Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 13.09.2012, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 257. DAGUR ÁRSINS 2012  Sjónlistaverðlaunin hafa verið end- urvakin og verða þau afhent í menn- ingarhúsinu Hofi á Akureyri í kvöld kl. 20. Verðlaunin voru síðast veitt árið 2008. Þrír myndlistarmenn eru til- nefndir til verðlaunanna, þau Ragnar Kjartansson, Ásmundur Ásmundsson og Katrín Sigurðardóttir. Sjónlistaverðlaunin afhent í Hofi í kvöld  Dægurlaga- söngvarinn Benni Ægizz hefur sent frá sér sína fyrstu sólóplötu, ORG. Benni starfaði með ýmsum hljómsveitum á 8. og 9. áratugnum, m.a. Kamarorg- hestunum og Orghestunum. Lög og textar á ORG eru eftir Benóný Æg- isson og sér hann um allan hljóð- færaleik á plötunni. ORG er fyrsta sóló- plata Benna Ægizz  Nýjasta kvikmynd Baltasars Kor- máks, Djúpið, hefur vakið nokkra at- hygli á kvikmyndahátíðinni í Toronto en hún var frumsýnd þar sl. föstudag. Dagblaðið New York Tim- es hefur m.a. fjallað um myndina í grein þar sem sjónum er beint að þeim fjölda sjálfsævi- sögulegra kvik- mynda sem prýða hátíð- ina. New York Times fjallar um Djúpið Handboltakonan Rakel Dögg Bragadóttir hefur sett stefnuna á að spila með íslenska landsliðinu þegar það leikur í úr- slitakeppni Evrópumótsins í Serbíu í desember. Rakel, sem er gengin til liðs við Stjörnuna, varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné á síðustu leiktíð en hún er á góðum batavegi og er byrjuð að æfa með Garða- bæjarliðinu. »1 Rakel Dögg vonast til að spila á EM Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara KR, vill sjá Guðjón Baldvinsson, leikmann sænska liðs- ins Halmstad, fá tækifæri með ís- lenska landsliðinu í knattspyrnu. »3 Rúnar vill sjá Guðjón í landsliðinu Úrtökumótin fyrir stærstu at- vinnumannamótaraðirnar í golfi eru á næsta leiti og óvenjumargir íslenskir kylfingar eru skráðir til leiks. Alls er útlit fyrir að sjö Ís- lendingar muni reyna að komast inn á Evrópumótaraðir karla og kvenna og PGA-mótaröðina. Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari segir þetta vera frábæra þróun. »2 Sjö kylfingar reyna við mótaraðirnar erlendis Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Átakið „Á allra vörum“ miðar að þessu sinni að stofnun alhliða stuðn- ingsmiðstöðvar fyrir um 50 börn með alvarlega og ólæknandi sjúk- dóma og fjölskyldur þeirra. Hver fjölskylda fengi liðstjóra á stuðn- ingsmiðstöðinni sem væri sérfræð- ingur í málefnum hennar og reiðubúinn til að veita ýmiskonar að- stoð. „Það myndi muna ofboðslega miklu að hafa einn stað sem við gæt- um leitað aðstoðar. Viðkomandi for- eldrar gætu hringt og útskýrt hvað væri í gangi og sá sem væri á línunni þekkti málavexti,“ segir Fríða Björk Arnardóttir. Dóttir hennar, María Dís Gunnarsdóttir, 4 ára fæddist með flókinn hjartagalla auk þess að vera með slímseigjusjúkdóm sem er lugna-, meltingar- og bris- sjúkdómur. Vilja lifa eðlilegu lífi heima „Líkaminn framleiðir ekki melt- ingarensím sem gerir það að verkum að hún þarf að taka inn ensím með öllum mat. Annars myndi líkaminn ekki vinna næringu úr fæðunni. Þar að auki þarf María Dís að taka fjölda lyfja yfir daginn. Þrátt fyrir að vera með hjartagalla og gangráð í tengslum við hann er það aðallega slímseigjusjúkdómurinn sem herjar á hana núna, “ segir Fríða og bætir við að óljóst sé um batahorfur Maríu Dísar. Þegar flókin hjartagalli og al- varlegur lugnasjúkdómur herji á einstakling sé ekki vitað hvað fram- tíðin beri í skauti sér. Þrátt fyrir veikindi Mar- íu Dísar er hún á leik- skóla og þroskast eðli- lega. Ekki er að sjá á henni að hún sé eins veik og raun ber vitni. Það krefst mikillar vinnu að halda ástandi Maríu eins góðu og hægt er, en það hefur tekist ágætlega með hjálp lækna og mikillar vinnu fjölskyld- unnar. „Við leggjum mikinn metnað í að lifa sem eðlilegustu lífi og vera sem mest heima. Við sjáum um lyfja- gjöf heima og einnig erum við með innöndunarvél sem María notast við á hverjum degi. Hvort sem það er í sambandið við Tryggingastofnun, sjúkratryggingar, sálfræðinga eða hverskonar stuðning myndi það muna öllu að hafa sérstakan aðila sem hægt væri að leita til.“ Fríða er gífurlega þakklát þeim sem standa að átakinu og er þess fullviss að stuðningsmiðstöð geti gert gæfumuninn fyrir fjölskyldur með langveik börn með sjaldgæfa og ólæknandi sjúkdóma. Myndi gera gæfumuninn  „Á allra vörum“ styður við alvar- lega veik börn Morgunblaðið/Styrmir Kári Barátta Þær Fríða Björk og dóttir hennar María Dís reyna ásamt fjölskyldu sinni að lifa sem eðlilegustu lífi þrátt fyrir veikindi Maríu. Það krefst mikillar vinnu og segir Fríða að tilkoma stuðningsmiðstöðvar yrði mikið gæfuspor. „Við höfum aldrei sett okkur nein markmið í tölum. Hugmyndafræðin geng- ur út á að vekja athygli fjölmiðla og almennings á viðkomandi málefni hverju sinni. En þau markmið sem við höfum sett okkur í huganum hafa alltaf náðst og rúmlega það,“ segir Elísabet Sveinsdóttir, ein af forsvars- konum átaksins Á allra vörum. Glossin sem Á allra vörum selja eru löngu orðin landsfræg en nú fer í fyrsta skipti fram sala á snuðum merktum átakinu. Í fyrra- málið hefst svokallað útvarpsmaraþon á Rás 2 þar sem fólk getur keypt óskalög. Um kvöldið verður sjónvarpssöfnun á RÚV þar sem fólk getur hringt inn og stutt gott málefni. Einnig er hægt að hringja í styrktarnúmer í síma 903 1000 (1.000 kr.), 903 3000 (3.000 kr.) eða 903 5000 (5.000 kr.). Vilja vekja athygli á málefninu MARGÞÆTT SÖFNUN ÁTAKSINS Á ALLRA VÖRUM VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Níu ára fékk 99.000 króna reikning 2. Guðlaugur Þór umvafinn kvenfólki 3. Notaði „hestasterana“ til að grennast 4. Tugmilljóna krafa Byko og Norvik »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á föstudag Hæg vestlæg átt og stöku skúrir, en suðaustan 8-13 m/s og dálítil rigning SV-lands síðdegis. Suðvestlægari og víða væta um kvöldið, síst þó NA-lands. Hiti 5 til 10 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan og norðan 10-18 og víða rigning, hvassast á annesjum vestantil, en hægari sunnanátt sunnantil framan af degi. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. Hiti 7 til 12 stig. VEÐURÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.