Skinfaxi - 01.11.2012, Side 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Kynning á hugsan-
legu samstarfi HHF
við sveitarfélögin
Starfsmenn Ungmennafélags Íslands
áttu fund þann 15. nóvember á Patreks-
firði með fulltrúum frá Héraðssamband-
inu Hrafna-Flóka og sveitarstjórnarfólki
úr sveitarstjórnum Vesturbyggðar og
Tálknafjarðar. Kynning á hugsanlegu
samstarfi milli héraðssambandsins og
sveitarfélaganna var til umræðu auk
ýmissa annarra mála. Umræður voru
gagnlegar og málefnalegar.
Af hálfu UMFÍ sátu fundinn Sæmund-
ur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi
UMFÍ, Ómar Bragi Stefánsson, landsfull-
trúi UMFÍ, og Jón Kristján Sigurðsson,
kynningarfulltrúi UMFÍ.
Héraðssambandið Hrafna-Flóki, HHF,
var í fyrstu stofnað í febrúar 1971 og
stóðu að stofnuninni Íþróttafélagið Hörð-
ur á Patreksfirði, stofnað 1908, Ung-
mennafélag Barðstrendinga og Ung-
mennafélagið Drengur í Tálknafirði. Ekki
tókst að koma lífi að ráði í þetta samband,
aðallega vegna þess að ekkert félag innan
þess var virkt, nema Íþróttafélagið Hörður.
Árið 1980 var héraðssambandið endur-
reist formlega og hefur starfað af krafti
eftir það. Sambandssvæði HHF er Vestur-
Barðastrandarsýsla. Aðildarfélögin eru
Íþróttafélagið Hörður, Ungmennafélag
Tálknafjarðar, Íþróttafélag Bíldudals,
Ungmennafélag Barðastrandar, Golf-
klúbbur Patreksfjarðar, Golfklúbbur
Bíldudals, Körfuknattleiksfélagið
Patrekur og Skotfélag Vestfjarða.
Lilja Sigurðardóttir, formaður Héraðssambandsins Hrafna-Flóka:
Ég hlakka til að ræða enn frekara
samstarf við sveitarfélögin
Lilja Sigurðardóttir, formaður Héraðs-
sambandsins Hrafna-Flóka, segir það
mjög spennandi hugmynd að sam-
bandið og sveitarfélögin, sem það nær
yfir, fari í aukið samstarf. „Ég vona svo inni-
lega að þetta verði að veruleika. Það er
alveg nauðsynlegt að fá þessa aðila til
að gera eitthvað meira og hleypa um
leið öflugra lífi í sambandið. Það er margt
sem má bæta og gera betur,“ sagði Lilja
Sigurðardóttir í spjalli við Skinfaxa.
– Hvernig gengur starfið í íþrótta- og
æskulýðsmálum hér á svæðinu?
„Það gengur ágætlega hér í Vestur-
byggð og á Tálknafirði. Tímar í íþróttahús-
inu eru fullbókaðir allan daginn og langt
fram á kvöld og svo er íþróttafólk á okkar
vegum oft í keppnisferðum til þátttöku í
ýmsum mótum utan svæðisins. Á dögun-
um tóku hátt í 30 krakkar frá okkur þátt í
Silfurleikunum sem haldnir voru í Reykja-
vík. Það var frábær ferð og þau stóðu sig
með prýði. Starfið er samt erfiðara yfir há-
veturinn en það eru nokkur lítið félög hér
í kring, á Bíldudal og Barðaströnd, og fáir
krakkar sem iðka íþróttir. Það er því nauð-
synlegt að sameina starfið betur, fá
krakka til að koma til okkar til að æfa og
að við förum til þeirra þegar hægt er að
koma því við,“ sagði Lilja.
– Má ekki segja að aðstaðan sé til
fyrirmyndar í ekki stærra bæjarfélagi?
„Aðstaðan er frábær og hún hefur tek-
ið stakkaskiptum hin síðustu ár. Við er-
um með gott íþróttahús og góða frjáls-
íþróttaaðstöðu en hana mætti samt
bæta. Við erum með gerviefni á lang-
stökksbraut og erum að reyna að koma
gerviefni á hástökksbraut. Markmiðið og
draumurinn er að leggja efni á hlaupa-
braut. Á Bíldudal er ágæt frjálsíþrótta-
aðstaða en það væri frábært ef hægt
væri að leggja gerviefni á hlaupabrautir.“
– Nú hefur farið fram kynning á auknu
samstarfi héraðssambandsins og sveitar-
félaganna. Aðilar ætla að hittast og ræða
enn frekar saman. Ertu ekki bjartsýn á
framhaldið?
„Jú, ég er það og mér sýndist allir taka
mjög vel í hugmyndirnar. Ég hlakka til
að setjast niður með fulltrúum sveitar-
félaganna og ræða þetta samstarf enn
frekar. Við þurfum að finna heppilega
útfærslu á samstarfinu svo að allir geti
nýtt sér viðkomandi starfsmann ef af
verður,“ sagði Lilja Sigurðardóttir, for-
maður Héraðssambandsins Hrafna-
Flóka, í samtalinu við Skinfaxa.
Á kynningarfund-
inum með sveitar-
félögum í Vestur-
byggð. Lilja Sigurðar-
dóttir, formaður
Hrafna-Flóka, er
lengst til hægri á
myndinni.
Frá kynningarfund-
inum með sveitar-
félögunum í Vestur-
byggð.