Morgunblaðið - 29.09.2012, Blaðsíða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2012
Fagnað Skrúðganga var farin í mildu og fallegu haustveðri á milli starfsstöðva nýs Háaleitisskóla þegar sameiningarhátíð var haldin í gær. Nýr skólafáni var dreginn að húni, sungið og leikið.
Ómar
Á glæsilegri 75 ára af-
mælisráðstefnu Icelandair
Group sagði forseti Íslands
að við ættum að gera þjóð-
aráætlun um að taka vel á
móti tveimur milljónum
gesta fyrir lok yfirstand-
andi áratugar. Það er
sannarlega stórbrotin tala,
en þó ekki mikið ósenni-
legri en þegar því var spáð
fyrir tíu árum að erlendir
ferðamenn yrðu orðnir ein
milljón árið 2015. Á þessu
ári verða þeir líklega um 660 þúsund.
Leiðakerfi Icelandair er líkast til ein
besta viðskiptahugmynd sem framkvæmd
hefur verið hér á landi. Keflavík-
urflugvöllur hefur reynst miklu betur en
flesta óraði fyrir sem miðstöð og skipti-
stöð fyrir flug til, frá og um Ísland. Flug-
leiðum milli Evrópu og Ameríku fjölgar
ár frá ári og tíðni í ferðum eykst og það
hefur sýnt sig að mikil fylgni er milli
fjölgunar ferðamanna og aukins fram-
boðs á ferðum til, frá og um landið af
hálfu Icelandair og annarra flugfélaga.
Nú stendur til að opna flugleiðir til
Anchorage í Alaska og Sankti Péturs-
borgar í Rússlandi og eru það sannarlega
tíðindi sem skapa nýja möguleika.
Mikilvægar ákvarðanir
Icelandair Group er öflugt ferðaþjón-
ustufyrirtæki sem mörgum finnst ærið
fyrirferðarmikið í íslensku umhverfi.
Þýðing þess er gríðarleg hvernig sem á
málið er litið og mikilvægt að því sé stýrt
af fyrirhyggju og víðsýni. Þess vegna er
afar ánægjulegt að stjórn þess skuli á af-
mælisrárinu hafa tekið afgerandi forystu
í málum sem skipta þróun ferðaþjónust-
unnar sem atvinnugreinar miklu. Þar á
ég við ákvörðun um að efna til samvinnu
við háskólana í landinu og Rann-
sóknamiðstöð ferðamála um rannsóknir í
þágu greinarinnar, ákvörðun um að öll
fyrirtæki innan Icelandair Group skuli
vera umhverfisvottuð árið 2016 og
ákvörðun um að setja á stofn fjárfesting-
arsjóð til þess að koma á fót nýjum
áfangastöðum á Íslandi þar sem hægt er
að bjóða miklum fjölda ferðafólks að upp-
lifa einstaka hluti.
Hér er um að ræða herhvöt til ferða-
þjónustunnar að taka sjálf
ábyrgð á umhverfinu og nátt-
úrunni sem hún gerir út á.
Auðvitað þarf slíkt að gerast í
samvinnu við stjórnvöld en
best er að ferðaþjónustan
sjálf sé með frumkvæðið.
Notendagjöld
framtíðin
Forstjóri Icelandair Group
sagði það eindregna skoðun
sína að notendagjöld væru
framtíðarleiðin á Íslandi: Þeir
borgi sem njóta. Það er skýr
afstaða og náist um hana
breið samstaða í greininni hljóta stjórn-
völd að íhuga alvarlega að breyta um
kúrs og móta nýja sýn á notendagjöld í
ferðaþjónustu. Svo sannarlega þurfa
margir ferðamannastaðir á landinu á því
að halda að innviðir þeirra séu treystir
og náttúra þeirra vernduð fyrir ókomna
kynslóðir.
Íslensk ferðaþjónusta er í harðri sam-
keppni á alþjóðlegum mörkuðum og það
er ekkert gefið að ferðamenn kjósi Ísland
sem áfangastað. Á tímum internets og al-
þjóðlegs samanburðar verður ferðafólk
sífellt kröfuharðara á verð og gæði. Sam-
fellt og vel heppnað markaðs- og sölu-
starf og ánægja ferðamanna sem hingað
koma með móttökur og atlæti eru skýr-
ingarnar á velgengni síðustu ára. Og svo
auðvitað skiptagengið á blessaðri krón-
unni, sem hefur verið erlendum ferða-
mönnum hagstætt.
Stefnumótun í ferðaþjónustu
verður að taka föstum tökum, veru-
legra fjárfestinga verður þörf í uppbygg-
ingu nýrra áfangastaða og í varðveislu
þeirra náttúrustaða sem hafa dregið til
sín flesta ferðamenn. Það er ánægjulegt
að verða vitni að því að þessi mikilvægi
atvinnuvegur er nú að taka málin í sínar
hendur af miklum þrótti.
Eftir Kristján L.
Möller
» Á tímum internets og al-
þjóðlegs samanburðar
verður ferðafólk sífellt
kröfuharðara á verð og
gæði.
Kristján
Möller
Höfundur er alþingismaður í NA-kjördæmi
og fyrrverandi samgönguráðherra.
Mikil tíðindi á
flugafmælisári
Nú í vikunni var
birt á vefsvæði Al-
þingis kynning-
arefni vegna ráð-
gefandi
þjóðaratkvæða-
greiðslu um til-
lögur stjórnlag-
aráðs og fleira.
