Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.2012, Side 28

Skinfaxi - 01.11.2012, Side 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Fjölmörg íslensk ungmenni hafa í gegn- um tíðina upplifað dvöl í dönskum lýðhá- skólum. Skólarnir bjóða upp á skemmti- legt og spennandi nám fyrir ungt fólk, á átjánda ári og eldra. Skólarnir leggja áhersl- ur á ýmsar íþróttagreinar en flestir bjóða þeir upp á allt mögulegt. Námið er krefj- andi og uppbyggjandi og hver dagur býð- ur upp á ný ævintýri. UMFÍ hefur gert sam- starfssamning við 10 lýðháskóla í Dan- mörku. Skólarnir eru vítt og breitt um landið og leggja áherslur á mismunandi íþróttagreinar, listir, tónlist, hönnun og annað. Allar nánari upplýsingar um skól- ana er að finna á heimasíðu UMFÍ. Hekla Kolka Hlöðversdóttir, 19 ára gömul stúlka frá Neskaupstað, hefur frá því í haust verið við nám í Íþróttalýðhá- skólanum í Árósum ásamt kærasta sínum Sævari Erni Harðarsyni. Skinfaxa lék forvitni á að vita hvernig dvölin legðist í hana. – Hvað viltu segja mér um uppruna þinn, íþróttir, skóla og annað? „Ég heiti Hekla Kolka Hlöðversdóttir og verð 19 ára í desember. Ég er frá Neskaup- stað og útskrifaðist úr Verkmenntaskóla Austurlands í maí síðastliðnum. Ég æfði dans þegar ég var yngri og svo blak eftir það en seinustu ár hef ég bara stundað líkamsrækt. Eftir sumarið flutti ég til Dan- merkur til að fara í Idrætshøjskolen i Århus Dvölin í skólanum í Árósum á eftir að nýtast mér alla ævi Hekla Kolka Hlöðversdóttir frá Neskaupstað: Mynd efst til vinstri: Hekla Kolka, Hugrún og Íris Dóra í ráðshústurninum með Árósa í baksýn. Mynd neðst til vinstri: Íslensku stelpurnar, Íris, Hugrún, Hekla Kolka og Hilma. Mynd efst til hægri: Hekla Kolka Hlöðversdóttir. Mynd neðst til hægri: Mathias, Hugrún, Hekla Kolka, og Sævar. Myndin er úr ferð þeirra til Sletten þar sem hjólaðir voru 50 km hvora leið.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.