þúsund krónur á mánuði. Sumum kann að þykja eitt hundrað og fimmtíu þúsund krónur ekki mikill peningur en hér er verið að hola sama steininn, mjaka sér áfram og gera betur við þá eldri borgara sem engar aðrar tekjur hafa. Þessi viðbót sem nú kemur, 13 þúsund krónur á mán- uði, er spor í rétt átt og full ástæða til að fagna henni.“ „Áður hafa verið gerðar marg- víslegar ráðstafanir sem hægt og bítandi eru til lagfæringar á kjörum eldri borgara. Ég nefni afnám tekju- tengingar maka, afnám tekjutengingar þeirra sem eru 70 ára og eldri, hækkuð skattleys- ismörk, hækkun til þeirra sem hafa ekki annað en strípaðar al- mannatryggingabætur, þrefalda aukningu á fjármagni til heima- hjúkrunar og uppbyggingu dval- arheimila aldraðra, hækkun frí- tekjumarks og ekki má gleyma þeirri ákvörðun að innlausn séreignasparn- aðar dregur ekki úr ellilífeyrisbótum né heldur fjarmagnstekjur.“ „Þetta er mikill og umtalsverður árangur í málefnum aldraðra. Það ber að þakka sem vel er gert. Jó- hönnu sérstaklega en einnig rík- isstjórninni allri. Það er í rauninni ótrúlegt hversu illa hefur verið staðið að málefnum eldri borgara á síðari árum og hve mikið verk hefur verið unnið á þeim vettvangi í tíð núverandi ríkisstjórnar.“ Tilvitnun lýkur. Tæpu ári síðar er sem næstum öll- um þessum umbótum sé hrint af stalli. Því þótti okkur í Samtökum aldraðra nauðsynlegt að gera okkar til að koma umræðum um þessi mál á hærra plan. Niðurstaða okkar varð sú að reyna fyrst að ræða við stjórn Lands- sambands eldri borgara, svo stjórn SA sendi eftirfarandi ályktun til LEB 16.09. 2009: „Virðuleg stjórn LEB! Samtök aldraðra leyfa sér að senda eftirfarandi tillögu til íhugunar og umsagnar stjórnar LEB. Með virðingu Erling Garðar Jón- asson, formaður stjórnar SA. Hinn 14.09. 2009. var samþykkt eftirfarandi tillaga á stjórnarfundi Samtaka aldraðra. Stjórn Samtaka aldraðra sam- þykkir að leita samstarfs við Lands- samband eldri borgara um sameig- inlegt átak til að efla samræðu styrk samtakanna við stjórnvöld rík- istjórnar og sveitarstjórna vegna ítrekaðra skerðinga lögbundinna réttinda á liðnum árum og þá sér- staklega á síðustu mánuðum. Samtök aldraðra vilja beina þeim óskum til forsætisráðherra og ann- arra ráðherra í núverandi ríkisstjórn, að hafa í frammi breiða og opna sam- ræðu með fjöldahreyfingum eldri borgara ef nauðsynlegar eru aðgerðir sem eru á gráum svæðum laga og hefðar. Greinargerð; Stofna þarf sameiginlegt teymi samtaka eldri borgara til velferð- arvaktar fyrir aldraðra. Velferðavakt aldraðra yrði teymi 6-8 valinkunnra fræðimanna á lífeyr- isaldri á sviði lögfræði, fjármála og fé- lagsfræða. Vegna síns trúverðugleika yrði verkefni Velferðarvaktar að skapa öflugan efnislegan og siðrænan grundvöll til samskipta samtaka eldri borgara við stjórnvöld, og standa vörð um öll afkomumál sem varða eldri borgara í sátt við samfélagið og heildarhagsmuni þess. Ljóst er öldruðum sem öðrum Ís- lendingum að þeir manngerðu erf- iðleikar sem blasa við þjóðinni þarfn- ast viðbragða stjórnvalda bæði í rekstri og efnahag. En af reynslunni liðin ár er ljóst að fast er orðið í hefðum stjórnvalda að ráðast fyrst í sparnað á trygg- ingabótum til öryrkja og aldraðra og eða íþyngjandi breytingum á skatta- málum þeirra, þegar tilhliðranir hafa verið gerðar í fjárlögum og áætlunum vegna óvæntra útgjalda. Þetta hefur gerst þótt vel hafi árað í efnahags- málum. Sparnaðarráðstafanir í ónýtu al- menna tryggingakerfinu eru auðveld- ar fyrir stjórnvöld því það er starfrækt sem samskon- ar ölmusukerfi og ómagakerfið á mót- unartíma hreppakerfisins skömmu eftir landnám. Verulegar skerðingar hafa verið gerðar tvisvar á þessu ári. Það er því er nauðsynlegt fyrir aldraða að hafa uppi öfluga vakt um sína lögbundnu og hefðbundnu hags- muni sem reynslan hefur sýnt að stjórnvöld hafi alltof greiða leið til að breyta og brjóta án fyrirvara eða með sýndarviðræðum á elleftu stund. Erna Fríða Berg og Erling Garðar Jónasson.