Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.11.2012, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA Áfengisneysla hefur dregist verulega saman meðal barna og ungmenna á síð- ustu árum. Íslenskar rannsóknir sýna að umskipti hafa orðið í umhverfi unglinga þar sem þeir verja meiri tíma í skipulagt tómstundastarf, verja meiri tíma með for- eldrum sínum og einnig að foreldrar eru virkari þátttakendur í lífi barna sinna en áður. Mikið og árangursríkt forvarnastarf hefur verið unnið í íslenskum grunnskól- um. Ísland mælist nú með lægstu tíðni áfengisneyslu og reykinga meðal ungl- inga í Evrópu. Ljóst er þó að margir hefja áfengisneyslu sumarið eftir 10. bekk og á fyrstu mánuðum í framhaldsskóla sam- kvæmt íslenskum rannsóknum. Meiri hluti barna og ungmenna á Íslandi stundar einhverja skipulagða hreyfingu. Til að ná árangri í þjálfun er mikilvægt að huga að góðu mataræði, hvíld og góðum nætursvefni, auk reglusemi. Áfengi hefur mikil áhrif á líkamann, en í áfengi er alkóhól sem er vímuefni og hefur áhrif á líkamlegar og andlegar breytingar hjá þeim sem neytir þess. Áfengi hefur slævandi áhrif á miðtaugakerfið og veldur því að starfsemi tauga og heila raskast. Áfengi raskar efnaskiptum líkamans, hormónajafnvægi og eykur tap vítamína og steinefna úr líkamanum. Þá, sem neyta áfengis daginn fyrir æfingu eða mót, vant- ar því hluta af þeim vítamínum og stein- efnum sem eru nauðsynleg til uppbygg- ingar vefja líkamans og þeir hafa því minna úthald og getu. Heilinn er einnig mjög viðkvæmur fyrir alkóhóli og það truflar starfsemi hans og þroska. Dómgreind minnkar með áfengis- neyslu, síðar skerðist virkni sjón- og tal- stöðva, og að lokum skerðist hreyfifærni eftir því sem meira magn alkóhóls er í líkamanum. Áfengi hefur líka áhrif á lifur og hjarta- og æðakerfið. Alkóhól leiðir til þykknunar á blóði og af því leiðir að blóðið streymir verr til grennstu háræða, sem veldur því að vefir líkamans fá minna súr- efni. Þessi súrefnisskortur bitnar verst á heilanum, en einnig þurfa vefir líkamans á öllu sínu súrefni að halda þegar verið er að byggja upp þol og þrek með íþróttaiðkun. Því er ljóst að áfengisneysla og íþrótta- iðkun eiga enga samleið. Þeir sem vilja ná hámarksárangri í íþrótt sinni ættu að láta áfengi, tóbak og önnur vímuefni eiga sig. Það skemmir verulega fyrir árangri ein- staklings í íþróttum að neyta einhverra þessara fyrrnefndu efna. Íþróttafélögin halda mörg hver uppi öfl- ugu forvarnastarfi og stuðla að því að íþróttaiðkendur neyti ekki áfengis, tóbaks ÁFENGI OG ÍÞRÓTTIR Jóhanna S. Kristjánsdóttir eða annarra vímuefna. Mikilvægt er að íþróttafélögin setji sér forvarnastefnu sem stuðli að heilbrigðum lífsháttum iðkenda sinna sem og annarra sem starfa fyrir hreyf- inguna. Fyrirmyndin er mjög sterk og því ber íþróttahreyfingunni að stuðla að góð- um fyrirmyndum á öllum vettvangi starfs síns. Forvarnanefnd UMFÍ vill hvetja aðildar- félög sín til að fylgja landslögum í hví- vetna þegar kemur að áfengi, tóbaki og öðrum vímuefnum, ásamt því að virða auglýsingabann á slíkum vörum. Jafn- framt að taka einarða afstöðu gegn neyslu áfengis, tóbaks og annarra vímuefna í tengslum við íþróttastarfsemi og aðra viðburði þar sem börn og ungmenni taka þátt. Stöndum saman að öflugu forvarna- starfi, öllum til heilla. F.h. forvarnanefndar UMFÍ Jóhanna S. Kristjánsdóttir

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.