Lagastofnun Há-
skóla Íslands var
fengin til að ganga
frá efninu og virð-
ist hafa tekist vel til í mörgum
atriðum. Að minnsta kosti er
full ástæða til að hvetja þá sem
hyggjast taka þátt í atkvæða-
greiðslunni til að kynna sér
þetta efni, enda gefur það rétt-
ari mynd af viðfangsefnum at-
kvæðagreiðslunnar heldur en
sá slagorðaflaumur, sem birst
hefur á opinberum vettvangi
að undanförnu frá nokkrum
fyrrverandi fulltrúum í stjórn-
lagaráði.
Þrátt fyrir að kynning-
arefnið sé að mestu gott er
ástæða til að gera athugasemd-
ir við tvennt í framsetningu
þess. Fyrra atriðið er að á vef-
svæðinu er ákvæðum núver-
andi stjórnarskrár og ákvæð-
unum í tillögum stjórnlagaráðs
stillt upp eins og tveimur val-
kostum, þannig að ætla má að
aðeins sé um tvo kosti að ræða
í sambandi við framtíð stjórn-
arskrárinnar. Hið síðara er að
þegar fjallað er um spurning-
arnar fimm um einstök efnis-
atriði er í skýringartexta sér-
staklega vísað til tillagna
stjórnlagaráðs um viðkomandi
atriði, þrátt fyrir að spurning-
arnar séu að orðalagi og inn-
taki miklu víðtækari og al-
mennari heldur en sá texti,
sem frá stjórnlagaráði kom.
Fyrra atriðið ætti að vera
auðskilið. Í atkvæðagreiðsl-
unni, sem tímasett
hefur verið 20.
október, verður
ekki kosið á milli
núverandi stjórn-
arskrár annars
vegar og tillagna
stjórnlagaráðs
hins vegar. Að
gefa slíkt í skyn
er beinlínis rangt.
Það er auðvitað
alls ekki svo að
með því að segja
nei við tillögum
stjórnlagaráðs
væru kjósendur að hafna öllum
stjórnarskrárbreytingum í
bráð og lengd. Möguleikarnir
eru miklu fleiri. Þannig blasir
við að hægt er að gera end-
urbætur á tilteknum ákvæðum
eða köflum núgildandi stjórn-
arskrár án þess að endurskrifa
hvert einasta ákvæði hennar
frá a til ö og bæta 35 nýjum
við. Raunar er slíkt endurbóta-
starf í áföngum miklu líklegra
til að skila bæði víðtækri sam-
stöðu og raunverulegum
stjórnarskrárbótum heldur en
sú pakkaafgreiðsla, sem til-
lögugerð stjórnlagaráðs felur í
sér. Með því móti er líka hægt
að sneiða hjá þeirri víðtæku og
alvarlegu stjórnskipunar- og
réttarfarsóvissu, sem óhjá-
kvæmilega myndi fylgja sam-
þykkt tillagna stjórnlagaráðs í
heild.
Síðara atriðið ætti líka að
vera ljóst. Efnisspurningarnar
fimm á kjörseðlinum, þ.e. um
náttúruauðlindir, þjóðkirkju,
jafnt vægi atkvæða, aukið per-
sónukjör og þjóðaratkvæða-
greiðslur, fela í sér mælingu á
afstöðu fólks með miklu opnari
hætti en tiltekin ákvæði sem
varða sömu eða svipuð efni í
tillögum stjórnlagaráðs. Það er
augljóst, bæði af orðalagi
spurninganna og tilurð þeirra,
að ekki er ætlunin að spyrja
um afstöðu til þeirrar útfærslu
viðkomandi ákvæða, sem finna
má í stjórnlagaráðstextanum.
Það er því ekki heiðarlegt eða
sannleikanum samkvæmt, þeg-
ar einstakir fulltrúar úr stjórn-
lagaráði halda því fram, að segi
t.d. meirihluti kjósenda já við
spurningunni um jafnt vægi at-
kvæða eða aukið vægi persónu-
kjörs sé verið að samþykkja
útfærsluna í tilsvarandi til-
lögum stjórnlagaráðs. Sama á
raunar við um allar hinar
spurningarnar. Þetta getur
auðvitað verið ruglingslegt, en
sá ruglingur er alfarið á
ábyrgð þess meiri hluta alþing-
is, sem samþykkti spurning-
arnar á sínum tíma. Á þetta
var ítrekað bent við umræður á
Alþingi, en lítið hlustað af
hálfu þingmanna ríkisstjórn-
arflokkanna og Hreyfing-
arinnar.
Ég hef hér nefnt tvo villandi
þætti í framsetningu kynning-
arefnis vegna þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Ég geri þessi at-
riði hér fyrst og fremst að
umtalsefni, þar sem margt af
því sem sagt hefur verið í fjöl-
miðlaumræðu síðustu vikna
hefur verið til þess fallið að
villa um fyrir fólki með sama
hætti. Vonandi verður hið ann-
ars ágæta kynningarefni ekki
til þess að ýta undir frekari
misskilning í þeim efnum.
Eftir Birgi
Ármannsson » Það er alls ekki
svo að með því að
segja nei við tillögum
stjórnlagaráðs væru
kjósendur að hafna
öllum stjórnarskrár-
breytingum í bráð og
lengd.
Birgir
Ármannsson
Höfundur er þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
Tvær ranghugmyndir
varðandi atkvæða-
greiðsluna 20. október