“ Ekki virðist hafa unnist tími til íhugunar hjá LEB, svar hefur ekki borist nú þrem árum síðar. Því sendum við þér og þínum ráð- herrum tillöguna til íhugunar og svara. Eftir Erling Garðar Jónasson »Ekki virðist hafa unnist tími til íhug- unar hjá LEB, svar hefur ekki borist nú þrem árum síðar. Því sendum við þér tillöguna til íhugunar og svara. Erling Garðar Jónasson Höfundur er formaður Samtaka aldraðra. Opið bréf til forsætisráðherra Cavendish hjá Bridsfélagi Reykjavíkur 32 pör mættu til leiks í þriggja kvölda Hótel Hamar Cavendish Tvímenning BR. Með þessu keppnisfyrirkomulagi er hægt að skora risastórt og tapa einnig stórt. Eftir fyrsta kvöld er staðan þessi. Jón Baldursson - Þorlákur Jónsson 787 Gunnlaugur Karlss. - Kjartan Ingvarss. 587 Ísak Örn Sigurðss. - Stefán Jónss. 580 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 11. september var spilað á 15 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S: Bjarni Þórarinss. – Jón Lárusson 376 Bjarnar Ingimars – Bragi Björnss. 359 Tómas Sigurjss.– Jóhannes Guðmannss.358 Kristrún Stefánsd. – Sverrir Gunnarss. 351 A/V Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðsson 379 Ólafur Ólafsson – Anton Jónsson 370 Gústav Nilsson - Sveinn Snorrason 357 Kristján Þorlákss. – Haukur Guðmss. 341 Góð þátttaka í Gullsmáranum Þátttakan er góð í Gullsmára þessa dag- ana. Mánudaginn 10. september var spilað á 14 borðum. Úrslit í N/S: Heiður Gestsd. - Sigurður Björnss. 337 Leifur Jóhanness. - Guðm. Magnúss. 316 Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 295 Katarínus Jónsson - Jón Bjarnar 284 A/V Gunnar Alexanderss. - Elís Helgas. 338 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 330 Guðrún Gestsd. - Aðalheiður Torfad. 294 Þorsteinn Laufdal - Páll Ólason 291 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is … Heilsurækt fyrir konur Æfingin hjá okkur tekur aðeins 30 mínútur Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is Ég heiti Ásta Björt Thoroddsen, tannlæknir. Ég verð 70 ára 17. maí næstkomandi. Ég greindist með parkinsonveiki 2003 og var þá orðin stíf þrátt fyrir ýmiskonar leikfimi. Ég kynntist Curves 2 mánuðum eftir að að það hóf starfsemi árið 2005 og hef æft hér síðan 6x í viku. Þessar æfingar koma vöðvunum í gang og virka þannig að lyfin virka betur. Svona gat ég unnið áfram með því að byrja í Curves kl. 07:00 á morgnana. Curves heldur mér gangandi, mín blessun. Takk fyrir. Ásta Björt Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði. Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca. 3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari núna. Curves er frábær staður með frábæru starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að æfa þegar það passar mér best. Paula Holm Ásta Björt Thoroddsen Paula Holm, 40 ára Hringdu og fáðu frían prufutíma Ég er hárgreiðslumeistari og stunda nám í H.Í., er að taka kennslu- réttindi fyrir iðnmeistara. Ég byrjaði að æfa í Curves haustið 2007 og hef æft þar 3-4x í viku. Ástæðan fyrir að ég vel að æfa hjá Curves er sú að þar líður mér mjög vel. Þetta er fyrsti staðurinn þar sem ég get æft vegna gigtar en ég er með slitgigt í hnjám og baki og einnig vefjagigt. Með þessu æfingaprógrammi hef ég getað haldið mér góðri og liðið miklu betur í líkamanum. Vil ég þakka það góðri æfingaaðstöðu hjá Curves að ógleymdu frábæru starfsfólki sem hefur hvatt mig áfram og stutt frá upphafi. Á þessum sama tíma hef ég verið að taka mig á og létta mig og hafa æfingarnar hjá Curves hentað mér vel. Rósa G. Svavarsdóttir Rósa G. Svavarsdóttir, nýorðin fimmtug Fyrir Eftir Nýtt! bjóðum nú einnig upp á tri mform

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.