Morgunblaðið - 13.09.2012, Síða 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það vefst fyrir þér að ganga frá máli
sem þér hefur verið falið að leiða til lykta. En í
dag ertu þeim mun áhugaverðari, því minna
sem þú gerir.
20. apríl - 20. maí
Naut Þið eruð lukkunnar pamfílar því óvænt
happ rekur á fjörur ykkar. Mundu að þú getur
ekki vænst þess að aðrir sýni þér örlæti
nema þú gerir það sama.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að setja saman sanngjarna
áætlun sem hentar ykkur öllum. Hlustaðu
ekki á umtal um fólk sem þú þekkir engin
deili á.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Byrjaðu vikuna á því að sinna smá-
vægilegum þáttum sem hjálpa þér til þess að
bæta skipulagið í kringum þig. Eitthvað
áhugavert og óvenjulegt vekur áhuga þinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er góður dagur fyrir samninga-
viðræður og mikilvægar samræður við maka
og viðskiptavini. Hlustaðu á gagnrýni á störf
þín án þess að stökkva upp á nef þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Notið daginn til þess að ræða við
maka, nána vini og aðra sem á vegi ykkar
verða. Treystið á orðsnilld ykkar og verið um-
fram allt sönn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú skaltu bretta upp ermarnar og taka
til hendinni heima hjá þér. Leggðu ekki út í
neitt, sem þú hefur ekki efni á.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft hugsanlega að mæta
örlögum þínum í dag, eftir einrænt háttalag
þitt að undanförnu. Einnig væri ráð að skila
því sem þú hefur fengið að láni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það reynir á hvern mann þú hefur
að geyma þegar þú verður vitni að samtali
sem ekki er ætlað eyrum þínum. Reyndu ekki
að skilja alla hluti, aðalatriðið er að standa
styrkum fótum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú sérð hlutina ekki nógu skýrt og
ættir því að forðast viðræður um viðskipti og
fjármál í dag. Þig langar til að koma skipulagi
á hlutina bæði í vinnunni og á heimilinu og
hefja að því loknu nýjan kafla.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ákaflega dýrmætt að geta
haldið sér í takti við umhverfi sitt og unnið úr
þeim jákvæðu straumum sem leika um líf
okkar. Vertu því stöðugt á tánum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Dagurinn hentar vel til þess að versla,
en hann er líka vel fallinn til þess að vera á
höttunum eftir auknum tekjumöguleikum.
Pétur Stefánsson segir slæmt aðfara auralítill á ball og kvenna-
far: „Ég hlýt að kynnast kröfulítilli
konu.“
Þannig er það, því er ver,
þvalur af vinnusvita,
á ég lítið undir mér,
eins og flestir vita.
Friðrik Steingrímsson var skjót-
ur til svars, eins og jafnan þegar
Pétur kveður sér hljóðs:
Karlinn eitthvað kann að fá
sem kæti vekur honum,
nái hann að nátta hjá
nægjusömum konum.
Fyrir allnokkrum árum gróf DV
upp gamla nektarmynd af Kolbrúnu
Halldórsdóttur, sem sagt var að
hefði verið tekin í timburhúsi vestur
í bæ. Jón Kristjánsson orti af því til-
efni:
Í tvílyftu timburhúsi,
titrandi vinstri græn,
norpaði Kolbrún nakin,
nett og umhverfisvæn.
Jóhannes Sigfússon svaraði að
bragði:
Í tvílyftu timburhúsi
titraði Kolbrún öll.
Þar hefði Jón viljað vera
og vinna náttúruspjöll.
Jónas Gunnar sendi Vísnahorninu
kveðju, en hann var auðvitað að lesa
Vísnahornið en líka viðtal í Frétta-
blaðinu „við okkar ágæta: Þetta er
Kristinn R. Ólafsson, í Madrid –
hann er fluttur heim Íslandsfari og
stendur á tímamótum, vonandi hval-
reki menningarstigi þjóðarinnar
áfram eins og verið hefur:
Íslandsfari fjölþreifinn.
Fróði hartnær þungi.
Íhaldshrútur ástfanginn.
Eyjapeyinn ungi.“
Ingólfur Ómar Ármannsson var
að koma að norðan:
Stormur ýfir svalan sjá
sumarið er liðið,
grösin hníga, héla grá
hylur jarðarsviðið.
