Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.11.2012, Qupperneq 25

Skinfaxi - 01.11.2012, Qupperneq 25
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25 Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, sótti fundinn á Patreks- firði sem haldinn var með Héraðssam- bandinu Hrafna-Flóka, UMFÍ og sveitar- félögunum á svæðinu. Ásthildur sagði í samtali við Skinfaxa að sér hefði litist vel á þær hugmyndir sem fram hefðu komið með aðilum á kynningarfundinum og gott samstarf gæti orðið. Eflaust væri hægt að vinna með ýmsar hugmyndir sem fram hefðu komið á fundinum og ættu eftir koma fram þegar aðilar ræddu betur saman. „Í litlum samfélögum eins og hér skipt- ir miklu máli að félagslífið sé gott og það sé gert mikið úr þeim hlutum sem eru fyrir. Ég held að UMFÍ gæti verið í liði með okkur að byggja upp öflugt líf en á þessu svæði er að mínu mati ónumið land í málefnum ungs fólks. Það er hægt að gera góða hluti og byggja það upp frá grunni eins og við viljum hafa það og reyna að nýta þá þekkingu sem fyrir er hjá UMFÍ og hér á svæðinu. Mér fyndist það gríðarlegur fengur fyrir okkur og ekki síður UMFÍ,“ sagði Ásthildur í sam- tali við Skinfaxa. – Má ekki segja að möguleikarnir séu fyrir hendi til að virkja ungt fólk til góðra verka? „Jú, og það þarf að gera en hér er starf- andi útibú frá Fjölbrautaskóla Snæfell- inga. Það vantar meira fyrir þessa krakka að gera en það býr mikill auður í þeim. Við verðum að byggja þá upp og efla í því góða starfi sem UMFÍ stendur fyrir. Ennfremur þurfum við að færa þeim verkefni til að fást við, það hefur mikið forvarnagildi,“ sagði Ásthildur Sturlu- dóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð: Hægt að gera góða hluti og hér býr mikill auður Ungt og upprennandi íþróttafólk. Hér eru krakkar á körfuboltaæfingu í íþróttamiðstöðinni á Patreks- firði en íþróttaáhugi þar um slóðir hefur alltaf verið mikill. Frá vinstri: Guðrún Eggertsdóttir, bæjar- fulltrúi, Ásthildur Sturludóttir, bæjar- stjóri, og Heiðar Ingi Jóhannsson, for- maður GBB.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.