Morgunblaðið - 29.09.2012, Side 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Ferðaskrifstofa í Peking hefur birt
myndir af 105 hæða píramídalag-
aðri hótelbyggingu sem kölluð hef-
ur verið „Draugahótelið í Pjong-
jang“. Bygging hótelsins hófst fyrir
25 árum, eða 1987, en framkvæmd-
irnar stöðvuðust í sextán ár vegna
fjárskorts og byggingin varð að
tákni um efnahagslegu óstjórnina í
landinu. Framkvæmdirnar hófust
að nýju árið 2008 og ferðaskrif-
stofan sem birti myndirnar segir að
stefnt sé að því að hótelið verði opn-
að eftir tvö til þrjú ár.
Drauga-
hótelið rís
í Pjongjang
AFP
Mál gegn stúlku, sem lögreglumenn
nauðguðu og handtóku síðan fyrir
ósiðsemi, hefur vakið mikla reiði í
Túnis. Boðað hefur verið til mót-
mæla gegn ríkisstjórn landsins í dag
vegna málsins. Íslamistar eru við
völd í Túnis.
Unnusti stúlkunnar segir að þrír
lögregluþjónar hafi stöðvað bifreið
þeirra í úthverfi höfuðborgarinnar,
Túnis, kvöldið 3. september. Einn
þeirra hafi handjárnað hann og kraf-
ist þess að fá 300 dínara, sem svarar
27 þúsund krónum. Unnustinn, Ah-
med, sem er 26 ára, kveðst hafa sagt
lögreglumanninum að hann væri
ekki með svo mikið fé á sér og þá
mun lögregluþjónninn hafa tekið allt
það fé sem Ahmed hafði á sér. Á
meðan tóku hinir lögreglumennirnir
unnustu hans, Miriam, og fóru með
hana í aftursæti bifreiðarinnar þar
sem þeir nauðguðu henni. Ahmed og
Miriam hafa nú verið ákærð fyrir
ósiðsemi á grundvelli íslamskra
sjaría-laga.
Var nauðgað og er nú
ákærð fyrir ósiðsemi
Mikil reiði í Túnis vegna máls stúlku
Nítján manns biðu bana í flugvél
sem hrapaði skömmu eftir flugtak af
Katmandú-flugvelli í Nepal í gær.
Allir um borð í vélinni, sjö Nepalar,
sjö Bretar og fimm Kínverjar, fórust
í slysinu.
Vélin var tveggja hreyfla, af gerð-
inni Dornier Fairchild 228 og var á
leið til bæjar nálægt Everest-fjalli.
Skömmu eftir flugtak tóku flug-
umferðarstjórar eftir því að eitthvað
hafði komið upp á og þegar þeir
spurðu flugstjórann hvað væri um
að vera sagði hann að hrægammur
hefði flogið á vélina, að sögn tals-
manns flugmálayfirvalda í Nepal.
Fréttaveitan AFP hafði þó eftir
sérfræðingi í flugöryggismálum að
ólíklegt væri að fugl hefði valdið
slysinu og taldi að flugmaðurinn
hefði reynt að nauðlenda vélinni
vegna bilunar. Ef annar hreyflanna
hefði skemmst í árekstri við fugl
hefði verið hægt að fljúga henni með
hinum hreyflinum.
Nítján
fórust í
flugslysi
Fuðraði upp Eldur kviknaði í vél-
inni þegar hún hrapaði á árbakka.
Líklegt talið að or-
sökin sé vélarbilun
Tilkynnt var í
gær að Peer
Steinbrück yrði
kanslaraefni
þýskra jafn-
aðarmanna í
kosningum sem
fram fara í sept-
ember eða októ-
ber á næsta ári.
Steinbrück er
fyrrverandi fjár-
málaráðherra Þýskalands og starf-
aði með Angelu Merkel á fyrsta
kjörtímabili hennar sem kanslari.
Ekki er búist við að hann ógni
stöðu Merkel, en samkvæmt skoð-
anakönnunum er hún með umtals-
vert fylgi og ekkert bendir nú til
annars en hún haldi kanslaraemb-
ættinu eftir kosningarnar. Kannanir
benda til þess að þýskir jafn-
aðarmenn séu með níu prósentustig-
um minna fylgi en Kristilegir demó-
kratar, flokkur Merkel.
Steinbrück
valinn
kanslaraefni
Peer
Steinbrück
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir
taka fagnandi á móti þér.
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum bleikan bíl!