Greinar héla, gulna strá,
gránar fjallahringur.
Í litlum hvammi læna smá
lágum rómi syngur.
Að síðustu „Haust“ Þorsteins
Valdimarssonar:
Enn falla í þagnar ljúfa löð
ljóðin glöð
og út í mónum dvína;
reynirinn fellir sín rauðu blöð
og ríkisstjórnin krónu sína.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af tvílyftu timburhúsi og
okkar manni í Madrid
eftir Jim Unger
„HVAÐ SEGIRÐU, DÓMARI? LSAMÞYKKIR
ÞÚ BEIÐNI OKKAR UM REYNSULAUSN?“
HermannÍ klípu
„AUÐVITAÐ ÞYKIR MÉR VÆNT UM ÞIG.
ÞÚ ERT DÝRASTA KONAN Í LÍFI MÍNU.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
...að faðmast svo þétt
að þið heyrið hjartslátt
hvort annars.
LÍSA KEMUR
EKKI Í KVÖLD.
SVO ÞAÐ ER
STRÁKAKVÖLD!
O-Ó!
VIÐ GETUM HLAUPIÐ
UM BAKGARÐINN Í
NÆRFÖTUM!
LÍSA!!!
HVAÐ ÆTLARÐU
AÐ GEFA PABBA Í
AFMÆLISGJÖF?
EITTHVAÐ SEM
HANN GETUR
NOTAÐ ...
... EINS OG
AUKAMAGA!
Mikið er látið með bandarískapopplistamanninn Andy Warhol
þessa dagana. Í Metropolitan-safninu
í New York var í gær opnuð sýning,
sem ber heitið Um Warhol, 60 lista-
menn, 50 ár og er ætlað að rekja áhrif
hans í hálfa öld. Á sýningunni eru
tæplega 50 verk eftir Warhol, sem
lést árið 1987 aðeins 58 ára að aldri,
ásamt 100 verkum eftir 60 listamenn
frá ýmsum löndum. Þá ætlar súpu-
framleiðandinn Campbell’s að heiðra
listamanninn með súpudósum í anda
verksins, sem gerði hann frægan fyr-
ir 50 árum.
x x x
Segja má að verkið 32 Campbell’ssúpudósir hafi sett popplistina á
blað fyrir alvöru. Þegar súpufram-
leiðandinn ákveður síðan að framleiða
súpudósir í litum Warhols hlýtur
hringnum að vera lokað. Popplistin
tók vörumerki og andlit samfélags
fjöldaframleiðslu og neyslu og sló upp
í söfnum og galleríum. Nú tekur
fjöldaframleiðandinn listina og setur
á framleiðslu sína. Warhol sagði ein-
hvern tímann að hann hefði málað
dósirnar vegna þess að hann hefði
fengið sér „sömu súpuna á hverjum
degi í 20 ár“.
x x x
Warhol var ekki aðeins þekkturfyrir list sína, heldur einnig til-
svör. Þekktasta setning hans er
sennilega að „allir muni verða frægir
í fimmtán mínútur“. Síðar sagði hann:
„Ég er orðinn leiður á þessari setn-
ingu. Nýja setningin mín er „Allir
verða frægir eftir fimmtán mínútur.“
x x x
Warhol gat verið beittur í ummæl-um sínum og sömuleiðis háðsk-
ur. „Það sem er frábært við þetta
land er að Bandaríkin áttu upptökin
að þeirri hefð að ríkustu neytend-
urnir kaupa í meginatriðum sömu
hluti og þeir fátækustu,“ sagði hann
einhverju sinni. Öðru sinni var hann
spurður um efnivið sinn og upp-
sprettu hugmynda: „Ég bað tíu til
fimmtán manns um að koma með til-
lögur. Loks spurði vinkona mín réttu
spurningarinnar: „Hvað þykir þér
vænst um?“ Í framhaldi af því byrjaði
ég að mála peninga.“ víkverji@mbl.is
Víkverji
Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið. Enginn kemur
til föðurins nema fyrir mig. (Jóh. 14:6)
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 & Strandgata 25 • Akureyri • sími 456 1185 • www.tonastodin.is
Tónastöðin
býður upp á mikið úrval
hljóðfæra og nótnabóka
fyrir allar tegundir tónlistar
og leggur áherslu á góða
og persónulega þjónustu.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.